Stjórnarfundur 12.sept. 2018
mánudagur, 17. september 2018
Fundargerð stjórnarfundar Bridgesambands Íslands 12.
september , 2018
Mætt: Jafet, Ólöf, Ingimundur, Ingibjörg og Anna
Guðlaug,. Guðný, Birkir Jón og Árni Már og boðuðu
forföll.
•1.
Fundargerð síðasta fundar, samþykkt
•2.
Starfsemi í vetur - auglýsingar í fjölmiðlum ,
Jafet kynnti málið, starfsemi með hefbundnum hætti, allar
upplýsingar á bridge.is. Samþykkt að birta tvær hálfsíðu
auglýsingar í Mbl og Fréttablaðinu í kringum 25. September.
•3.
Landsliðsmál - kvennalið, senioraflokkurinn opni
flokkurinn, Jafet hefur rætt við alla þjálfara liðanna-
eftir Evrópumótið í Ostende og hvaða lærdóm má draga af því. Anton
er tilbúinn að halda áfram með opna flokkinn og var samþykkt að
gera samning við hann sem væri fram yfir Evrópumót 2020. Fyrsta mál
er að mynda landsliðshóp æfingar verða fyrst í stað mest á netinu.
Jafet mun ræða við Guðmund Pál að taka að sér þjálfun
kvennaliðsins.
•4.
Endurbætur á húsnæði og innanstokksmunum í
Síðumúlanum. Búið er að pússa og lakka helming af
bridgeborðum, samþykkt að kaupa 12 nýborð fellanleg með skrínum.
Samþykkt að endurnýja gluggakistur fara yfir klósett og ef nauðsyn
krefur að endurnýja karlaklósettið alveg. Beðið eftir tillögu um
endurnýjun á eldhúsi
•5. EBL
skýrsla forseta, Jafet greindi frá aðalfundi EBL í júní
mikil endurnýjun í stjórn, nýr forseti, Jafet var endurkjörinn í
stjórn. Gripið hefur verið til sparnaðar ráðstafana hjá EBL útgjöld
lækkuð um 150.000 . Jafet dreifði bréfi nýs forseta um framkvæmd
mála
•6.
Reykjavík bridgefestival, Hátíðin verður í
Hörpu um mánaðarmótinu janúar/febrúar, undirbúningur hafinn, stefnt
að því að ná í 90 sveitir. Samþykkt að leita til menntamálaráðherra
að setja mótið og fá RÚV til að vera með beina útsendingu frá
setningu mótsins.
•7. EBL
Parakeppni í Lissabon, Sambandinu býst að senda 2-3 pör
bæði í tvímenning og sveitakeppni á fyrsta paramótið á vegum EBL
sem haldið verður í Lissabon dagana 22-28. Febrúar. Samþykkt
að auglýsa eftir áhugasömum pörum, sambandið greiðir keppnisgjöld
og minnst 200.000 í ferða og hótelkostnað. Tilkynning verður sett
inn á heimasíðuna, umsóknar frestur verður til 10. Nóvember.
•8.
Keppnisstjóra námskeið, EBL mun standa fyrir
keppnisstjóra námskeiði í nóvember, samþykkt að senda tvo á
námskeiðið, Jafet og Ólöf munu leita eftir áhugasömum.
•9.
Ársþing, ársþing Bridgesambandsins verður haldið í
Síðumúlanum 21. Október, Ólöf mun sjá um að kára ársreikning og
Jafet mun taka saman skýrslu stjórnar og senda stjórnarmönnum til
yfirlestrar. Jafet mun einnig sjá um tillögu að nýrri stjórn,
hann tilkynnti að hann myndi bjóða sig fram til áframhaldandi setu
í stól forseta.
•10. Önnur mál;
Minnt var á Norðurljósamótið á Siglufirði stefnir í
góða þátttöku. Ingimundi voru þökkuð góð jarðarber og úrvals
marenskaka. Rætt um dagsetningu stjórnarfunda en sumir eiga erfitt
að koma á miðvikudögum, þriðjudagar koma einna helst til greina og
þá kl. 17.30. Fleira ekki gert fundi slitið kl. 18.10.
Næsti stjórnarfundur væntanlega þriðjudaginn 16. október
kl. 17.30