Stjórnarfunur 7.jan. 2018
Stjórnarfundur í Bridgesambandi Íslands 7. janúar, 2018 kl. 17.00
Mættir: Jafet, Ólöf, Guðný, Árni Már og Ingimundur, Ingibjörg og Anna.
•1. Fundargerð síðasta fundar. Samþykkt án athugasemda
Stjórnin byrjaði á því að fara yfir og greina hverjir væru í Móta og Dómnefnd.
Í Mótanefnd sitja: Aðalmenn: Sveinn Rúnar Eiríksson, Anton Haraldsson og Ómar Olgeirsson. Til vara : Frímann Stefánsson, Ólöf Þorsteinsdóttir og Guðmundur Snorrason.
Í Dómnefnd sitja: Sigurbjörn Haraldsson;Bjarni H. Einarsson, Sigurður Vilhjálmsson, Pétur Guðjónsson,Guðmundur P. Arnarson, Ásgeir Ásbjörnsson, Magnús E. Magnússon, Guðmundur Sv. Hermannsson, Ólafur Steinason, Kristján Már Gunnarsson, Ómar Olgeirsson, Guðni Einarsosn, Sigurður Sverrisson
-
2. Samningur um rekstrarframlag á fjárlögum. Samþykkt var að gerður verði þriggja ára samningur um rekstrarframlag ríkisins til BSÍ. Samningur mun berast frá menntamálaráðuneytinu innan tíðar.
•3. Landsliðsmál - kvennalandsliðið. Hermann Friðriksson hefur verið ráðinn til að halda utan um þjálfun og skipulag hennar. Landsliðsnefnd ásamt Hermanni munu velja í landsliðið, stefnt að vali á landsliðinu um næstu mánaðarmót janúar/febrúar.
•4. Landsliðsmál opni flokkurinn. Þjálfun opna flokksins er í höndum Antons Haraldssonar og ganga mál samkvæmt áætlun þar.
-
5. Landsliðsmál öðlingaflokkurinn - senioraflokkurinn. Björn Eysteinsson mun halda utan um þjálfun og mun Guðmundur Baldursson vera honum til aðstoðar og sinna hlutverki liðsstjóra. BSÍ leggur til flugmiða og borgar þátttökugjald.
-
6. Reykjavík Bridge festival. Allur undirbúningur er samkvæmt áætlun og er töluverð eftirvænting hvernig til tekst með mótið á nýjum stað í Hörpu. Ljóst er að forseti Íslands getur ekki sett Bridgehátíð að þessu sinni og er verið að vinna að því að fá annan aðila til að hlaupa í skarðið.
•7. Auglýsingar um bridge. Birtar hafa verið nokkrar auglýsingar um Bridge í dagblöðum. Fylgja þarf þeim síðan eftir með umfjöllun og auglýsingum á netmiðlum eins og Facebook.
-
8. Bridgeskólinn - útbreiðsla bridge. Góð þátttaka var í Bridge skólanum s.l. ár og er von að framhald verði á.
•9. Húsnæði Bridgesambandsins. Stjórni BSÍ hefur ákveðið að lagt verði fjármag til lagfæringa á húsnæði BSÍ. Laga þarf eldhús, WC og fl. ásamt því að loka reyklaðstöðu. Lagfæringar þessar yrðu gerðar á 2 árum, kostnaður gæti verið 5-7 millj. kr.
•10. Önnur mál.
-
Borist hefur erindi um að BSÍ styrki vinnu við að gera Bridge kynningarþætti fyrir sjónvarp. Jafet hefur verið í sambandi við Guðmundur Örn Jóhannson á Hringbraut og eru þeir áhugasamir um að koma að þessu með okkur. Sigmundur Ernir myndi skrifa handrit í samvinnu við Bridgesambandið. Hugmyndin er að gera 4 þætti sem yrðu endursýndir allt að 12 sinnum og síðan dreift á Facebook. Samþykkti stjórn að leggja til eina milljón í þessa vinnu.
-
Helgi Hermannsson mun halda áfram kennslu á Bridge í framhaldsskólanum á Selfossi.
-
Þorvaldur Pálmason hefur opnað Facebook síðu á netinu undir heitinu Bridge á netinu. Gott framtak hjá honum.
Næsti fundur ákveðinn 7. mars kl. 17:00
Ritari : Árni Már Björnsson