Stjórnarfundur 11.október 2017
mánudagur, 23. október 2017
Fundargerð stjórnarfundar Bridgesambands Íslands
11.október 2017
Mætt: Jafet, Ólöf, Ingimundur, Ingibjörg, Anna Guðlaug,
Guðný, Árni Már og Birkir Jón boðuðu forföll
•1.
Fundargerð síðasta fundar, samþykkt
•2.
Ársþing, skýrsla forseta og ársreikningur, Jafet
fór yfir fyrirkomulag ársþings, hann mun senda stjórnarmönnum
skýrslu sína næsta dag, ársreikningur lagður fram sem sýnir um
400.000 kr hagnað á síðasta starfsári.. Guðmundur Baldursson,
fundarstjóri, og Árni Már ritari. Ólöf sér um góðar veitingar. Gert
er ráð fyrir að stjórn sambandsins verði óbreytt.
•3.
Landsliðsmál - opni flokkurinn, Jafet átti fund
með Antoni Hararldssyni á Siglufirði nýlega hann um miðjan nóvember
leggja fram áætlun hvernig hann vill haga þjálfun og vali á
landsliðinu. Enn er leitað að þjálfara fyrir
kvennalandsliðið.
Björn Eysteinsson og Guðmundur Baldursson mun kanna áhuga á
að senda landlið í eldri manna flokknum á næsta Evrópumót. En
sambandið hefur samþykkt að greiða mótsgjald fyrir liðið.
•4.
Bridge útbreiðslumál, Jafet upplýsti að lítill
árangur hefði verið af kynningarherferð á Facebook þar sem boðið
var upp á frí bridgenámskeið. Einnig hefði verið auglýst á
visir.is. Miklar umræður urðu um þetta mál.
Nauðsynlegt
að endurskoða kynningarmál, þetta mikilvæga mál býður nýrrar
stjórnar.
•5.
Reykavík Bridgefestival, Samingur við Hörpu er
frágenginn, ákveðið að ný stjórn velji nýja undirbúningsnefnd fyrir
Bridgehátíðina. Forseti Íslands mun setja hátíðina.
•6.
Gullmerki Bridgesambandsins, Ingibjörg lagði fram
greinargerð og gerði grein fyrir hvernig nokkur sambönd og
íþróttafélög haga heiðursmerkja viðurkenningum. Nauðsynlegt er að
endurnýja merki sambandsins. Samþykkt að halda sig eingöngu við
gulllmerki og útbúið verði nýtt merki. Jafet, Ingibjörgu og Ólöfu
falið að fylgja málinu eftir.
•7.
Evrópóska Bridgesambandið, Sambandið er að boða
til fundar í byrjun febrúar á næsta ári með forsetum og
framkvæmdastjórum allra Bridgesambanda í Evrópu. Ákveðið að Jafet
og Ólöf sæki fundinn.
•8.
Önnur mál; Ingimundur upplýsti um
bridgemót sem haldið verður að Logalandi þann 25. Nóvember n.k..
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18.00
Næsti stjórnarfundur væntanlega miðvikudaginn 1.
nóvember kl. 17.00