Ársþing Bridgesambands Íslands 15.okt. 2017
Ársþing BSÍ 15.okt. 2017
Ársreikningur 2017
69. Ársþing Bridgesambands Íslands haldið sunnudaginn
15.október 2017, kl. 13-16
Þingsetning: Jafet Ólafsson forseti BSÍ setti þingið og bauð fundarmenn velkomna. Stungið var upp á Guðmundi Baldurssyni sem fundarstjóra og Árna Má Björnssyni sem ritara og samþykkti fundurinn það með lófataki.
Guðmundur Baldurrsson tók við fundarstjórn og fékk uppástungur um þrjá í kjörbréfanefnd, Kristján Má Gunnarsson, Guðrún Jörgensen og Jörundur Þórðarson og nefndin tók strax til starfa og vék af fundi til að fara yfir kjörbréfin. Stungið var upp á þremur í uppstillingarnefnd þeim Símon Sveinsson, Frímann Stefánsson og Garðar V. Jónsson og var það samþykkt.
Fulltrúar félaga á ársþinginu voru 18 frá 8
aðildarfélögum
Bf. Kópavogs 2 3 atkv. Jörundur Þórðarson (2), Bernódus Kristinsson
Bf. Hafnarfjarðar 2 2 atkv. Sigurjón Harðarson, Erla Sigurjónsdóttir
Bf Borgarfjarðar 2 2 atkv Ingimundur Jónsson og Þorvaldur Pálmason
Bf. Reykjavíkur 2 4 atkv. Guðný Guðjónsdóttir (2), Sigrún Þorvarðardard
Bf. Akureyrar 1 2 atkv. Frímann Stefánsson (2)
Miðvikudagsklúbb.
5 5
atkv.
Sveinn R. Eiríksson,
Guðrún Jörgensen,
Ingólfur Hlynsson
Hrannar Erlingsson og Guðlaugur Sveinsson
Bf. Breiðfirðinga 2 3 atkv. Garðar V. Jónsson og Hörður R Einarssson (2)
Bf. Selfoss 2 2 atkv. Kristján Már Gunnarsson, Símon Sveinsson
Áheyrnafulltrúi var einn: Vigfús Pálsson
Skýrsla forseta um störf stjórnar Bridgesambandsins
Stjórn BSÍ sem kjörin var á ársþingi Bridgesambandsins þann 16. október 2016 hélt 10 fundi á starfstímabili sínu. Stjórnin skipa: Jafet S. Ólafsson forseti, Guðný Guðjónsdóttir varaforseti, Árni Björn Björnsson ritari, meðstjórnendur eru Anna Guðlaug Nielsen og Ingimundur Jónsson, varamenn eru Birkir Jón Jónsson og Ingibjörg Guðmundsdóttir. Ólöf Þorsteinsdóttir er sem fyrr framkvæmdastjóri. Helstu verkefni verða tilgreind hér á eftir, þau eru svipuð ár eftir ár, sumum verkefnum verður að sjálfögðu aldrei lokið, en áherslur eru mismunandi eftir því sem tímarnir líða og breytast.
Helstu verkefni:
-
1. Lögð áhersla á að fá fleiri til að spila bridge, stuðla að kynningu í framhaldsskólum til að fá meiri endurnýjun meðal ungs fólks. Ónóg endurnýjun er vandamál sem flest bridgesambönd í Evrópu glíma við, margar þjóðir hafa þó náð athyglisverðum árangri að fá fleira ungt fólk til að spila bridge. Einungis var kennt í einum menntaskóla á höfuðborgarsvæðinu og var það Menntaskólinn í Mosfellsbæ .Það verður að segjast eins og er að spilaáhugi er takmarkaður meðal ungmenna, sem skýrist af því að þetta er tölvu- og farsímakynslóðin. Kynningarstarfinu var haldið áfram á síðast liðnu starfsári, ráðinn var sérstakur markaðsfulltrúi tímabundið og ákveðið að leggja áherslu á senda kynningar í framhaldsskóla og kynna bridge á facebook. Nú eru að hefjast bridgenámskeið í "Bridgeskólanum" þar sem öllum 25 ára og yngri er boðið á ókeypis fjagra kvölda námskeið. Uppskeran mætti vera betri. Eftir áramót verður höfðað sérstaklega til ungsfólk14-16 ára og er í bígerð að senda um 3.000 spilastokka til fólks í þessum aldurshópi.í vetur og meira lagt í það og vonandi beri það árangur.
-
2. Aukin kynning á bridge í fjölmiðlum. Ágætlega tókst til við kynningu á Reykjavík Bridgefestival í janúar 2017, forsætisráðherra setti mótið og fórst það vel úr hendi. En alltaf þarf að hafa töluvert fyrir því að fá fjölmiðla til að fjalla um bridge. Guðmundur Páll er með sinni fasta dálk sem gleður margan manninn í morgunsárið yfir kaffibollanum. Vorið 2016 tókst samkomulag við Fréttablaðið um að birta tvöfaldan dálk um bridge í helgarblaðinu, Ísak Sigurðsson hefur séð um þetta og Bridgesambandið greiðir kostnaðinn. Vænti ég þess að Fréttablaðið hafi fljótlega góða kynningu um bridge.
-
3. Reynt að ná fram leiðréttingu á opinberum fjárframlögum, en samanburður við önnur sérsambönd er bridgesambandinu mjög í óhag ef farið er yfir fimm síðustu árin. Þarna höfum við unnið góða sigra, má þakka það góðum skilningi menntamálaráðherra á gildi bridge sem eftirsóknarverðrar íþróttar fyrir fólk á öllum aldri. Eins og flestum ætti að vera kunnugt þá lækkuðu framlög til Bridgesambandsins verulega í kringum árið 2009 og það tók mörg ár að fá leiðréttingu á þessu, en undanfarin ár hefur framlagið verið um 13 mkr. Nú hafa stjórnvöld stofnað afreksmannasjóð með allt að 400 mkr framlagi árlega, Bridgesambandið á ekki möguleika að fá framlag úr þessum sjóði og verður reynt eftir öðrum leiðum og fá hærri opinber framlög.
-
4. Mótaskrá - undirbúningur og framkvæmd móta. Mótanefnd bar hitann og þungann af uppsetningu mótaskrár og sér framkvæmdastjóri okkar síðan um undirbúning og framkvæmd og kallar fólk til eftir þörfum.
-
5. Húsnæðismál - leit að betra og hentugra húsnæði fyrir sambandið er enn til athugunar. Við höfum fengið tilboð frá fjárfestum í húseign sambandsins en höfum hafnað öllum tilboðum. Við samþykktum þó að láta fara fram endurhönnun á húsnæðinu þannig að eina hæð mætti byggja ofan á og heimild væri fyrir tengingu við húsið á horninu og hafa borgaryfirvöld samþykkt þetta. Þetta gæti sennilega aukið verðmæti húseignar sambandsins um allt að 10 mkr. Ekkert verður gert í sölumálum nema búið sé að finna nýtt og enn betra húsnæði. En úrval af hentugu húsnæði er mjög takmarkað.
-
6. Reykjavík Bridge Festival - mót í janúar 2017. Góð þátttaka var í mótinu og eru tekjur af því mikilvægar í fjáröflun sambandsins, þær hafa þó farið lækkandi þar sem leiga á húsnæði hefur hækkað nokkuð. Samningar tókust ekki við Hótel Natura (Hotel Loftleiðir) og eftir töluverða samningsumleitanir tókust samninga við Hörpu og verður mótið þar næstu 3 árin að minnsta kosti.
-
7. Norðurlandameistarmótið í Horsens í Danmörku. Landsliðið skipuðu í opnum flokki þeir Aðalsteinn Jörgensen og Bjarni H. Einarsson, Haukur Ingason og Helgi Sigurðsson og í kvennaflokki skipuðu liðið Ingibjörg Guðmundsdóttir og Sólveig Jakobsdóttir, Harpa Ingólfsdóttir og Sigþrúður Blöndal. Magnús Magnússon sá um þjálfun og undirbúning kvennaliðsins og gerði það með miklum ágætum. Við vorum hársbreidd frá því að verja Norðurlandameistaratitilinn í Opna flokknum.
-
8. Evrópska Bridgesambandið. Jafet var kjörinn í stjórn þess á fundi í Króatíu sumarið 2014, og er hann formaður markaðs og útbreiðslunefndar. Með setu í stjórninni er komin góð tenging við öllu stærstu bridgesamtök Evrópu og eins Alheimssambandsins í Bridge.
-
9. Landsliðsmál. Undirbúningur er að hefjast fyrir næsta Evrópumót í Ostend í Belgíu. Leitað hefur verið til Antons Haraldssonar um að taka að sér þjálfun liðsins í opna flokknum og hefur hann samþykkt það. Valið verður í landliðið og mun landsliðsnefnd skipuð Antoni, Jafet og Guðmundi Páli sjá um val liðsins. Kvennaliðið verður sent á Evrópumótið og er nú verið að leita að þjálfara fyrir liðið. Stjórn sambandsins hefur samþykkt að kanna áhuga á að senda öðlinga(senior) lið á næsta Evrópu mót þ.e. eldri en 62 ára, og hefur verið samþykkt að sambandið greiði móttsgjöld, en þátttakendur þyrftu að sjá um annan kostnað.
-
10. Meistarastig - Nýtt kerfi tekið í notkun, sem Daniel Rúnarsson hefur hannað
-
11. Samningar við flugfélög. Sambandið er með þokkalega góðan afsláttarsamning við Icelandair og vorið 2016 var hann endurnýjaður til næstu þriggja ára. Ekki hefur náðst samningur við WOW en áfram verður reynt.
-
12. Fjárhagur sambandsins er mjög sterkur og eru nú í sjóði rúmlega 5. mkr. eins og sést á ársreikning. Fyrir rúmu ári síðan voru allar skuldir sambandsins greiddar upp eins og sést á ársreikningi og hefur það sparað nokkur vaxtaútgjöld. Starfsárið framundan verður kostnaðarsamt. Mjög mikilvægt er að Bridgesambandið sé fjárhaglega sterkt. Nýlega fékk sambandið útbreiðslustyrk frá Evrópska Bridgesambandinu uppá 340.000
14. Kennsla í bridge í fyrirtækjum. Haft var samband við fjölda fyrirtækja og bauðst sambandið til að útvega kennslu í bridge fyrir starfsfólkið. Þetta var sérstaklega tekið fram í auglýsingunni sem getið var hér að framan. Ómar Olgeirsson og Guðmundur Páll eru ávallt tilbúnir að taka að sér svona verkefni. Góð afsókn er að Bridgeskólanum, og vonandi skila þeir spilarar sér út í bridgestarfið
15. Eldri borgarar. Bridge er vinsælt meðal þeirra eldri og samkomulag er um að félög eldri borgara spili bridge í húsnæði Bridgesambandsins tvo daga í viku, frá kl. 13.00 til kl. 17.00. Mikil ánægja er með þessa spilamennsku og aðstöðuna hjá sambandinu.
16. Kjördæmamótið var haldið í Íþróttahúsinu á Hellu í maí 2017. Sigurvegarar var lið Reykjavíkur
17. Norðurljósamótið á Siglufirði. Þetta er nýtt mót sem hófst haustið 2016 og var nú haldið fyrstu vikuna í október. Góð peningaverðlaun voru í boði. Framkvæmd mótsins var með miklum ágætum. Þetta mót á eftir að vaxa og nú voru um 10 erlendir spilarar mættir til leiks og þeim á eftir að fjölga á næstu árum.
19. Ný heimasíða, bridge.is. Við þurfum andlitslyftingu á vef sambandsins. Heimsíðan gegnir ágætlega sínu hlutverki en það þarf að nútímavæða hana.
20. Slagorð um bridge. Í upphafi árs 2016 var byrjað að setja í hverri viku slagorð um bridge, þau voru síðan þýddi yfir á ensku og fylgir hjálagt sú þýðing.
21, Bermudaskálin 25 ára, Sambandið bauð til samsætis í tilefni þess að 25 ár eru liðin frá því Ísland varð heimsmeistari í bridge. Mættu þar nær allir sem voru í landsliðinu og eins þeir sem stóðu að undirbúningi, Davið Oddsson og Bjarni Felixsson mættu og rifjuðu upp þennan merka atburð. Við þetta tækifæri var Helga Jóhannssyni fyrrverandi forseta sambandsins veitt gullmerki sambandsins.
22. Andlát Helgi Jóhannsson dó í janúar s.l. hann var forseti sambandsins um fjögurra ára skeið og átti sinn stóra þátt í að Ísland var heimsmeistari í bridge.
Á ársþinginu mun undirritaður fjalla nánar um einstaka liði, ítarlega umfjölun um öll mót, þátttöku og úrslit móta má finna í árskýrslunni.
"Bridge gerir lífið skemmtilegra" er okkar kjörorð og vonandi heldur það áfram að færa sem flestum gleði og ánægju.
Jafet S. Ólafsson, forseti Bridgesambandsins
Umræða um skýrslu stjórnar og reikninga
Fundarstjór gaf nú orðið til fundarmanna sem vildu spyrja um ársskýrsluna og ársreikninga.
Nokkrar spurningar komu sem var svarað af forseta og stjórn. Það sem m.a. var rætt um var:
-
Þorvaldur spurði um heimasíðuna, hvers vegna ekkert gerðist í endurbótum á henni og svaraði Jafet því til að verið væri að skoða að andlitsupplyfting væri í vinnslu og væri jafnvel verið að skoða tengingu við Bridge skóla GPA í þeirri vinnu.
-
Jörundur kom með fyrirspurn um hvort þær leiðir sem BSÍ hefði farið í kennslu og um hvort einhver árangur hefði náðst í því átaki sem í gangi hefði verið, hvort námskeiðin virki og almennt með þær leiðir sem hefðu verið farnar. Svaraði Jafet þessum fyrirspurnum á þann veg að rýr hefði uppskeran orðið og væri það vonbrigði. Kom fram að skoðun manna er að lykillinn að ná til yngri spilara væri að fá skólana í lið með sér. Það hefði ekki gengið eins vel og vonast var eftir.
-
Hrannar vill að horft verði til eldri einstaklinga en þann hóp sem við erum að horfa til, við verðum að snúa okkur að 30-50 ára hópnum og ná síðan aldri hópsins hægt og rólega niður.
-
Ingimundur nefndi það að vel hefði gengið hjá þeim að fá ungt fólk í spilamennskuna, ungt fólk er góð auglýsing fyrir íþróttina.
-
Sveinn Rúnar vill að við sendum ungt fólk í auknu mæli erlendis á mót og auglýsum þannig íþróttina og búum til hvata til þátttöku. Ungt fólk þarf að spila við jafnaldra.
-
Jafet svaraði að almennt væru aðrar þjóðir í sama vanda og við - erfiðleikar með endurnýjun spilara. Ísraelar hefðu þó farið nýstárlega leið með því að skylda alla þar í landi að læra Bridge í skólun , sama á við skák. Annað sem Jafet nefndi var svindl málið svo kallað og þær afleiðingar sem það hafði í för með sér, bæði bann á spilar og mikill kostnaður Evrópska Bridge sambandsins.
-
Jafet hvatti síðan alla að mæta vel á Flugleiðamótið í lok janúar.
-
Sigurjón Harðar spurði hvort Bridgefélag eldri borgara væri í BSÍ og kom fram að svo væri ekki. Erla ætlar að taka að sér að þrýsta á samtökin að ganga í sambandið.
-
Nokkrir kvöddu sér einnig hljóðs og lýstu yfir ánægju með störf stjórnar BSÍ og rekstrarafkomu.
Fundarstjóri bar upp reikningana og skýrslu stjórnar til samþykktar eða synjunar og voru þeir samþykktir með öllum greiddum atkvæðum.
Formenn fastanefnda skýra frá starfsemi nefndanna.
Enginn formaður fastra nefnda gerði grein fyrir störfum nefnda.
Kosningar:
Frímann Stefánsson bar upp tillögu uppstillingarnefndar að stjórn BSÍ 2016-2017
Forseti: Jafet Ólafsson
Stjórn: Guðný Guðjónsdóttir, Árni Már Björnsson, Ingimundur Jónsson og Anna Guðlaug Nielsen
Meðstjórnendur: Ingibjörg Guðmundsdóttir og Birkir Jón Jónsson.
Fundarstjóri óskaði eftir frekari framboðum sem ekki komu.
Fundarstjóri bar þá tillögur uppstillingarnefndar undir fundinn og voru þær samþykktar með lófataki.
Löggiltur endurskoðandi: Samþykkt tillaga um Guðlaug R. Jóhannsson
Skoðunarmenn reikninga: Ari Kr. Sæmundsen og Sigurjón Harðarson. Varamenn: Hrannar Erlingsson og Þóranna Pálsdóttir
Dómstóll BSÍ: Tillaga um eftirfarandi samþykkt: Bjarni H. Einarsson, Guðmundur Baldursson, Helgi Bogason, Kristján Már Gunnarsson Jón Þorvarðarson, Ragnar Magnússon, Pétur Guðjónsson.
Ákvörðun árgjalds: Tillaga um óbreytt árgjald, það er 130 kr. var samþykkt.
Önnur mál:
Landsliðsmál: Spurt var um hver staða lansliðsmála væri og var því svarað til að gert hefur verið samkomulag við Anton Haraldsson sem gegnir starfi einvalds í opnum flokki en Jafet og Guðmundur Páll munu vera honum til stuðnings. Verð er að skoða hver tekur að sér þjálfun kvenna landsliðs Íslands. Þjálfunaráætlanir verða settar fram í nóvember. Verið er að skoða það að senda samhliða EM á næsta ári Senior lið frá Íslandi. Þetta er orðið mjög algengt meðal Evrópu þjóða.
Nýliðamál. Jörundur ítrekaði skoðun sína að betur mætti ef duga skal til að efla íþróttina. Vill hann koma á Mini Bridge í grunnskólum og fá til verksins unglinga sem BSÍ gæti greitt eitthvað fyrir.
Guðrún Jörgensen þakkaði Forseta og stjórn BSÍ fyrir vel unnin störf og las síðan upp skondnar augýsingar ættaðar frá safnaðarstarfi kirkna sem ekki þola birtingu hér.
Minningarmót verður haldið um Þorsteinn Pétursson þann 25/11, að Logalandi
Jafet Ólafsson fékk að lokum orðið og fór yfir nokkur atriði sem komu fram í almennum umræðum.
-
Hann er sammála því að við þurfum að halda áfram að fá ungt fólk til að spila á spil því það sé upphafið að því að ungt fólk snúi sér að Bridge.
-
Hann taldi að ef eldri spilarar gengju í sambandið þá fengju þeir afslátt.
-
Nákvæmur fjöldi Bridge spilara á landinnu er ekki vitað um en áætlað er að þeir séu um 20 þús.
-
BSÍ fékk húsgögn gefin frá Perlunni á árinu sem falla vel inní húsnæðið og svipar til þeirra húsgagna sem voru hér fyroir.
-
Reykingarherfbergið verður fjarlægt innan skamms.
Jafert þakkar traustið sem honum var sýnt með endurkjöri og hefur hann að næsta kjörtíma setið sem forseti sambandsins í 8 ár.
.
Fundi slitið um 15:30
Fundarritun: Árni Már Björnsson