Stjórnarfundur 16.ágúst 2017
Stjórnarfundur í Bridgesambandi Íslands, 16. ágúst, 2017
Mættir: Jafet, Ólöf, Árni Már, Anna, Ingimundur og Birkir Jón.
•1. Fundargerð síðasta fundar. Samþykkt án athugasemda
•2. Bridgemót á Siglufirði, október 2017. BSÍ mun styrkja mótshaldara með spilagjöf eins og seinasta ár. Búið er að prenta út auglýsingu um móti sem verið er að dreyfa. 2 sterk pör frá bæði Svíþjóð og Danmörku hafa þegar boðað komu sína. Kynning á mótinu verður birt á Facebook innan skamms.
•3. Reykjavík Bridgefestival 2018. Samningur milli Hörpu og Bridgesambandsins liggur fyrir. Brenning, stjórnandi Bridgehátíðarninnar til margra undanfarinna ára kemur til landsins í einka heimsókn innan skamms og mun í leiðinni taka út tölvumál staðarins. Óskað verður eftir við rekstraraðila bílastæða við Hörpuna sér samkomulagi vegna kostnaðar við bílastæði á meðan á mótinu stendur.
-
4. Útbreiðsla bridge - markaðsátakið. Verið er að ganga frá auglýsingu og kynningu sem send verður inní Framhaldsskóla núna í haust. Námskeið þar eru fyrirhuguð í september og október. Samvinna við Hrönn sem skipulagt hefur og haldið utan um þetta átak BSÍ verður framlengt.
Vinna þarf jafnframt áfram með að finna leiðir til að kveikja áhuga nemenda í grunnskólum á spilum eins og Bridge og þarf oft að byrja með Mini - Bridge og félagsvist til að kveikja áhugann. Halda þarf áfram vinnu með að kveikja þennan neista og leita allra leiða eins og að fá í lið með okkur aðila sem geta lagt til einverskonar hvatningu til að fá nemendur til að mæta.
Jafet, Anna og Ólöf fylgja þessum málum eftir.
-
5. Dagskrá Bridgemóta 2017 - Stjórn Bridgesambands Íslands fjallaði um þá umræði sem átt hefur sér stað á Facebook þess efnis að BSÍ hafi breytt dagskrá bikarkeppninnar. Svo var ekki, sú dagskrá sem send var út í lok maí hefur ekki verið breytt.
•6. Landsliðsmál , Evrópumót 2018- Stjórn Bridgesambands Íslands hefur ákveðið að senda landslið til keppni bæði í opnum flokki og í kvenna flokki á Erópumót 2018 í Belgíu. Ráðinn verður einvaldur bæði fyrir opinn flokk og kvenna lið sem velur í liðin og sér um æfingar. Áhugasamir spilarar sem eru tilbúnir að leggja á sig þá vinnu og tíma sem til þarf eru beðnir að koma upplýsingum til BSÍ fyrir miðjan september.
•7. Aðalfundur Bridgesambands Íslands. - Aðalfundur Bridgesambands Íslands verður haldinn 15. október 2017.
•8. EBL - forsetakjör. - Kosið verður til forseta EBL á föstudag (18/8) og reikna má með hörðum kostningum.
-
9. Önnur mál :
- BSÍ hefur fengið boð um að senda fulltrúa á sterkt mót í London í febrúar. Samþykkt var að þiggja þetta boð. Gæti verið tilvalið í undirbúningi landsliðs fyrir komandi átök.
- Skráning meistarastiga - Nýtt kerfi til að halda utan um meistarastigin er klárt og verður tekið í notkun á næstu dögum. Mikil vinna liggur fyrir við að skrá þau stig sem safnast hafa upp.
- Reykherbergi í húsnæði BSÍ verður lokað í haust.
Næstu fundir stjórnar
:
19. september kl.
17:00
11. október kl. 17:00