Stjórnarfundur 14.janúar 2016
Stjórnarfundur í Bridgesambandi Íslands 14. janúar kl. 18:00
Mættir: Guðný, Jafet, Guðmundur, Ólöf, Árni Már, Anna, Júlíus og Ingimundur
-
1. Fundargerð síðasta fundar samþykkt
-
2. Reykjavík Bridge festival. Undirbúningur gengur vel bæði hvað varðar Star Wars á miðvikudeginum og einnig með tvímennings - og sveitakeppnina. Um 60 sveitir eru þegar skráðar og er stór hluti þeirra eru erlendar sveitir. Menntamálaráðherra Illugi Gunnarsson mun setja mótið.
-
3. Landsliðsmál. Keppni í opnum flokki vegna undirbúnings landsliðsins fór fram um seinustu helgi, keppnin var jöfn og tókst vel. Næsta lota verðu 9.-10. mars. Varðandi annan undirbúning landsliðsins þé er ákveðið að taka ekki þátt í því móti sem okkur hefur staðið til boða í Monaco heldur þiggja frekar boð á mót í Moskvu í febrúar.
Undirbúningur/ keppni vegna landsliðs kvenna gekk ekki eins vel og í opna flokknum. Æfingin var illa skipulögð og vanda þarf betur til við næstu æfinga.
-
4. Blaðauglýsingar. Blaðauglýsing vegna kennslu fyrir undir 25 ár var birt á miðvikudaginn var og verður sett í DV um helgina.
-
5. Dreifibréf til framhaldsskóla. Útbúið hefur verið kynningarblað um fría bridgekennslu fyrir alla undir 25 ára aldri, verður sent á alla framhaldsskóla.
-
6. Húsnæðismál. Annað tilboð hefur borist í húsnæði sambandsins. Verður það skoðað en engin sala mun eiga sér stað nema viðunandi húsnæði og staðsetning hafi fundist.
-
7. Önnur mál.
-
Átak með birtingu slagorða um Bridge er farin af stað á heimasíðu félagsins.
- Endurskoðun á heimasíðu félagsins er í gangi.
- Samþykkt var að sambandið festi kaup á hjartstuðtæki til að hafa í húsnæði félagsins. I
-
Úrslit íslandsmótsins í sveitakeppni verða í húsnæði Ferðafélags Íslands Mörkinni 6.
Næsti fundur ákveðinn 24. Febrúar kl. 17:00