Stjórnarfundur 29.október 2015
Stjórnarfundur í Bridgesambandi Íslands 29. október, 2015 kl. 17.00
Mættir: Guðný, Jafet, Guðmundur, Ólöf, Árni Már, Anna, Júlíus og Ingimundur
-
1. Fundargerð síðasta fundar samþykkt.
-
2. Stjórnin skiptir með sér verkum. Jafet lagði fram tillögum um að Guðný væri áfram varformaður og Árni Már ritari og Guðmundur gjaldkeri. Var þessi tillaga samþykkt.
-
3. Skipan í nefndir starfsárið 2015-2016:
Dómnefnd BSÍ 2015-2016
Sigurbjörn Haraldsson, formaður
Sveinn Rúnar Eiríksson
Bjarni H. Einarsson
Sigurður Vilhjálmsson
Pétur Guðjónsson
Guðmundur Páll Arnarsson
Ásgeir Ásbjörnsson
Fjölmiðlanefnd 2015-2016
Jafet Ólafsson
Guðný Guðjónsdóttir
Ólöf Þorsteinsdóttir
Fræðslu og nýliðanefnd 2015-2016
Guðný Guðjónsdóttir, formaður
Anna Guðlaug Nielsen
Árni Már Björnsson
Helgi Hermannsson
Ómar Olgeirsson
Dómstóll BSÍ 2015-2016
Bjarni H. Einarsson
Guðmundur Baldursson
Helgi Bogason
Kristján Már Gunnarsson
Jón Þorvarðarson
Ragnar Magnússon
Meistarastiganefnd 2015-2016
Ómar Olgeirsson
Garðar Garðarsson
Ólöf Þorsteinsdóttir
Heiðursmerkjanefnd 2015-2016
Guðmundur Baldursson
Jafet Ólafsson
Guðmundur Sv. Hermannsson
Laga og keppnisreglunefnd 2015-2016
Vigfús Pálsson
Sveinn R. Eiríksson
Jón Baldursson
Mótanefnd 2015-2016
Guðmundur Snorrason, formaður
Ómar Olgeirsson
Júlíus Sigurjónsson
Anna G Nielsen
Frímann Stefánsson
Bridgehátíðarnefnd 2015-2016
Sveinn R Eiríksson
Guðmundur Snorrason
Rúnar Einarsson
Kristján Blöndal
Jafet Ílafsson
Guðný Guðjónsdóttir
Landsliðsnefnd 2015-2016
Jafet Ólafsson
Ásgeir Ásbjörnsson
Guðmundur Páll Arnarson
Anna G. Nielsen
-
4. Fjárhagsáætlun
Fjárhagsleg staða sambandsins er ágæt en útgjöld næsta ár eru áætluð milli 10-13 milj. Sambandið er því sem næst skuldlaust eftir að lán uppá 3,7 milj. var greitt upp. Fjárhagsáætlun lögð fram á næsta ári, þá verður komin betri mynd á hvað stóru mótin kosta í útgjöldum.
-
5. Bridge útbreiðslumál,
Í undirbúningi er að BSÍ bjóði uppá fría kennslu janúar/febrúar fyrir nemendur í framhalds- og háskóla. Miðað verði við aldurinn undir 30 ára. Guðmundur Páll Arnarsson hefur samþykkt að taka þessa vinnu að sér. Boði verða uppá 6 skipti. Jafet, Guðný og Anna munu taka að sér undirbúning og auglýsingar. Nánar rætt á næsta fundi.
-
6. Landsliðsmál opni flokkurinn
Undirbúningur á áætlun, ánægja er með framkvæmdina.
-
7. Landsliðsmál kvenna
Áhugi er mikill fyrir að gera allt til að efla okkar kvenna landslið í Bridge og er undirbúningur á áætlun.
-
8. Fundur með Menntamálaráðuneytinu. Jafet fer til Menntamálaráðuneytisins 30. okt. og undirritar samning við ráðuneytið vegna styrkja þeirra til BSÍ. Slíkur samningu er gerður við alla þá sem njóta styrkja frá ráðuneytinu.
-
9. Sveitakeppnin, staðsetning á úrslitum. Staðsetning er ekki enn ráðin en verið er að skoða nokkra möguleika.
-
10. Reykjavík - Icelandair Bridgefestival. Undirbúningur er á ágætu róli og hafa þegar nokkrar erlendar sveitir tilkynnt þátttöku og/eða sýnt áhuga. Verið er að ganga frá og tryggja starfsmenn mótsins.
-
11. Önnur mál.
Heimasíða BSÍ. Anna og Júlli koma inn í þá vinnu sem þegar er í gangi með Guðmundi og halda áfram að skoða kostnað og útliti síðunnar. Stjórnarmenn sammála um nauðsyn þess að gera andlitslyftingu á heimasíðu sinni sem komin er til ára sinna.
Næsti stjórnar fundur ákveðinn 25/11 kl. 17:00