Stjórnarfundur 11.ágúst
mánudagur, 25. ágúst 2014
Stjórnarfundur BSÍ 11. ágúst 2014
Mættir : Jafet, Ólöf, Helga, Guðný, Ingimundur, Guðmundur og
Árni Már
Mótið þótti vel útfært og í alla staði vel staðið að því og
Króatíu til sóma. Spilamennska okkar manna var upp og niður og olli
vonbrigðum. Við höfnuðum einu sæti frá því að komast áfram.
Við kosningu í stjórn sambandsins var mikill áróður í gangi og
órói. Mjótt var á munum við kosningu formanns og fór svo að
Frakkinn Yves Aubry vann Grikkjann Panos með 64 atkvæðum gegn
49. Jafet Olafsson forseti Bridgesambandsins kosinn i 12
manna framkvæmdastjórn EBL alls tóku 46 þjóðir þátt i
kjörinu.
Næstu verkefni landsliðsins eru:
-
Norðurlandamót 2015 í Færeyjum
-
Alþjóðlegt mót í Tromsö Noregi 2015
-
Evrópumótið í Búdapest 2016
Rætt var um hvort skoða ætti aðrar leiðir en farnar hafa verið
við skipan í landsliðið.
Jafet var falið umboð til að ræða við landsliðsnefnd og sjá
hverjir eru reiðubúnir að taka starfið að sér.
Þing Bridge sambandsins verður haldið 19. október kl. 13:00.
Fjárhaldsstaða sambandsins er góð og stóðst áætluð
kostnaðaráætlun við þátttöku í Evrópumótinu.
Beiðni ungra spilara hefur borist sambandinu um styrk til
þátttöku í móti yngri spilara á Azoreyjum.
BSÍ hefur ákveðið að styrkja 4 spilara til þátttöku í formi
flugmiða.
Ákveðið er að ráða starfsmann til að sjá um skipulag og
framkvæmd kennslu í framhalds- og grunnskólum í vetur. Jafet fékk
umboð stjórnar til ráðningar starfsmanns. Tilkynnt verður síðar
hver tekur þetta að sér.
-
10. Önnur mál.
-
Stefnt er að því að spila á 4 borðum á menningarnótt eins og
gert var í fyrra. Ólöf mun skipuleggja.
-
Auglysing um Bridge með svipuðu sniði og í fyrra verður sett í
fjölmiðla 10-11 sept.
-
Aðild eldri borgar að BSÍ. Ólöf og Jafet munu taka að sér að
semja við Félag eldri borgara um aðild þeirra að BSÍ. Getur kallað
á kaup á Bridge Mate II sem er með stærri skjá en notað hefur
verið.
-
Bridge hátíð 2015. Haft verður samband við Hotel Natura
(Loftleiðir) varðandi Bridge hátíð í janúar.
Næsti fundur ákveðin 24. september kl. 16:00