Stjórnarfundur 11.ágúst
Stjórnarfundur BSÍ 11. ágúst 2014
Mættir : Jafet, Ólöf, Helga, Guðný, Ingimundur, Guðmundur og Árni Már
-
1. Fundargerð síðasta fundar samþykkt
-
2. Evrópumótið í Króatíu.
Mótið þótti vel útfært og í alla staði vel staðið að því og Króatíu til sóma. Spilamennska okkar manna var upp og niður og olli vonbrigðum. Við höfnuðum einu sæti frá því að komast áfram.
-
3. Ársþing Evrópusambandsins.
Við kosningu í stjórn sambandsins var mikill áróður í gangi og órói. Mjótt var á munum við kosningu formanns og fór svo að Frakkinn Yves Aubry vann Grikkjann Panos með 64 atkvæðum gegn 49. Jafet Olafsson forseti Bridgesambandsins kosinn i 12 manna framkvæmdastjórn EBL alls tóku 46 þjóðir þátt i kjörinu.
-
4. Landsliðsmál
Næstu verkefni landsliðsins eru:
-
Norðurlandamót 2015 í Færeyjum
-
Alþjóðlegt mót í Tromsö Noregi 2015
-
Evrópumótið í Búdapest 2016
Rætt var um hvort skoða ætti aðrar leiðir en farnar hafa verið við skipan í landsliðið.
-
5. Skipan í landsliðsnefnd.
Jafet var falið umboð til að ræða við landsliðsnefnd og sjá hverjir eru reiðubúnir að taka starfið að sér.
-
6. Þing Bridge sambandsins í október
Þing Bridge sambandsins verður haldið 19. október kl. 13:00.
-
7. Fjárhaldsstaða BSÍ
Fjárhaldsstaða sambandsins er góð og stóðst áætluð kostnaðaráætlun við þátttöku í Evrópumótinu.
-
8. Beiðni um styrk til þátttöku í móti erlendis.
Beiðni ungra spilara hefur borist sambandinu um styrk til þátttöku í móti yngri spilara á Azoreyjum.
BSÍ hefur ákveðið að styrkja 4 spilara til þátttöku í formi flugmiða.
-
9. Bridge kennsla í skólum
Ákveðið er að ráða starfsmann til að sjá um skipulag og framkvæmd kennslu í framhalds- og grunnskólum í vetur. Jafet fékk umboð stjórnar til ráðningar starfsmanns. Tilkynnt verður síðar hver tekur þetta að sér.
-
10. Önnur mál.
-
Stefnt er að því að spila á 4 borðum á menningarnótt eins og gert var í fyrra. Ólöf mun skipuleggja.
-
Auglysing um Bridge með svipuðu sniði og í fyrra verður sett í fjölmiðla 10-11 sept.
-
Aðild eldri borgar að BSÍ. Ólöf og Jafet munu taka að sér að semja við Félag eldri borgara um aðild þeirra að BSÍ. Getur kallað á kaup á Bridge Mate II sem er með stærri skjá en notað hefur verið.
-
Bridge hátíð 2015. Haft verður samband við Hotel Natura (Loftleiðir) varðandi Bridge hátíð í janúar.
Næsti fundur ákveðin 24. september kl. 16:00