Stjórnarfundur 2.júní 2014
Stjórnarfundur í Bridgesambandi Íslands 2. júní, 2014 kl. 17.00
Mættir: Jafet, Árni Már, Guðmundur, Ólöf, Denna, Helga og Ingimundur
-
1. Fundargerð síðasta fundar, samþykkt án athugasemda.
-
2. Fjármál
Seinasta fjárlagaár félagsins kom ágætlega út með tekjuafgang upp á 1,5 miljón.
Bridgehátíðin kom ágætlega út.
-
3. Landsliðsmál - Evrópumót
Kostnaður við væntanlegt Evrópumót er upp á 3,7 milj.
Sótt var um styrk vegna mótsins til Menntamálaráðuneytisins og fengust 300 þús. kr í styrk. Æfingar ganga vel og unnu okkar menn sterkt æfinga mót í Rika - Lettlandi.
-
4. Kjördæma mót
Kjördæma mótið sem að þessu sinni var haldið í Færeyjum þóttist takast með eindæmum vel. Móttaka Færeyinga var í alla staði tilfyrirmyndar. Reykjanes vann mótið að þessu sinni eftir spennandi og jafna keppni.
-
5. Nýr samningur við Icelandair
Verið er að ganga frá samningi við Icelandair til árs varðandi styrki í formi flugmiða. Er samningurinn á sömu nótum og verið hefur.
-
6. Bridge kennsla í skólum næsta skólaár
Fyrirhugað er að kennsla fari fram í 3-4 skólum næsta vetur. Stefnt er að því að halda sérstakt mót næsta vor fyrir þátttakendur og að í verðlaun verði boðið á árlegt mót í Örebro í Svíþjóð. Um er að ræða viku dvöl með kennslu og móti sem sérstaklega er sniðið að ungmennum og hefur verið haldið um árabil í Svíþjóð.
BSÍ er að vinna að því að fá einhvern áhugasaman til að taka að sér stjórn og skipulagningu á þessari kennslu í skólum.
-
7. Sumarbridge
Búið er að semja við Sveinn Rúnar um sumarbridge á mánudögum og miðvikudögum í sumar. Fer sumarbridge vel af stað og gera má ráð fyrir góðri þátttöku þar sem þátttaka í Evrópu og heimsmeistaramóti hefur yfirleitt ýtt undir góða þátttöku.
-
8. Mótaskrá fyrir næsta haust
Drög að mótaskrá fyrir næsta haust var lögð fram og samþykkt af hálfu stjórnar.
-
9. Fundaráætlun stjórnar
Hlé verður gert á fundum stjórnar yfir sumarmánuðina. Næsti fundur fyrirhugaður 11. ágúst kl. 16:00
-
10. Önnur mál
Gert verður atlaga að fjölmiðlum til að fjalla um Evrópumótið í sumar. Nauðsynlegt er að ýta við þeim og fá þá til að flytja reglulegar fréttir af gangi mála.
Lítillega var rætt um að gera kynningar video (1-2 min.) um bridge. Málið tekið upp á næsta fundi.
Fundarritari
Árni Már