Stjórnarfundur 12.mars 2014

þriðjudagur, 8. apríl 2014
Stjórnarfundur í Bridgesambandi Íslands12. mars 2014
Mættir:      Jafet, Ólöf, Helga, Guðný, Garðar, Ingimundur, Guðmundur og Árni Már                       

1.     
Fundargerð síðasta fundar samþykkt
2.      Skipun í nefndir Búið er að skipa í nefndir BSÍ sjá meðfylgjandi yfirlit.    Rætt var um að endurvekja Heiðursmerkja nefnd sambandsins.
3.      Landsliðsmál- Evrópumótið Æfingar eru á hverjum föstudegi. Landsliðsfyrirliði verður ákveðinn í apríl Boð á mót í Danmörku sem landsliðinu var boðið á hefur verið afþakkað vegna úrslita íslandsmótsins sem standa yfir á sama tíma. Boð á mót í maí sem landsliðinu hefur verið boðið á í Lettlandi hefur verið samþykkt.
4.      Evrópumótið, Senior lið, á að senda lið? Vegna kostnaðar á þetta mót (2-2,5 milj.) mun BSÍ ekki taka þátt í þessu móti. Um er að ræða mót fyrir spilara fædda fyrir 1. janúar 1955. Samþykkt var að ef áhugi er fyrir hendi  að bjóða þátttakendum flugmiða.
5.      Samningur við menntamálaráðuneytið-bréf vegna fjárlagagerðar Um er að ræða samning sem gerður er við ríkisendurskoðun Sækja  þarf sérstaklega árlega um þennan samning. Búið er að ganga frá bréfi. Markmiðið er að koma styrk til  BSÍ í 13,5 milj. Jafet hefur verið boðaður á fund vegna þessa eftir tvær vikur.
6.      Vefur Bridgesambandsins Vefurinn er í góðu lagi aðð mati sérfræðinga en gamaldags. Kostnaður við uppfærslu er u.þ.b. 400 þús. Skoðaðar verða áfram leiðir til að hressa uppá heimasíðuna. ·         Guðmundur ætlar að skoða með leiðir að skipta út myndum. ·         Skoðað verður að leggja niður spjallið í þeirri mynd sem það er og vísa því frekar á Facebook síðu.
7.      Úrslit sveitakeppninnar-staðsetning Stjórn var sammála um að stefna á að halda úrslit íslandsmótsins í Flughótelin í Keflavík. Ólöf mun skoða verð og gistingu. Til vara verður Valsheimili einnig skoðað
8.      Önnur mál Í upphafi fundar kom fram að almenn ánægja hefði verið með undankeppni íslandsmótsins. Lagfæringar hafa átt sér stað á rakaskemmdum á gólfi á gangi í húsnæði BSÍ. Skoða þar einangrun á lofti / þaki húsnæðis BSÍ og þakrennur - verður það gert á húsfundi.   Næsti stjórnarfundur  8. apríl kl. 16:00    

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar