Stjórnarfundur 5.febrúar 2014
miðvikudagur, 26. febrúar 2014
Stjórnarfundur í Bridgesambandi
Íslands 5.febrúar, 2014 kl. 16.00
Mættir:
Jafet, Árni Már, Guðmundur, Ólöf, Denna, Garðar
og Ingimundur
Dagskrá fundarins:
1.
Fundargerð síðasta fundar, samþykkt án
athugasemda.
2.
Icelandair Reykjavík Bridge festival,
útkoma - lærdómur.Ekki er búið að
ganga endanlega frá reikningum vegna hátíðarinnar en ljóst er að um
góða afkomu er að ræða. Vel tókst upp með að fá fjölmiðla að
fjalla um
hátíðina og skipti þar sköpum að láta þá vita nógu snemma af
hátíðinni og ítreka ósk um umfjöllun. Var góð
umfjöllun bæði í Íslandi í dag og á fréttum
RUV. Leiðindar atvik kom upp þar sem
spilari vék úr keppni og mun forseti BSÍ ræða við
viðkomandi. Tímasetning fyrir næsta er er áætluð
29. janúar til 1. febrúar.
3.
Landsliðsmál
Fundur í landsliðsnefnd var 4. janúar.
Áætlað er að vali á landsliði verður lokið fyrir 10. febrúar.
Fundað verður aftur næsta föstudag og æfingaplan sett
upp.Sveinn Rúnar og Guðmundur Páll munu
sjá um þjálfun. World Class hefur gefið vilyrði fyrir
líkamsræktarkorti fyrir landsliðið. Val á fyrirliða verður frestað
fram í apríl.Landsliðinu hefur verið boðið á tvö
boðs mót, annað í Kaupmannahöfn og hitt í Lettlandi. Fyrirhugað er
að setja upp boðs mót hér á landi til styrktar og undirbúnings
landsliðinu í byrjun júní.
4.
Evrópumótið í
bridge, Mótið
verður haldið í Króatíu 21. júní - 3. júlí . Ólöf mun tilkinna
þátttöku og bóka gistingu.Umræða
var um kvennalandsliðið og þörfina á að senda þær á sterkt mót.
Fékk sú umræða góðar undirtektir og verður leitað að heppilegu
móti.
5.
EBL Semiar í Berlín 30. Jan- 2
feb, Jafet
sótti fundinn fyrir okkar hönd og gerði góða
samantekt á efni fundarins. Verður sú samantekt birt á síðu
BSÍ.
6.
Samningur við
menntamálaráðuneytiðForseti
og framkvæmdastjóri funduðui með Óskari Ármannssyni í
Menntamálaráðuneytinu. Var farið yfir drög að samkomulagi við BSÍ
og ráðuneytisins. Þarf BSÍ að sækja formlega um vera á fjárlögum og
verður slík umsókn sett inn fyrir framlög árið 2015. Umræða um
skert framlög til BSÍ seinustu ár skilaði
litlu.
7.
Vefur
BridgesambandsinsUmræða
um vef sambandsins kom enn á ný upp og eru menn sammála um að skoða
verði bæði myndir og útlit vefsins. Vefurinn sem
slíkur virkar þó ágætlega. Umræður voru um dýra hýsingu Outcome.
Jafet og Guðmundur munu koma með tillögur um aðgerðir fyrir næsta
fund.
8.
Myndasafn
BridgesambandsinsGera
þarf átak í myndasafni sambansins, koma myndum á tölvutækt
aðgengilegt form. Munu Jafet og Ólöf hafa samband við Aðalstein
Jörgensen varðandi þessa vinnu.
9.
Önnur mál, ·
Tillaga kom fram um að setja upp n.k.
"heismeistarahorn" í húsakynnum sambandsins.
Gera þennan árangur Íslands í Yokohama 1991 meira áberandi með
myndum og umfjöllun.·
Ekkja Ásmundar Pálssonar hefur boðið BSÍ
verðlaunasafn hans að gjöf. Mun sambandið verða við þessari
ósk.·
Rætt var um hvar og hvort ætti að nálgst
nælur vegna árangurs spilara. Nælurnar eru að mestu búnar og verður
athugað hvar hægt er að fá þær framleiddar. Vili var meðal
stjórnarmanna að halda í nælurnar.·
Verið er að leita að heppilegu húsnæði
fyrir úrslit Íslandsmótsins.
Næsti
fundur 12. mars kl. 17:00.