Ársþing BSÍ 20.október
þriðjudagur, 22. október 2013
Ársþing BSÍ,
haldið sunnudaginn 20. október 2013 kl. 13-16
Þingsetning. Jafet Ólafsson forseti BSÍ setti
þingið, bauð fundarmenn velkomna. Hann hóf fundinn á því að
minnast þriggja látinna bridgespilara á árinu, þeirra Jóns
Ásbjörnssonar, Símonar Símonarsonar og Ásmundar Pálssonar.
Hann greindi nokkuð frá ferli þeirra en allir hafa þeir verið
með fremstu spilurum landsins og stuðlað að hærri gæðum.
Síðan stakk hann upp á Kristjáni Má Gunnarssyni sem fundarstjóra
og Jörundi Þórðarsyni sem fundarritara og samþykkti fundurinn það
með lófataki.
Kristján Már tók strax við fundarstjórn og fékk uppástungur um
þrjá í kjörbréfanefnd: Þau Erlu Sigurjónsdóttur, Sigurjón G
Ingibjörnsson og Víði Jónsson. Nefndin tók strax til starfa
og vék af fundi til að fara yfir kjörbréfin. Því næst var
stungið upp á þremur í uppstillingarnefnd: Sveinn R Eiríksson,
Garðar Garðarsson og Bergur Reynisson. Að þessu loknu var komið að
skýrslu stjórnar sem Jafet forseti flutti.
Skýrslu stjórnar og reikningum hafði verið
útbýtt sem hluta af fundargögnum og greindi Jafet frá því helsta í
skýrslunni.
Hann sagði frá bridgekennslu fyrir 13-14 ára
unglinga í nokkrum grunnskólum sem Guðný varaforseti hefur séð að
mestu um ásamt Helgu Bergmann. Best gekk í Rimaskóla en
skólastjórinn hefur stutt dyggilega við þetta
kynningarstarf.
Kynning á bridge gengur misvel hjá fjölmiðlum. Spurning
um með hverju á að flokka bridge, helst viljum við að bridge sé
talið til íþrótta. Bæði Stöð 2 og Morgunblaðið hafa greint frá því
fréttnæmasta, RÚV sá ekki ástæðu til að fræða fólk um
heimsmeistaratitil Hjördísar Eyþórsdóttur sem hún vann með
kvennaliði USA í bridge. Jákvætt hve vel Fréttatíminn tók
málaleitan okkar að taka inn hálfa síðu fyrir bridge í hverri viku.
Einnig hefur verið beðið um hálfsíðu í sunnudagsblaði Mbl.
Óskað hefur verið eftir leiðréttingu (hækkun) á framlögum ríkis
til BSÍ í fjárlögum, sem enn hefur engan árangur borið, þó hefur
framlagið ekki verið lækkað. Fundarmenn beðnir að reyna að hvetja
fjárlaganefndarmenn til dáða.
Mótaskrá. Mótanefnd hefur séð um gerð mótaskrár og
framkvæmdastjóri og keppnisstjórar séð um framkvæmd móta og
hefur þetta gengið eins og smurð vél.
Húsnæðismál: Alltaf er verið að líta í kringum sig eftir
heppilegra húsnæði. Líklega verður reynt að ráðast í smá
andlitslyftingu í vetur.
Reykjavík Bridge Festival: Talsvert hefur aukist aðsókn
og virðist ekkert lát á. Sú nýbreytni var síðast tekin upp að hafa
lægra gjald fyrir félagsmenn. Enn er reynt að lokka Bill
Gates og Warren Buffet til hátíðarinnar.
Norðurlandamót haldið í Reykjanesbæ í maí. Undirbúningur
og framkvæmd hjá Ólöfu og Garðari.
Ágætur árangur, glæsilegur sigur í opnum flokki. Jón Baldursson,
Þorlákur Jónsson, Bjarni Einarsson, Aðalsteinn Jörgensen, Guðmundur
Snorrason og Ragnar Hermannsson fyrirliði. Þjálfari var Guðmundur P
Arnarson. Heillaóskaskeyti frá menntamálaráðherra og móttaka í
framhaldinu. Kvennasveit í fjórða sæti.
Landsliðsmál: Næsta stóra verkefni landsliðsins verður EM
í Króatíu.
Samningar við flugfélög: Flugfélög hafa verið ötul að
styðja við BSÍ með farmiðum. Þar er Icelandair öflugt en líka
Iceland Express, sem hætti starfsemi á árinu. BSÍ átti nokkra
ónotaða flugmiða hjá IE, það var ekki sjálfsagt að WOW tæki við
þessum kvöðum, en eftir samtal við Skúla Mogensen og Ingu
frkvstjóra tókust samningar um að WOW tæki samninginn yfir. Þessir
tveir samningar hafa létt mjög undir rekstur BSÍ.
Auglýsingamál. Stór auglýsing var birt bæði í Mbl og
Fréttablaðinu, auk þess var greidd auglýsing fyrir
Bridgeskólann.
Kennsla í fyrirtækjum hefur á undanförnum árum verið á
vegum Bridgeskólans en nú kemur Ómar Olgeirsson einnig að
málum.
Einnig ræddi forseti um bridge á netinu, þar eru frændur vorir
Danir, Norðmenn og Svíar í samstarfi með BBO-Nordic en um 30
íslenskir spilarar spila þar einnig. Öllum opið er BBO sem margir
nýta sér.
Ársreikningar: Forseti fór síðan beint í að
útskýra endurskoðaða ársreikninga sambandsins. Þar greindi hann frá
hagnaði á árinu, 4,4 milljónir sem er svipað og yfirkeyrslan árið
áður sem var mun þyngra í rekstri vegna EM og Heimsmeistaramótsins
í Hollandi þá. Langtímaskuldir eru 6,9 milljónir og spurning hvort
eitthvað ætti að greiða þau lán niður þar sem vextir eru litlir af
inneignum. Helsta ástæða þessarar góðu útkomu má annars vegar rekja
til meiri tekna af Bridgehátíð en einnig vegna léttara árs (eina
stóra verkefnið NM) auk þess sem Ólöf sýnir góða meðferð fjár eins
og alltaf. Styrktaraðilar einnig drjúgir.
Fundarstjóri tók næst kjörbréfin fyrir og kom Erla
Sigurjónsdóttir og gerði grein fyrir þeim.
Fulltrúar félaga voru 25 og áheyrnarfulltrúar voru tveir (Vigfús
Páls og Halldór Þorvaldsson)
Bf. Borgarfjarðar
|
2
|
37,6
|
Ingimundur Jónsson, Þorvaldur Pálmason
|
Bf. Sauðárkróks
|
(2)
|
22
|
Kristján Snorrason
|
Bf. Akureyrar
|
2
|
28
|
Víðir Jónsson (2)
|
Bf. Seyðisfjarðar
|
1
|
10
|
Cecil Haraldsson
|
Bf. Selfoss
|
2
|
29
|
Kristján Már Gunnarsson (2)
|
Bf. Muninn
|
2
|
30,8
|
Garðar Garðars, Sigurjón G Ingibjörnsson
|
Bf. Hafnarfjarðar
|
3
|
48
|
Erla Sigurjónsd, Ólafur Þór Jóhannsson
|
Bf. Kópavogs
|
3
|
50,2
|
Jörundur Þórðarson, Hjálmar Pálsson, Bergvin Sveinsson
|
Bf. Reykjavíkur
|
4
|
65,6
|
Bergur Reynisson, Guðný Guðjónsdóttir, Guðmundur
Snorrason, Sigrún Þorvarðardóttir
|
Bd. Breiðfirðinga
|
2
|
38,4
|
Sturlaugur Eyjólfsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir
|
Miðvdagsklúbb
|
4
|
60,2
|
Svenni R. Eiríksson, Guðrún Jörgensen, Guðlaugur Sveinson,
Hrannar Erlingsson
|
Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga:
Fundarstjóri gaf nú orðið til þeirra fundarmanna sem vildu
spyrja um ársskýrsluna og ársreikningana
Fáar spurningar og fljótsvarað, leiðrétting komin hér að
ofan.
Fundarstjóri bar síðan reikningana upp til samþykktar eða
synjunar og voru þeir einróma samþykktir.
Formenn fastanefnda skýra frá starfsemi
nefndanna.
a) Mótanefnd:
Jörundur greindi frá störfum mótanefndar (aðrir í
nefndinni eru Jón Halldór Guðmundsson, Ásgrímur Sigurbjörnsson,
Frímann Stefánsson, Ólafur Steinason, Örvar S. Óskarsson.)
Aðalvinnan gerð mótaskrár.
Deildakeppnin 2012. Alltaf snúið að
skipuleggja hana. 13 sveitir í fyrra í 2.deild. (Fyrsta umf var
random og síðan allir við alla) Að venju voru átta sveitir í
1. deild. Keppnisgjald hafði verið gagnrýnt og kom formaður þeirri
gagnrýni á framfæri. Á næsta ári stendur til að breyta í þrjár
deildir: 6 lið í 1. deild, 6 lið í 2. deild og önnur lið í 3.
deild. Reglugerð þar að lútandi í smíðum, einnig ákveðið að 6 megi
vera í hverri sveit, þó verði tekið tilit til þeirra í 1.deild ef
fleiri voru en sex sem áunnu sér réttinn. Miklar umræður hafa
verið um fyrirkomulag á deildakeppni á spjallinu og hefur Ólafur
Steinason leitt hana f.h. mótanefndar. Úrslitin í
sveitakeppni lentu á kosningadegi, talsvert rætt um hvort færa ætti
mótið vegna þessa. Ekki treystu menn sér til þess. Breytt
reglugerð um bikarkeppnina. Ekkert lið situr nú hjá í fyrstu umferð
nema standi á oddatölu. Nokkur taplið fá hins vegar að halda áfram
og ákvæði eru um það að þau lendi ekki aftur á móti sigurliðinu í
fyrstu umferð, fyrr en í undanúrslitum. Erlend mót hafa áhrif
á mótaskrá: Madeira. Haust-National, Vor-National, mót á
Norðurlöndum. Bötler: Þátttaka kvenna er nokkuð lítil.
Vonandi verður bót þar á. Nokkrar fyrirspurnir urðu og reyndi
undirritaður að svara þeim.
b) Laga og
keppnisreglnanefnd: Vigfús Pálsson sagði frá því að
nýr skali í sveitakeppni komi til framkvæmda, 20-0 skali, þessi
breytingu er í samræmi við óskir alþjóðabridgesambandsins. 20 impa
munur dugar í 15-5 úrslit, en 60 impa þarf til að fá 20-0. Spurt
var hvað þarf til að leikur fari jafn, hvort miðað verði við 12-8
sé jafnt og 13-7 sé tap eða hvar mörkin séu. Annar vandi er um
undanúrslitin í sveitakeppni, sveitum hefur fækkað og erfitt er
orðið að fylla í kvótann. T.d. hefði Reykjavík átt rétt á að fá 13
sveitir inn en aðeins 12 sveitir hefðu tekið þátt í undankeppninni
þar. Til greina kæmi að fækka niður í 36, 32 eða 30 sveitir.
Aðspurður greindi hann frá því hvað lagt er til grundvallar við
reikning á fjölda sveita í hverju kjördæmi. Í umræðunni tóku þátt:
Cecil, Garðar, Guðm Snorra, Hrannar, og Sveinn.
c)
Meistarastiganefnd Garðar Garðarsson formaður
(Frímann Stefáns og Ólöf einnig í nefndinni) sagði frá því að
Ómar hefði sett inn stigin núna en væri að bæta inn stigum sem
vantar frá 2011 og 2012. Hann ræddi einnig um nálarnar góðu,
lauf, tígul o.s.frv. Sagði að stórmeistaranálarnar væru búnar og
vildi heyra í fundarmönnum um framhaldið. Allflestir fundarmenn
óskuðu eindregið eftir áframhaldandi smíði þessara gripa, þetta
væri sérstaklega örvandi fyrir nýliðana. Einnig spurði Bergur um
lista yfir 5 ára stig til að sjá virkni félaga.
Lagabreytingar. Engar.
Kosningar Uppstillingarnefnd var
kölluð til og flutti Sveinn tillögu hennar.
Jafet Ólafsson yrði áfram forseti.
Í stjórn yrðu Guðný Guðjónsdóttir, Ingimundur
Jónsson, Árni Már Björnsson og Garðar Garðarsson, þeim til
halds og trausts yrðu Helga Bergmann og Guðmundur Snorrason. Nýir í
stjórn yrðu þannig Ingimundur Jónsson og Guðmundur Snorrason. Úr
stjórn fara Jörundur Þórðarson og Örvar Snær Óskarsson
Fundarstjóri óskaði eftir frekari framboðum sem ekki komu.
Fundarstjóri bar þá tillögur uppstillingarnefnar undir fundinn
og voru þær samþykktar með almennu lófataki.
Löggiltur endurskoðandi: Samþykkt tillaga um Guðlaug R
Jóhannsson með lófataki
Skoðunarmenn reikninga, áfram valdir Stefanía
Sigurbjörnsdóttir og Þorsteinn Berg
Varamenn þeirra voru valdir Jörundur Þórðarson og Sveinn R
Eiríksson
Dómstóll BSÍ: Tillaga um óbreyttan dómstól var samþykkt.
(Bjarni H. Einarsson, Guðmundur Baldursson, Helgi Bogason, Kristján
Már Gunnarsson, Jón Þorvarðarson, Ragnar Magnússon, Þorsteinn
Berg)
Ákvörðun árgjalds. Árgjald er 130 krónur,
tillaga um óbreytt árgjald var samþykkt.
Önnur mál
Þorvaldur Pálmason kvaddi sér hljóðs. Hann ræddi um nýliðun í
Borgarfirði. Taldi að mjög vel þyrfti að styðja það starf og vel
þyrfti að hlúa að þeim sem nýir kæmu inn. Ekki væri allt komið
undir því að framfarir yrði sem mestar en líka að sinna félagslega
þættinum. Hann greindi frá félagsskap í Póllandi sem heitir
Bridge24 þar sem sterkir spilarar taka nýliða í umsjá, spila við þá
á netinu o.fl. Hann minntist einnig á gott sjálfboðaliðastarf
Vigfúsar og fleiri við að halda mót fyrir Íslendinga á BBO.
Hér var gert kaffihlé á fundinum - veitingar í boði BSÍ.
Minibridge. Jörundur dreifði bækling um Minibridge sem
hann hafði þýtt. Hann útskýrði einfaldar reglur og hvatti til þess
að þetta yrði notað í alla grunnskóla, engar sagnir kenndar. Einnig
að jólagjöfin handa barnabörnunum væri núna spil og þessi blöð.
Fundarstjóri tók undir það og bætti kertum í pakkann. Helga sagði
að þau væru byrjuð að nota Minibridge í Rimaskóla.
Cecil. spurði um kostnað vegna innanlandsflugs, það væri
dýrara en flug til London, hvort einhverjir samningar væru við
flugfélögin. Afsláttartilboð fyrir ÍSÍ gagnaði lítið, best ef
pantað með löngum fyrirvara.
Jafet: Þakkaði ritara, sem nú fer úr stjórn, góð störf
hrósaði honum fyrir fljót og góð skil á fundargerðum. Þakkaði
einnig Örvari samvinnuna og bauð nýja stjórnarmenn Ingimund og
Guðmund velkomna. Hann sagði frá ferð yngri spilara til Azoreyja en
tveir úr Borgarfirði og tveir úr Kópavogi hefðu farið. BSÍ styrkti.
BSÍ hefur stundum styrkt spilara til þátttöku á Örebro
bridgehátíðinni sem er á hverju sumri um mánaðarmótin júlí -
ágúst.
Hann tók undir orð Cecils, lítið gagn að ÍSÍ afslætti, mun betra
að panta með 2-3 mán. fyrirvara.
Erla Sigurjónsdóttir sæmd gullmerki BSÍ
Forseti sagði frá Heiðursmerkjanefnd sem hann vildi nú virkja að
nýju, stjórn BSÍ hefði samþykkt að ríkulegt tilefni væri til að
heiðra spilakonuna mætu, hana Erlu
Sigurjónsdóttur. Hún hefur um árabil verið mjög virk í
bridgehreyfingunni bæði með setu í stjórn BSÍ sem og í öðrum
bridgefélögum. Hann kallaði heiðurkonuna til sín og sæmdi hana
gullmerki sambandsins undir háværu lófataki fundarmanna.
Minningarsjóður Alfreðs Alfreðssonar: Garðar Garðarsson,
formaður (aðrir í stjórn sjóðsins Ólöf Þorsteinsdóttir og Guðný
Guðjónsdóttir) Tilgangur sjóðsins er að styðja við nýliðun og yngri
spilara. Sjóðurinn varð fyrir allnokkrum afföllum í hruninu.
Inneign 416 þús. Ívörslu eru 38þús og vextir 8 þús.
Vigfús Pálsson sagði frá sjálfboðaliðastarfi sínu og
annarra (Guðni, Ingimundur, Þórður Ing.) við að halda úti keppni á
BBO á föstudögum og sunnudögum. Ræddi um bronsstig en sagði að BSÍ
gæti ekki ætlast til að fá greiðslur vegna slíkra ef af yrði.
Guðrún Jörgensen. Lýsti yfir ánægju með kjör Jafets og
óskaði þess að hún gæti fagnað kjöri hans í mörg ár í viðbót,
einnig var hún afar stolt af framkvæmdastjóranum frænku sinni.
Þakkaði vel fyrir sig.
Bergur Reynisson. Nefndi nokkur mál, deildakeppni og
hugsanlega forkeppni á neti. Þótti erfitt að fá styrki fyrir
starfsemi BR og vonaði að fá úthlutun með BSÍ sem milligönguaðila.
Taldi að kennsluborð í BBO gætu nýst vel í fræðslustarfinu. Helga
svaraði því og sagði að þær bentu alltaf á þetta í starfi sínu.
Að lokum kom Jafet forseti, nefndi aukna aðsókn að
Bridgeskólanum, sagði frá minnisverðum fundi með Aubry Yves forseta
EBL á NM í BláaLóninu. Vonaðist eftir að geta orðið þáttakandi á
kjördæmamótinu í Færeyjum 15.-18.maí, það afar spennandi að
heimsækja Færeyinga. NM 2015 verður haldið Færeyjum sem aftur gæfi
tilefni til að styrkja vinskapinn. Hann sleit ársþinginu með
kjörorðum BSÍ:
"Bridge gerir lífið
skemmtilegra"
Fundarritun: Jörundur Þórðarson