Stjórnarfundur 16.sept. 2013
9. Fundur í stjórn Bridgesambandi Íslands, haldinn 16. september, 2013 kl. 16.00
Mætt voru Jafet, Ólöf, Árni Már, Guðný, og Jörundur
Garðar, Helga og Örvar boðuðu forföll
1. Fundargerð síðasta fundar samþykkt
2. Tölvumál. Jafet ræddi um nýja heimasíðu eða breytingu á henni. Allar slíkar breytingar eru dýrar og óvíst hverju slíkt skilar. Hins vegar er hægt að gera ýmislegt til að auka nýtingu og umferð á heimasíðunni. T.d. er hægt að safna nöfnum og netföngum spilara, jafnvel í hinum ýmsu félögum BSÍ. Mikilvægt er líka að heimasíðan sé vel virk og stöðugt sé efni hennar uppfært með nýjustu fréttum. Jafet mun stofna hóp um þetta verkefni. Einnig var rætt um fésbókarsíður, Bridgefélag Kópavogs er nýbúið að stofna eina slíka, margar myndir þar. Einnig þótti lofsvert framtak Aðalsteins Jörgensens en hann hefur verið feykiöflugur við að taka myndir og setja þær inn á fésbókarsíðu BSÍ.
3. Landsliðsmál. Næsta verkefni er EM 21.júní - 2.júlí 2014 í Opatija, Króatíu. Aður stóð til að keppnin yrði haldin í Búlgaríu, en þeir urðu að ganga út úr því þar sem fjáröflun brást. Stefnt er að því að hefja landsliðsæfingar fljótlega bæði fyrir opinn flokk og kvennaflokk. Þó er ljóst að aðeins verður lið sent í opnum flokki en mjög mikilvægt er einnig að byggja upp gott lið í kvennaflokki. Fundur í landsliðsnefnd verður fljótlega þar sem farið verður yfir þessi mál og starfið skipulagt. Rætt var um val í landsliðið, jafnvel hvort ekki séu sjálfvalin tvö pör af þremur, hvort keppa ætti um þriðja parið. Einnig bent á að hefðin sé að nefndin eða einvaldur velji liðið fyrir EM. Fljótlega verði auglýst eftir pörum sem áhuga hafi á að keppa í landsliði eða æfa með því í báðum flokkum.
4. Ársþing. Undirbúningur fyrir Ársþingið er á fullu, ársreikningar eru hjá endurskoðendum, ársskýrslan er líka í samningu og verður uppkast að henni fljótlega sent til stjórnarmanna til skoðunar. Einnig var rætt um störf heiðursmerkjanefndar.
5. Stjórn BR hefur verið í sambandi við forseta BSÍ og rætt erfið fjármál sín, rekstur félagsins stendur varla undir sér. Bent var á að flest félög utan Reykjavíkur væru með tekjur af sjoppu, sem BR væri ekki með, auk þess væru þau flest þannig sett að þau ættu eigin sagnbox , fartölvu og BridgeMate. Leiga væri lægri fyrir þau flest enda oft að einhverju leyti styrkt af viðkomandi sveitarfélagi. BR fengi hins vegar enga styrki frá Reykjavíkurborg en með því að hafa starfsemina þarna væri það að hjálpa BSÍ verulega við rekstur á Síðumúla 37. Jafet og stjórnarmenn BR munu fljótlega eiga fund með ÍTR og ræða þessi mál þar. BSÍ mun einnig lækka leigu til BR fyrir þau föstudagskvöld sem eru framundan.
6. Af Bridgehátíð. Búist er við aukinni aðsókn - hætt við að hótelið sé að verða of lítið fyrir þennan stórkostlega viðburð sem sífellt er að auka hróður sinn. Norðmenn ýmsir nú þegar búnir að skrá sig til þátttöku og jafnvel búist við Mónakó-sveitinni frægu. Bent á að lagfæra þurfi nafn mótsins bæði á heimasíðu og í mótaskrá, einnig þurfi að bæta við nöfnum styrktaraðila (Íslandsbanka og WOW) BSÍ inn á heimasíðuna.
7. Önnur mál.
Ólöf benti á mikla þörf á endurnýjun á spilum. Höfum hingað til notið samnings við Icelandair en sá samningur er útrunninn. Jafet benti henni á að fá tilboð frá nokkrum aðilum, einnig að hafa samband við EBL (Yves Aubry) sem hefur góðar tengingar þarna. Einnig er líklega hægt að fá ákveðið fyrirtæki í samstarf við okkur til að fjármagna þetta í auglýsingaskyni.
Fréttaflutningur. Einhverjar breytingar eru í gangi hjá Morgunblaðinu, okkar góðkunni fréttaflytjari , Arnór Ragnarsson er að hætta og hefur verið að biðja fólk að senda fréttir í framtíðinni á brids@mbl.is. Það hefur verið gert en virðist ekki virka nógu vel að sögn Guðnýjar.
Fræðsla. Guðný segir að öll bridgefræðsla í Rimaskóla hafi verið í biðstöðu vegna samræmdra prófa en sé að fara í gang. Fjórir ungir spilarar eru að fara til Azoreyja 24-29.sept. á mót fyrir 30ára og yngri (Kópavogsbúarnir Benedikt Bjarnason og Tómas Þorsteinsson og Borgfirðingarnir Heiðar Baldurssonog Logi Sigurðsson). Jörundur hefur verið í samstarfi við Heimi Hálfdánarson í MK sem er að reyna að koma af stað hóp í bridge. Heimir hefur góðar vonir um að það takist vel, hann verður með kennslu í MK og munu þeir Jörundur og Árni Heimir verða honum innan handar við kennsluna. Hann stefnir að því að fara með hópinn niður í BSÍ og reyna að fá fleiri til að mæta þangað. Jörundur hefur verið að þýða bækur eftir Dorothy Hayden Truscott sem eru sérlega gerðar til að leiðbeina nýliðum bæði í sambandi við spilamennsku og sagnkerfi SAYC. Heimild hefur fengist til að setja hluta af því efni á heimasíðu BSÍ.
Ólöf ætlar að lagfæra mótaskrá, paramót færist úr febrúar til 22.-23. mars
Næsti fundur verður miðvikudaginn 16. okt. kl 16.00.