Stjórnarfundur 4.júní 2013
þriðjudagur, 11. júní 2013
7. Fundur í stjórn Bridgesambandi Íslands, haldinn
4. júní, 2013 kl. 16.00
Mætt voru Jafet, Ólöf, Árni Már, Garðar, Guðný, Helga og
Jörundur
Örvar boðaði forföll
1. Fundargerð síðasta fundar samþykkt
2. Norðurlandamótið í bridge - GPA sem hafði tekið að sér að
stýra liðinu í opna flokknum forfallaðist á síðustu stundu og var
Ragnar Hermannsson beðinn um að taka við liðsstjórn. Árangurinn var
góður, liðið náði fljótlega forystu og hélt henni allan og skilaði
heim NM titli. Sex lið kepptu um titilinnauk okkar: Danir, Svíar,
Finnar, Norðmenn og Færeyingar. Liðið þekkja allir: Jón og
Þorlákur, Bjarni og Aðalsteinn, Ragnar og Guðmundur Snorra. Í
kvennaflokknum voru aðeins 4 lið, þau allra sterkustu. Hvorki
Finnar né Færeyingar sáu sér fært að senda lið. Ásgeir Ásbjörnsson
var liðsstjóri, liðið: María og Bryndís, Ólöf og Svala, Anna og
Guðrún. Þrátt fyrir mótlæti og erfiða andstæðinga tókst nokkuð vel
til og litlu munaði að þeim tækist að ná þriðja sætinu. 4 danskar
stúlkur náðu nokkuð örugglega að landa sigri þrátt fyrir þreytu á
köflum. Almenn ánægja var með mótshaldið og verðlaunaafhending
síðan í Víkingaskipssafninu. Menntamálaráðherra sendi BSÍ
hamingjuóskir og býður til móttöku í tilefni af titlinum. Ákaflega
gott að finna hlýhug frá ráðuneytinu.
3. Stjórnarfundur forráðamanna Bridgesambanda Norðurlanda 24.
maí. Jafet greindi frá þessum fundi sem haldinn var í húsakynnum
Bláa Lónsins. Guðný og Garðar sátu fundinn með Jafet. Danir fara
með stjórnina og endurkjörnir (Fleming og ritari). Þarna voru
einnig Jan Kamras og Jens Auken fulltrúar Norðurlanda í EBL sem
fulltrúar annarra NMlanda. Micky Melander ræddi einnig möguleika á
seniora flokki.Reikningar sambandsins samþykktir enda
fjárhagsstaðan réttu megin við núllið. Rætt þar um nýliðun og góðan
árangur í gegnum NORDIC BBO. Í seinni hluta fundarins ávarpaði
gestur fundarins hinn ágæti forseti EBL, Yves Aubrey,
fundinn. Sýndi enn og aftur hve mikla áherslu hann leggur á gott
samstarf við Nordic bridge. Spurt um áhuga BSÍ til þess að taka að
sér sjá um bikarkeppni Evrópu (Championship). Það er nokkuð dýrt
dæmi og þarf sterkan stuðning opinberra aðila vegna hárra verðlauna
(20 þús evrur) . Þurfum að svara þessu innan mánaðar. Kostnaður við
að halda NM varð nokkur en vel viðráðanlegur. Að loknum fundi var
gestum boðið bað og útsýnisferð um Reykjanesið.
4. Landsliðsmál. Ánægja með störf landsliðsnefndar, störf GPA og
ÁÁ. Næst er stefnan tekin á Evrópumót í Búlgaríu. Rætt verður við
keppnispörin, stefnt að sex pörum eða meira á æfingar í
september.
5. Fjármál Bridgesambandsins eru jákvæð enda var þetta ár
tiltölulega létt, næsta ár verður þungt, mikilvægt að nýta afgang í
fræðslu og eiga borð fyrir báru vegna EM. Jafet og Ólöfu falið að
sjá um ávöxtun eða einhverja uppgreiðslu lána. Jafet mun senda
Menntamálaráðuneytinu bréf í sumar við undirbúning fjárlaga, fara
fram á hækkun beins framlags og að sérstakur styrkur sem samsvaraði
einum kennaralaunum yfir árið kæmi til að mæta kostnaði við kennslu
bridge í skólum
6. Sumarbridge Ágæt þátttaka undir góðri stjórn Sveins R
Eiríkssonar, allt upp í 34 pör á miðvikudögum. Eitt kvöldið var
einnig dregið í fyrstu umferðina í bikarkeppninni. Henni á að ljúka
30. júní. Vitað að gott er að stilla saman strengi í Sumarbridge
fyrir bikarleik.
7. Dagsetning á ársþing á komandi hausti er 20. okt.
8. Kennslu rit frá Hollandi, kennsla bridge í skólum. Gagnvirkt
kennsluforrit sem hefur reynst vel er í notkun í Hollandi. Kannað
verður með frekari dreifingu til annarra landa. Einnig var rætt um
ungliðastarf í Borgarnesi, sjálfsagt að stuðla að frekari framgangi
unga fólksins þar. Haft verður samband við Ingimund. Einnig verið
fræðsla á vegum Ingibjargar Halldórsdóttur í Kvennaskólanum
9. Bridge í fjölmiðlum. Hinn ágæti Arnór Ragnarsson sem séð
hefur um fréttaflutning af bridge í Morgunblaðinu er að hætta
störfum þar. Mikilvægt að finna annan fulltrúa í þetta starf.
Einnig var rætt um hve mikilvægt það sé að matreiða fréttir í
fjölmiðla, þeir þurfa fullunnar fréttir. Jafet hefur rætt við
forsvarsmenn Fréttablaðsins og mun einnig ræða við Arnór.
10. Næsti fundur verður boðaður með dagskrá miðvikudaginn 14.
ágúst