Stjórnarfundur 13.desember

mánudagur, 17. desember 2012

  2. fundur stjórnar í BSÍ haldinn fimmtudaginn 13. desember, 2012  kl. 16.00 
 Allir voru mættir.

Dagskrá

1.       Fundargerð síðasta fundar samþykkt
2.       Reykjavík Bridgefestival - Icelandair; Í Bridgehátíðarnefnd eru nú Jafet, Sveinn, Gunnlaugur Karls, Kristján Blöndal og við bætast Guðmundur Snorrason og Rúnar Einarsson. Vel horfir með þátttöku, Tor Helness úr hinni frægu Mónakó sveit mun koma með félaga, - litlum sal hefur verið bætt við og annar verður til vara  - samningur Hótel Natura að komast á hreint - allmörg herbergi til afnota fyrir gesti BSÍ og keppnisstjóra. Í stjörnutvímenningi verða ýmis fyrirtæki, einnig möguleiki á öðrum styrktaraðila fyrir mótið (Wow air). En Icelandair heldur áfram að hjálpa okkur með flugfargjöld sem skiptir afar miklu máli. Enn er verið að skoða styrktaraðila vegna endurnýjunar á spilum.
3.       Frumvarp til fjárlaga. Nú er stutt í þriðju umræðu fjárlaga, erfitt að hafa áhrif til hækkunar framlags til okkar, enda þungar búsifjar í ríkisrekstrinum en þó má benda á hækkanir til afrekssjóðar og skákhreyfingar. Áfram verður reynt við að fá leiðréttingu.
4.       Þátttaka í erlendum mótum. Bjarni og Aðalsteinn munu fara aftur til London og hefur verið samið við þá með sama hætti og í fyrra. (Flug greitt, hlutdeild í verðlaunum). Einnig er í vor  æfingamót í Bonn. Auk þess hafa Jón og Þorlákur þegið boð Dana um þátttöku í móti í Kaupmannahöfn. Í febrúar verður keppni hér heima um landsliðssæti.
5.       Bridgekennsla - dreifing á bæklingi. Eftir áramót verða heimsóknir í bæði Rimaskóla og Vatnsendaskóla. Bæklingnum hefur verið dreift allvíða, til stendur að senda hann í alla framhaldsskóla. Væntanleg er kynning á Suðurnesjum í samstarfi við skákhreyfinguna. Enn hefur ekki verið ráðið í kennslustöðu, beðið eftir fjárlögum.
6.       Önnur mál.
   a.       Framundan er NM yngri spilara, spurt um samþykki fyrir því að leyfa sveit/sveitir frá Hollandi og er það samþykkt.
 b.      Minnt er á minningarmót um Jón Ásbjörnsson sem haldið verður 30. des
 c.       Jafet mun ræða við ungan tölvumann um snyrtingu á heimasíðu
 d.      Ólöf óskar eftir að samningi við Securitas verði sagt upp. Mánaðargjald hefur verið 18 þúsund á mánuði auk tíu þúsunda fyrir hvert útkall, virkilega íþyngjandi. Ekki þarf annað en að gluggi sé skilinn eftir opinn. Samþykkt.
 e.      Spurt var um bréf til Norðurlandaþjóða vegna væntanlegs NM móts. Bréfið er í burðarliðnum, síðan þarf að halda utan um öll þessi samskipti, setja upp heimasíðu fyrir mótið.

Fleira var ekki tekið fyrir, næsti fundur verður miðvikudaginn 9.jan kl 18 á nýju ári.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar