Stjórnarfundur 18.október 2012
miðvikudagur, 24. október 2012
9. fundur í stjórn BSÍ haldinn fimmtudaginn18. okt. 2012 kl
16.00
Mættir voru Árni Már, Garðar, Guðný, Helga, Jafet, Jörundur og
Örvar boðaði forföll.
1.
Fundargerð síðasta fundar samþykkt
2.
Undirbúningur fyrir ársþing, skýrsla og ársreikningur. Ekki eru
neinar lagabreytingar, heldur verða breytingar vegna
keppnisreglugerðar og farið verður yfir breytingar varðandi
"alert". Guðmundur Baldursson hefur verið fenginn til að sjá um
fundarstjórn og undirritaður um fundarritun. Fundurinn mun hefjast
kl 13 á sunnudag. Ólöf verður tilbúin með ársskýrslu sem Jafet
flytur. Einnig mun Jafet kynna og útskýra reikningana. Formenn
nefnda munu síðan greina frá starfinu innan þeirra.
3.
Fjárhagsáætlun var lögð fram fyrir næsta starfsár, þar sem aðeins
eitt mót er á dagskrá er reiknað með rekstrarafgangi sem ætti að
vinna upp megnið af halla þessa árs. Reynt verður að ná sambandi
við fjáröflunarnefnd og reyna að koma á framfæri þeirri
fjárhagsstöðu sem BSÍ stendur frammi fyrir eftir gífurlega erfitt
rekstarár. Þátttaka í Evrópumóti, heimsmeistaramóti og Ólympíumóti
auk æfingamóta sem og þátttöku nokkurra landsliðsmanna í
Nationalmótum og mótinu í Örebro.
4.
Landsliðsæfingar hófust föstudaginn 5. október. Jafet bauð menn
velkomna og greindi frá því að frammistaða para m.a. í úrtökumóti,
í lok febrúar, myndi raða pörum í landslið bæði í opnum flokki og
kvennaflokki sem tekur þátt í NM í maí sem hér verður haldið.
Guðmundur Páll mun hafa aðalumsjón með æfingum og honum til
aðstoðar verða Ásgeir Ásbjörns, Sveinn Eiríks og Björgvin Már
Kristins.
5.
Kennslubæklingur fyrir byrjendur í bridge er kominn út, hann verður
notaður til kennslu bæði í grunn- og framhaldsskólum og verður
einnig sendur til allra félaga. Þýðandi í sjálfboðavinnu var Árni
Már Björnsson, saminn af sænska Bridssambandinu og prentaður hjá
Sölku. Reiknað með að Guðný og Helga fari í Hörðuvallaskóla,
Vatnsendaskóla og Rimaskóla. Jafet hefur verið í sambandi við
sunnudagsblað Mbl og Bylgjuna til að kynna útgáfuna.
6.
Um Reykjavík Bridge Festival, enn er verð á sölum ekki frágengið en
loforð er fengið um aðgang að tveimur aukasölum vegna mikillar
eftirspurnar. Einnig búið að taka frá mikið gistirými. Enn er óvíst
um þátttöku hinnar frægu Mónakó sveitar. Reynt verður að sækja um
styrk til borgarinnar.
7.
Önnur mál. Samstarf við Skáksambandið um húsnæði er líklega úr
sögunni, ýmislegt svo sem borðastærð ósamrýmanlegt. Rætt hefur
verið við starfsmenn banka sem hafa með húseignir að gera - allar
íbúðir seljast fljótt en sama gildir ekki um atvinnuhúsnæði og
minnst á húsnæði sem til greina kynni að koma. Næsti fundur
15. nóvember kl 16