Stjórnarfundur 15.mars 2012
4. fundur í stjórnar BSÍ haldinn fimmtudaginn 15.mars, 2012 kl. 16.00
Mættir voru Jafet Ólafsson, Árni Már Björnsson, Garðar Garðarsson, Guðný Guðjónsdóttir, Jörundur Þórðarson, Ólöf Þorsteinsd og Örvar Óskarsson. Helga Bergmann boðaði forföll.
1. Fundargerð síðasta fundar samþykkt
2. Fræðslumál: bridgekennsla í skólum er hafin. Freyja Friðbjarnardóttir hefur byrjað með námskeið í Ingunnarskóla og hefur hún notið aðstoðar bæði Guðnýjar og Jafets. Árni Már hefur einnig boðið aðstoð. Samþykkt að greiða allan eldsneytiskostnað. Til stendur að þetta starf haldi áfram næsta haust og þá í fleiri skólum. Mikilvægt að vera með einn eða fleiri starfsmenn til að sinna þessari fræðslu. Einnig er verið að skoða aðkomu að leikjanámskeiðum í sumar, t.d. hjá Val eða Víking. Einnig hefur Guðný verið í sambandi við TÍ og fleiri skóla.
3. Bridgebæklingur er enn í hönnun hjá Sölku, stefnt að hann verði klár innan tveggja vikna, 2-3000 eintök.
4. Landsliðið verður í öruggri umsjón Björns Eysteinssonar, á heimasíðu BSÍ hefur komið fram að búið sé að velja landslið fyrir EM. Þeir eru komnir í úthaldsþjálfun hjá World Class sem hefur ákveðið að styðja BSÍ eins og þeir hafa gert áður.
5. Samningur við Icelandair rennur út í lok árs, stefnt að endurnýjun. Einnig er unnið að því að fá fleiri styrktaraðila fyrir landsliðið, sérstaklega hvað varðar ferðakostnað. Jón og Þorlákur eru núna á Nationalmóti a vegum styrktaraðila. Í maí er aftur stefnt að fjáröflunarmóti í Hörpu.
6. Bridgeblaðið -aðstandendum þess hafa verið í sambandi við stjórnina, rekstrargrundvöllur er erfiður, BSÍ mun aftur veita nokkurn styrk, enda verður sagt frá starfsemi BSÍ í blaðinu. Stjórnin telur að bridgefréttir og bridgeþrautaumfjöllun þurfi gagnvirkni til að vekja áhuga. Einnig telur stjórnin að endurnýja þurfi heimasíðu BSÍ.
7. Sumarbridge. Rætt um að að sumarbridge verði með svipuðu móti og síðasta sumar, spilað mánudaga og miðvikudaga, einnig megi skoða spilamennsku einn föstudag í mánuði. Rætt verði við Svein R Eiríksson.
8. Úrslitin í sveitakeppni. Ráðgert að halda þau í húsnæði BSÍ. Húsnæðið okkar er nógu stórt en stefnt að því að ljúka við leysa úr hljóðvandamálum. Reynt hefur verið til þrautar að semja við Loftleiðahótelið án árangurs. Erfitt að fá salinn á verði sem er viðráðanlegt. Það er miður því ásýnd mótsins er öllu glæsilegri þegar mótið er haldið þar.
9. Önnur mál. Mikilvægt að fá fleiri sali hjá Loftleiðahótelinu fyrir Bridgehátíð, vonast til að fá hálfan Blómasalinn. Einnig verði skoðaðar aðstæður á Grand Hótel. Laugardalshöll kemur einnig til greina en þá þyrfti að skipuleggja rútuferðir.
Uppgjör síðustu þriggja móta var lagt fram á fundinum og útkoma jákvæð.
Stjórninni barst bréf frá stjórn Bridgefélags Kópavogs vegna spilamennsku BR þriðja hvert fimmtudagshvöld. Jafet falið að svara bréfinu.
Að lokum var nokkur umræða um agavandamál, um vanstillingu spilara.
Næsti fundur verður boðaður með dagskrá þriðjudaginn 17. apríl kl 16.