Stjórnarfundur 12.janúar 2012
þriðjudagur, 17. janúar 2012
2.fundur í stjórn BSÍ haldinn fimmtudaginn 12. janúar, 2012 kl.
16.00
Mættir voru Jafet Ólafsson, Árni Már , Garðar Garðarsson, Guðný
Guðjónsdóttir, Ólöf Þorsteinsd, Jörundur Þórðarson, Helga Bergmann
og Örvar Óskarsson.
1. Fundargerð
síðasta fundar samþykkt
2. Iceland
express mót- Reykjavík bridge festival Bridgehátíð nr. 31- Ólafur
Ragnar, forseti setur mótið. BSÍ fær 2 herbergi til afnota fyrir
mótstýringu. Þær góðu fréttir voru að berast að Zia verður með á
mótinu. Hátíðin hefst nú á þriðjudegi með því að þýski spilarinn
Mikael Gromulev verður með fyrirlestur kl 18. síðan tvímenningur á
vegum BR þar sem 1. verðlaun eru þátttökugjald fyrir tvímenning
hátíðarinnar. Á miðvikudag verður Stjörnutvímenningurinn, enn
vantar styrktaraðila. Talsvert góð skráning nú þegar í öll
mótin.
3. Fræðslumál -
þýðing á 40 bls sænskum bæklingi, Árni Már er á kafi við þýðinguna,
vonast er til að tilbúið verði til prentunar um miðjan febrúar.
Hann telur námsefnið henta jafnvel fyrir 12-13 ára. Ólöf beðin um
að nálgast gögnin á tölvutæku formi með hágæða útliti.
Örvar benti á bandaríska síðu þar sem fram koma kostir bridge
til að auka námsþroska nemenda, bæði varðandi talnameðferð,
einbeitingu og rökhugsun. Þar eru einnig kennslugögn og fleira sem
snýr að foreldrum, nemendum, bridgespilurum, leiðbeinendum og
skólayfirvöldum. http://www.bridgeatschools.org/.
Samþykkt að opna fyrir mannaráðningar til að setja
bridgefræðsluna almennilega í gang. Þar gætu jafnvel verið
námsfólk, skólaliðar og kennarar í hlutastarfi.
4. Landsliðsmál
- fyrirkomulag. Björn Eysteinsson mætti á fund með nefndinni og
farið yfir verkefnin framundan, þar ber hæst Evrópumótið í lok júní
í Írlandi. Einnig Ólympíumót í Cardiff í Wales 18.-26. september.
Einnig fylgdu þessu 2-3 æfingamót (Bonn - Köben). Sú spurning sett
fram hvort ekki þurfi að vera einhver skilyrði um þátttöku á
innanlandsmótum. Síðan rætt um ráðningu á landsliðseinvald sem
hefði einnig yfirumsjón með þjálfun. Landsliðsnefnd mun sjá um
framkvæmd mála og mun forseti gera grein fyrir málum reglulega á
stjórnarfundum.
5. Auglýsing -
kynning á bridge. Falleg auglýsing um bridge hefur verið hönnuð og
kemur hún til með að birtast í helstu prentmiðlum. (Morgunblaðið og
Fréttablaðið)
6.
Fjárhagsáætlun. drög að fjárhagsáætlun upp á ca 30 milljónir var
lögð fram á fundinum. Helstu kostnaðarliðir eru laun, fræðsla (gæti
farið upp í 3 milljónir), þátttaka í erlendum mótum. Tekjuöflun er
frá ríki, tekjur af mótum en einnig auglýsingar, styrkir og
flugmiðar.
7. Fundur EBL í
Budapest 2.-5. febrúar - ritara og Ólöfu falið að skoða þetta
nánar.
8. Samningur við
Iceland express framlengdur til 25. maí - Forseti átti fund með
Skarphéðni forstjóra. Þessi samningur okkur geysimikils virði.
900.þús + 300þús í verðlaun, að auki góður samningur við Flugleiðir
um nokkra flugmiða.
9. Önnur
mál. Bjarni og Aðalsteinn á leið til London í mótið sem þeim
tókst að vinna í fyrra. Ferðir og mótsgjald greitt, samið um hlut í
verðlaunum.
Verkfræðingur frá Mannvit kom til að skoða húsnæði BSÍ m.t.t.
hljóðburðar. Benti strax á 2-3 lausnir, skipta um loftaplötur yfir
í Heraklith plötur (dýrasta lausnin), setja glerullarplötur í
loftið milli ljósa (mun ódýrara) auk þess að festa tuskur á bera
veggi. Ólöf er með smið í verkið og mun strax 2.fundur í stjórn BSÍ
haldinn fimmtudaginn 12. janúar, 2012 kl. 16.00