Stjórnarfundur 3.nóvember 2011
mánudagur, 7. nóvember 2011
12. fundur í stjórn BSÍ haldinn fimmtudaginn 3. nóv. kl.
16.00
Mætt á fundinn voru Jafet Ólafsson, Garðar Garðarsson,
Guðný Guðjónsdóttir, Jörundur Þórðarson,Ólöf Þorsteinsdóttir og
Sveinn R Eiriksson. Árni Már Björnsson og Kristinn
Kristinsson boðuðu forföll.
Dagskrá
-
1. Fundargerð síðasta fundar samþykkt.
-
2. Heimsmeistaramótið í Hollandi. Jafet sagði frá hvernig gekk á
mótinu. Greinilegt að Íslendingar eru hátt metnir í bridgeheiminum.
Hann sagði frá þjálfunarmálum nýkrýndra heimsmeistara,
styrktarmálum, þar má helst nefna Hans Melker. 8 spilarar eru í
landsliðshópnum og spila þeir reglulega við erlenda spilara.
Frammistaðan hjá okkar spilurum er náttúrlega mjög góð. 5.-8. sæti
af 22 bestu þjóðum heims. Það þurfti sterkustu þjóðina til að ýta
okkur úr keppninni. Landsliðsnefndin fundaði síðasta laugardag og
ræddi um undirbúninginn, þjálfun og keppnina sjálfa. Gátum við gert
betur? Hann fór einnig yfir kostnaðartölur. Hann mun taka saman
punkta og senda á stjórnina.
-
3. Frestuðu ársþingi verður haldið áfram föstudaginn 18.
nóvember. Nú liggja ársreikningar fyrir, tilbúnir fyrir
skoðunarmenn. Tekjur virðast lækka um 3 milljónir mill ára, útgjöld
lækka um 1 milljón vegna ríkulegs aðhalds. Spurning hvort eitthvað
vanti á undirbúning fyrir þingið. Nú þegar liggur fyrir ein
lagabreytingatillaga í sambandi við Íslandsmótið í tvímenningi.
Einnig verður tillaga um að öll mót á vegum BSÍ byrji kl. 10 á
laugardögum og sunnudögum. Með því móti verði engin spilamennska
eftir kvöldmat á laugardögum. Garðar taldi að sá byrjunartími kynni
að fæla frá. Boðað verður til stjórnarfundar fimmtudag 17. nóv. kl
16.
-
4. Erlend mót 2011 og 2012. Ekkert NM á dagskrá. Grikkir hafa
gefið það frá sér að halda EM sem vera átti næsta sumar í
Grikklandi. Helst er rætt um að annaðhvort Hollendingar eða Ítalir
hlaupi í skarðið og bjargi málum. Næsta Ólympíumót verður líklega í
Manchester í Englandi. Grant Thornton mun mæta í Þýskalandi og
keppa fyrir okkar hönd eftir hálfan mánuð í bikarkeppni Evrópu. Þar
verða bræðurnir Hrólfur og Oddur Hjaltasynir, Sveinn Eiríks og
Júlíus Sigurjónson og að lokum Magnús E Magnússon.
-
5. Bridgekennsla í skólum. Allir sammála um mikilvægi þess
starfs. Jafet og Garðar munu sjá um að láta þýða sænskan bækling
sem er heppilegur til dreifingar til skólanema. SRE vill dreifa
spilum í skólana, líka vinnuskólann. Telur vænlegast til árangurs
að einbeita sér að framhaldsskólunum, tölvur, BBO o.fl. flestir
fylgjandi því að ráða mann í þetta 2x2 mánuði á ári, hlutastarf?
Kannanir sýna betri árangur krakka í námi sem fá bridgekennslu.
-
6. Kynningar- og fjölmiðlamál: Björn Þorláks vann fyrir okkur
við að koma fréttum af Bermúdamótinu í fjölmiðla. Efasemdir eru
meðal sumra fréttamanna um hvort bridge sé íþrótt. Næsta
fjölmiðlaátak verði í gúrkutíðinni í janúar. Stjórn BSÍ fagnar nýju
bridgetímariti sem Ísak Örn Sigurðsson hefur sett af stað. Hvetur
alla bridgespilara til að styðja við þetta góða framtak, bæði með
því að gerast áskrifendur og auglýsa hjá honum. Auglýsingar og
áskrift: Rúnar Einars í síma: 842-0252 tölvupóstur: bridgeblaðið@bridge.is
-
7. Iceland Express mót- Reykjavík bridge festival. Ekki er enn
frágengið með húsnæði, vonast til að samningar takist við
Loftleiðir. Ólöf,Sveinn og Jafet ganga í málið strax.
-
8. Önnur mál. Stjórn BSÍ hefur borist bréf frá Guðrúnu Jörgensen
og Huldu Hjálmarsdóttur þar sem þær kvarta undan úrskurði
keppnisstjóra, sem þær telja rangan. Stjórnin hefur skoðað málið en
mun ekkert aðhafast í þessu máli enda ekki stjórnar að dæma í
málum.
Næsti fundur verður 17. nóvember.
Jörundur