Stjórnarfundur 16.desember 2010
3.stjórnarfundur BSÍ
Stjórnarfundur í BSÍ Fundur haldinn 16.des. 2010 kl. 16.30 Mættir á
fundinn voru Jafet Ólafsson, Guðný Guðjónsdóttir, Árni Már
Björnsson, Garðar Garðarsson, Jörundur Þórðarson, Ólöf
Þorsteinsdóttir.og Sveinn R Eiriksson. Forföll boðaði Kristinn
Kristinsson
1. Fundargerð síðasta fundar samþykkt
2. Fræðslumál: Stjórn BSÍ barst bréf frá
Bridgesambandi Austurlands.
Spilamennska hefur dregist nokkuð saman að undanförnu bæði þar og
sums staðar annars staðar á landinu og er óskað eftir aðstoð við
fræðslu. Það er ljóst að bridgespilamennska hefur átt undir högg að
sækja að undanfarin ár, nýliðun er takmörkuð og alveg skýrt að
tölvuleikir hafa áhrif. Mjög mikilvægt er að allt kapp verði lagt á
það í öllum félögum að styðja nýliða og stuðla að bridgekennslu í
framhaldsskólum. Jafet og Ólöfu var falið að svara umræddu
bréfi.
3. Iceland express bridgemótið, janúar 2011. Eins
og komið hefur fram verða endurbætur og lagfæringar á Hótel
Loftleiðum fram á sumar.
Spilamennska sem þar hefur farið fram færist í húsnæði í
Síðumúlanum sem stendur ónotað (efri hæð handan götunnar). Ágæt
lofthæð er þar og góð aðkoma. Heimasíðan fyrir mótið er enn ekki
tilbúin en á meðan verða upplýsingar á heimasíðu BSÍ. Samningur við
hótelið er í vinnslu, þar kemur Bridgehátíðarnefnd og Ólöf að
málum. Hótel mun sjá um allan akstur fyrir hótelgesti á mótin.
Undirbúningur fyrir mótið er á fullu.
4. Landsliðsmál: Forseti hefur verið í góðu
sambandi við Björn Eysteins og þjálfara og eru æfingar í góðum
gír.
5. Beiðni um styrk vegna þátttöku í mót í Svíþjóð
barst stjórninni. Því
miður verður stjórn BSÍ að hafna þessari ósk, enda á BSÍ fullt í
fangi með að standa straum af miklum kostnaði við landslið, rekstur
húsnæðis og fræðslumál.
6. Fjárveitinganefnd - samanburður á framlögum.
Forseti BSÍ hefur lagt mikla vinnu í að kynna fjárveitinganefnd
stöðu BSÍ og hefur ekki haft árangur sem erfiði því í fjárlögum eru
framlög til BSÍ lækkuð um 38% á síðustu 2 árum. Framlagið lækkar úr
13,8m niður í 8,4m. Það stingur í augun að í sömu fjárlögum er
styrkur til ÍSÍ, UMFÍ og til Skáksambandsins aðeins lækkuð um
12%.
. Það er líka ljóst að þátttaka okkar í Bermúda skálinni
verður mjög dýr.
Liður um ýmis íþróttamál var hakkaðu um 11,5 m.kr. í 3 umræðu
og verður sótt um framlag úr þeim lið til
menntamálaráðherra
7. Bókari fyrir BSÍ. Þetta starf er núna
umfangsminna en fyrir 2 árum þar sem rekstur á sjoppu er ekki
lengur á herðum BSÍ. Leitað verður tilboða í þetta verkefni. Stjórn
BSÍ lýsir yfir ánægju með störf núverandi bókara.
8. Lítil þátttaka kvenna í mótum. Á Íslandsmótinu
í Bötler 12.des. var
í fyrsta skipti engin kona þátttakandi. Ein kona tók þátt í
Íslandsmótinu í sagnkeppni sem fór fram 10. des. Þetta veldur
nokkrum vonbrigðum því þessi mót eru einnig hugsuð sem þjálfun
fyrir landslið. Á hitt ber samt að líta að stutt er í jól en
undirbúningur þeirra hefur oft lagst þyngra á konur. Rætt var
um að aukning hefur orðið í sumum bridgefélögum. Sú aukning hefur
ef til vill fengist þar sem góð aðstaða er og kynning er meiri,
t.d. hringt er í fólk og minnt á mót. Líklega má bæta eitthvað
þátttöku með meiri kynningu.
9. Önnur mál, næsti stjórnarfundur verður haldinn
fimmtudaginn 13. jan. 2011 kl 16.30. Skoðað var uppgjör
nokkurra móta núna í haust og koma þau öll út í plús.
Fundi slitið 17.45
Ritari.