Fundur 9.sept. 2010
föstudagur, 10. september 2010
Aukafundur í stjórn BSÍhaldinn 9. sept. 2010. Mættir voru Ólöf,
Guðný, Sveinn, Þorsteinn og Jörundur ásamt sérstökum gesti
fundarins Hjálmtý Baldurssyni. Tilefnið var fræðsluátak BSÍ í
skólum landsins. BSÍ æskir þess að Hjálmtýr taki að sér að halda
utan um alla bridgefræðslu í skólum, koma á laggirnar bridgekeppni
milli framhaldsskólanna sem væri haldin árlega. Tímasetning (jan,
feb, mars) þarf að miðast við það að verðlaunahafar geti nýtt sér
ferð um páska á Junior Camp sem fram fer árlega í Danmörku næst
(annars í Noregi eða Svíþjóð). Hjálmtýr fékk gamalt kennsluefni í
hendur (sem er upphaflega frá GPA), einnig nýtt kennsluefni
(cd-diskur með) frá Danmörku (1. bindi af fjórum um samnorræran
Standard). Aðalatriðið er að ná sambandi við stjórnendur
framhaldsskólanna og ræða við þá um hvernig hægt er að koma
bridgekennslunni að. Ef ekki næst í hóp strax þá má einnig nýta
óhefðbundna daga í skólunum til að koma bridgekynningu að. Menn
voru sammála um að setja fram frekari hugmyndir á framhaldsfundi
sem boðaður yrði fljótlega. Meginvinnan yrði í byrjun hverrar annar
meðan verið er að starta hópum sem og í kringum
framhaldsskólakeppnina.Einnig var rætt um kennslu í grunnskóla en
talið erfiða í framkvæmd. Ábending vegna fyrri umræðna. Ef fáir
sækja um frá e-m skólum má gjarnan sameina 2 eða fleiri hópa og
kenna í Síðumúla 37 eða í öðrum hvorum skólanum eftir því sem
aðstæður leyfa. Einnig kemur til greina að BSÍ styrki kennslu ef
lítið vantar upp stærð hóps til að hann dæmist kennsluhæfur.