Stjórnarfundur 11.feb. 2010
4. Stjórnarfundur BSÍ fimmtudaginn 11. feb. 2010 kl 16.30
Mættir Þorsteinn Berg forseti, Garðar Garðarsson, Guðný Guðjónsdóttir, Jörundur Þórðarson, , Ólöf Þorsteinsdóttir, Ragnheiður Nielsen og Sveinn R. Eiríksson. Kristinn Kristinsson boðaði forföll.
-
1. Skýrsla framkvæmdastjóra: Búið er fara yfir bókhaldið yfir Bridgehátíð, ekki er búið að fá allar tölur en allt bendir til að hún standi nokkurn veginn undir sér. Talin þörf á að kanna hvort hægt sé að eignast öfluga færanlega ljósritunarvél. Einnig greindi framkvæmdastjóri frá því að Sólveig G. Kristjánsdóttir sem hefur séð um ræstingar ætlar að hætta. Stjórn BSÍ vill þakka henni góð störf og óskar henni velfarnaðar. Enn er ekki búið að hreinsa og bóna stigagang. Viðgerðum á dúk er ekki lokið. Garðar og framkvæmdastjóri ræddu við Svíþjóðarfara (lið ungmenna) og settu ungmennin fram metnaðarfulla æfingaráætlun. Einnig munu þau skila skýrslu að afloknu móti. Jörundur hafði sótt um styrk til Íþróttasjóðs vegna þýðingar og útgáfu á lögunum um keppnisbridge. Styrkumsókn var hafnað án útskýringa. Fundur sem verða átti í Rottneros í Svíþjóð hjá Nordisk Union fellur niður. Honum verður frestað fram í júní og verður í Oostende á meðan á Evrópumótinu stendur
-
2. Skýrsla Bridgehátíðarnefndar Mjög gott samstarf hefur tekist við stjórnendur Hótels Loftleiða. Þeir hafa sýnt mikinn áhuga á því að tengjast bridge á Íslandi og vilja veg Bridgehátíðar sem stærstan. Vonir standa til að lengja hátíðina, það var m.a. gert með því að BR og Miðvikudagsklúbburinn færðu spilamennsku sína yfir á hótelið. Vonandi má bæta einhverju við á næsta ári. Iceland Express styður einnig dyggilega við mótshaldið.
STARWARS Stjörnustríðskeppnin hófst með móttöku í veitingasal Loftleiða, þar pör dregin saman til að mynda sveitir. Dregið var um sterk erlend pör eða íslensk upprennandi landsliðspör til handa pörunum sem fjármögnuðu hverja sveit. Kepnnin fór síðan fram í hefðbundnum keppnissal 9 umferðir 3 spil milli para. Sponsor parið sat í AV en hitt var í NS
Miðvikudagsklúbburinn hélt spilakvöld sitt í hinum enda salarins
34 pör. Fjöldi spila: 27. Mitshell Keppnisform Butler útreikningur. -
Mótsstjóri Ólöf Þorsteinssdóttir, Reiknimeistari Tomas Brenning. Keppnisstjórar: Björgvin Már Sigurðsson og Vigfús Pálsson, Starfsmenn við BBO Jóhann Sigurðsson, , spiladreifing: Helgi Helgason
Efstu sveitir í STARWARS H.H.smíði 81, Málning 45, Þrír Frakkar 44, SFG 40, VÍS 37, Logoflex 26, H.F. Verðbréf 18
Efstu 3 pör í STARWARS
57 Þröstur Ingimarsson - Júlíus Sigurjónsson H.H.smíði
46 Hjálmtýr Baldursson - Baldvin Valdimarsson Málning
44 Steinberg Ríkarðsson - Guðmundur Baldursson Logoflex
Efsta par í Miðvikudagsklúbbi
Kristinn Kristinsson - Sigurður Steingrímsson
Pairs Tournament - Tvímenningur Bridgehátíðar
Bridgehátíðin var síðan sett í upphafi tvímenningsins en það gerði Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri, með skemmtilegri innsetningarræðu og að lokum meldaði hann fyrstu sögnina fyrir Jón Baldursson, sem var pass Margir erlendir spilarar tóku þátt í mótinu en eins og sjá má á upptalningunni hér að neðan hafa oft verið fleiri frá Bandaríkjunum. Til stendur að bæta úr því á næsta ári auk þess sem gera má ráð fyrir að dönsk pör geti komið næst enda aukið samráð við Norðurlöndin um tímasetningar móta.
Argentína 2 spilarar
England 6 spilarar
Frakkland 2 spilarar
Þýskaland 4 spilarar
Lettland 2 spilarar
Noregur 17 spilarar
Svíþjóð 23 spilarar
USA 1 spilarar
Wales 2
59
121 par. Fjöldi spila: 92. Monrad 23umferðir 4 spil á milli -
Starfsfólk mótsins
Mótsstjóri Ólöf Þorsteinssdóttir, Reiknimeistari Tomas Brenning. Keppnisstjórar: Björgvin Már Sigurðsson og Vigfús Pálsson. Starfsmenn við BBO: Hrafnhildur Matthíasdóttir, Margrét Jakobsdóttir og Guðni Sigurðsson. Spiladreifing: Arnar Guðmundsson, Baldvin Vigfússon, Erla Kristjánsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Helgi Helgason, Sara Björgvinsdóttir. Þessir starfsmenn eiga mikið lof skilið fyrir góða framkvæmd. Í Bridgehátíðarnefnd voru Sveinn R. Eiríksson, Gunnlaugur Karlsson og Kristján Blöndal
Mjög mikil aðsókn var á vefina bridge.is (2000 heimsóknir) og á Bridgehátíð BBO (15.800)
Fjölmiðlanefnd benti á að mjög mikilvægt væri að allt skipulag mótsins lægi mjög snemma fyrir til að auðvelda kynningu á mótinu og fréttaflutning. Núna fylgdust allir með handboltanum þannig að erfitt var að koma kynningu á bridge í fjölmiðla. Rætt var um að taka þarf saman sögu Bridgehátíðar en hún hófst 1982.
Úrslit í tvímenningi
1 Peter Fredin - Gary Gottlieb 772,4
2 Júlíus Sigurjónsson - Þröstur Ingimarsson 677,5
3 Johan Upmark - Frederic Wrang 617,9
Sveitakeppnin:Spilaðar eru 10 umferðir með 10 spil á milli. Fjöldi sveita 73 Efstu tvær sveitir: 1 Iceland Express 191 Peter Bertheau, Arvid Wikner, P-G Eliasson, Thomas Magnusson
2 Karl Sigurhjartarson 190 Úlfur Árnason, David Probert, Sævar Þorbjörnsson, Karl Sigurhjartarson
-
3. Skýrslur nefnda
Mótanefnd: Jörundur og Ragnheiður: Mótaskrá næsta árs er í mótun. Tímasetning úrslita Íslandsmótsins í sveitakeppni vefst fyrir nefndarmönnum. Hingað til hefur sumardagurinn fyrsti verið nýttur en næst lendir hann í dymbilvikunni.
Fyrirspurn er um notkun skrína á Íslandsmóti kvenna.
Fræðslumál. Guðný ætlar að taka að sér að kynna bridge í sumar fyrir vinnuskólann.
Reynt var að koma á kennslu í FÁ án árangurs. Gunnar Björn og Guðmundur Snorra eru tilbúnir í skólaátak í haust. Þorvaldur Pálmason hefur opnað aftur netkennsluvefinn sem notaður var í fræðsluátaki í Borgarfirði. Ýmsu viðbótarefni hefur verið bætt við. netskoli.is/bridge
Landsliðsnefnd: Vinna á fullu, 8 pör í opnum flokki og 12 pör í kvennaflokki. Mikill áhugi og öllum steinum velt. Bridsarar ganga í endurnýjun.
-
4. Önnur mál:
-
a) Þórður Ingólfsson óskaði eftir stuðningi við fræðslumál á Vesturlandi. Vísað til framkvæmkvæmdastjóra
-
b) Keppnisstjóranámskeið Evrópusambandsins í bridge 2010
Vigfús Pálsson og Sveinn Rúnar Eiríksson voru á keppnisstjóranámskeiði hjá Evrópusambandinu í bridge dagana 1. - 5. febrúar. Þarna voru staddir 100 af bestu keppnisstjórum í Evrópu og voru 86 látnir þreyta próf til að fá gráðu til að geta stjórnað á Evrópu og/eða Heimsmeistaramótum. Sveinn Rúnar náði að skella sér í topp 10 með góðu lokaprófi og fær núna gráðuna: "NBO International TD" hjá Evrópusambandinu sem gefur honum áðurnefnd réttindi. Vigfús endaði um miðju þátttakenda og kemur heim reynslunni ríkari og betur í stakk búinn til að bæði miðla af reynslu sinni og stjórna bridgemótum á Íslandi.
-
c) Einnig rætt um erlendar bridgebækur bæði sem verðlaun og til að hafa í sölu. Kennslubækur?
-
d) Ein ábending barst til stjórnar um skráningu sveita á Bridgehátíð. Vísað til Bridgehátíðarnefndar til athugunar.
Næsti fundur verður boðaður með dagskrá fimmtudaginn 5.mars.
Jörundur Þórðarson
Stjórnarfundur 11.feb. 2010