61. Ársþing BSÍ 18.október 2009
61. Ársþing sunnudaginn 18. október 2009
Þingið hófst klukkan 12 og síðan var kaffi á
boðstólum til kl 15
1. Þingsetning
Þorsteinn Berg forseti setti þingið
2. Starfsfólk
þingsins fundarstjóri og ritari: Loftur Þór Pétursson og Jörundur
þórðarson. Loftur bað fundarmenn að rísa úr sætum og minnast
látinna spilara, Sigfúsar Þórðarsonar o.fl. Þá var valið í
kjörbréfanefnd: Erla Sigurjónsdóttir, Ómar Olgeirsson, Guðný
Guðjónsdóttir og stutt hlé gert á meðan hún skoðaði
kjörbréfin.
3. Kjörbréf þingfulltrúa
athuguð og úrskurðuð. Erla las síðan upp kjörbréfin, 22 gild
atkvæði
Félag |
Fulltrúar |
Atkvæði |
Bridgefélag Akureyrar |
Frímann Stefánsson |
1 |
Bridgefélag Borgarfjarðar |
Ingimundur Jónsson |
2 |
Bridgefélag Breiðfirðinga |
Jón Jóhannsson |
2 |
Bridgefélag Breiðfirðinga |
Sturlaugur Eyjólfsson |
1 |
Bridgefélag Hafnarfjarðar |
Erla Sigurjónsdóttir |
1 |
Bridgefélag Hafnarfjarðar |
Sigurjón Harðarson |
1 |
Bridgefélag Kópavogs |
Loftur þór Pétursson |
1 |
Bridgefélag Kópavogs |
Árni Már Björnsson |
1 |
Bridgefélag Muninn & Suðurnesja |
Garðar Garðarsson |
1 |
Bridgefélag Muninn & Suðurnesja |
Eyþór Jóns |
1 |
Bridgefélag Reykjavíkur |
Guðný Guðjónsdóttir |
1 |
Bridgefélag Reykjavíkur |
Ómar Olgeirsson |
2 |
Bridgefélag Reykjavíkur |
Jörundur þórðarson |
1 |
Bridgefélag Selfoss |
Kristán Már Gunnarsson |
1 |
Bridgefélag Selfoss |
Gunnar Björn Helgason |
1 |
Bridgefélag Siglufjarðar |
Stefanía Sigurbjörnsdóttir |
1 |
Miðvikudagsklúbburinn |
Guðlaugur Sveinsson |
1 |
Miðvikudagsklúbburinn |
Sveinn Eiríksson |
1 |
Miðvikudagsklúbburinn |
Guðrún Jörgensen |
1 |
samtals |
22 |
Aðrir sem mættir voru: Ólöf Þorsteinsdóttir, Þorsteinn Berg, Ómar Olgeirsson, Vigfús Pálsson
4.
Þá var valið í
uppstillinganefnd: Guðlaugur Sveinsson, Guðrún Jörgensen,
Sigurjón Harðarson
5. Þorsteinn Berg:
Stjórn fór yfir skýrslu um starfsemi sambandsins frá síðasta þingi.
Ágæt skýrsla frá framkvæmdastjóra með myndum sem glöddu
augað.
6. Skýrslur
fastanefnda:
Formaður meistarastiganefndar: Garðar Garðarsson: ræddi um meistarastigaskrá, látnir eru inni á skrá. Viðkomandi félög láti vita. Samt inni á aðallista (danskt forrit), eigum ekki kóðann á forritinu.
Formaður mótanefndar. Í nefndinni eru Jörundur Þórðarson, Ragnheiður Nielsen og Ómar Olgeirsson (Páll Þórsson fráfarandi formaður sagði sig úr nefnd í sumar vegna anna). Nefndin kom saman til að undirbúa Íslandsmót í sagnakeppni, stóð einnig að gerð mótaskrár. Nokkrar undanþágubeiðnir bárust nefndinni. Einnig minnst á kvennamót í tvímenningi, spurning um tilhögun og fjölda spila.
Formaður Bridgehátíðarnefndar: Í nefndinni eru Sveinn R. Eiríksson og Gunnlaugur karlsson, Reykjavík bridgefestival verður nýtt nafn mótsins, samningar við Hótel Loftleidir, síða á vegum hótelsins verður: reykjavik.bridgefestival.com, úrslit á netið
Formaður áfrýjunarnefndar: Sveinn R. Eiríksson: Vigfús setur dóma á netið, dómar hafa farið á spjallið, lítið um eftirmála. Fleiri áfrýjanir útlendinga á Bridgehátíð
Formaður Laganefndar: Sveinn R. Eiríksson engar lagabreytingar
Fjölmiðlanefnd BSÍ: Guðný G. Hrafnhildur, Eyþór Jóns, komu saman í tengslum við unglingamótið um páskana.
Heiðursmerkjanefnd: Þorsteinn Berg: engin veiting
Dómstóll BSÍ: ekkert mál upp
Fræðslu og Nýliðanefnd: Óvirk
Reikningar.
Stefanía Sigurbjörnsdóttir las og útskýrði reikninga sambandsins lagðir fram með athugasemdum endurskoðenda til úrskurðar.
Guðlaugur Sveins átti sinn þátt í umsókn um að fá fasteignagjöld felld niður hjá Reykjavíkurborg.
Algjör viðsnúningur á stöðu BSÍ í fjármálum. (Mínus 2 millj í millj í plús). Starfsárið á undan var bæði dýrt vegna Evrópumótsins í Frakklandi en einnig vegna utanhúss-viðgerða á tveimur göflum hússins.
Skuldir hafa hækkað úr 9m í 13m, það er vegna þess að skuldirnar eru myntkörfulán og gengi krónunnar hrapað mjög. Spurt um hvort borgaði sig að skuldbreyta, og til hve langs tíma lánið væri. Almennt lof borið á reikninga sem síðan voru samþykktir samhljóða Garðar Garðarsson: Minningarsjóður Alfreðs Alfreðssonar sem geymdur er í Íslandsbanka hefur lent í miklum afföllum, (fer úr 764.000 í 390.000). Garðar greindi einnig frá hlutverki sjóðsins sem er að stuðla að uppfræðslu ungmenna í bridge
8. Lagabreytingar.
engar
9. Kosning
stjórnar: Þorsteinn Berg endurkjörinn forseti Í aðalstjórn voru
valin Garðar Garðarson, Sveinn Rúnar Eiríksson, Guðný Guðjónsdóttir
og Jörundur Þórðarson Varastjórn: Ragnheiður Nielsen og Kristinn
Kristinson
10. Kosning löggilts
endurskoðanda. Guðlaugur R. Jóhannsson lögg. endurskoðandi
endurkjörinn
11. Kosning tveggja
skoðunarmanna reikninga sambandsins og tveggja til vara, sbr.
Skoðunarnefnd reikninga: Páll Bergsson og Hallgrímur Hallgrímsson
endurkjörnir Til vara voru valdir Brynjólfur Gestsson og Loftur Þór
Pétursson
12. Ákvörðun árgjalds.
Tillaga stjórnar var um hækkun gjalds til BSÍ úr 100 kr upp í 110
kr. Gjald er tekið af hverjum einstaklingi í hvert skipti sem hann
spilar, þannig að sá greiðir mest sem spilar mest og fær mesta
ánægju. Gjaldið hefur verið óbreytt í mörg ár. Við erum
aðilar að þremur stórum alþjóðlegum samtökum Nordisk bridge (2,50
NOK), EBL (€0,85), og WBF ($1). (í sviga er félagsgjald pr félaga
en félagar voru ríflega 1000) Miklar og stöðugar hækkanir eru hjá
öllum þessum samtökum. Samþykkt samhljóða.
13. Önnur mál: Keppnislögin í bridge: Vigfús og Jörundur greindu
frá þýðingu sinni á alþjóðlegu keppnislögunum í bridge. Vigfús
hefur sett þýðingaruppkastið á spjallrásina til að fá athugasemdir
og hefur sett inn leiðréttingar jafnharðan. Lögin hafa ekki verið
endurútgefin síðan 1992 en þá komu 1987-lögin út í vandaðri þýðingu
Guðmundar Sv. Hermannssonar. Síðan voru lögin endurskoðuð 1997 og
núna aftur 2007. Okkur er skylt að nota þessa nýjustu útgáfu
og stendur til að gefa lögin út á bókaformi (en einnig að hafa hana
á netinu). Sótt hefur verið um styrk til Íþróttasjóðs vegna
kostnaðar. Helstu áherslubreytingar koma fram í formálum
laganna.
Keppnisstjórar: Vigfús óskaði eftir því að fleiri gæfu kost á sér í
keppnisstjórn, mikið álag er á honum núna þegar Björgvin Már er
erlendis. Nú vantar keppnisstjóra númer 2. Þörf á
keppnisstjóranámsskeiði. Vigfús er búinn að fara á keppnisstjóra
námskeið í Bretlandi og er hann t.d. fullgildur að stjórna mótum
þar.Hann var kostaður af BSÍ og BR. Landsliðsmál: Stjórnin greindi
frá áætluðum kostnaði við að senda tvö landslið á næsta Evrópumót
sem verður 23.júní -3.júlí 2010 í Ostende í Belgíu. Líklegur
kostnaður gæti nálgast 6 milljónir (Bara mótsgjaldið er 7.000
evrur). Þetta kann þó að breytast, hótelkostnaður er hugsanlega
lægri en kemur fram í áætlunum. Loftur lagði til að ekki yrði sent
lið að þessu sinni en leggja meiri áherslu á nýliðastarf.
Sagðist í lokin vera mjög ánægður með alla umræðuna um
landslið. Erla og Frímann vildu að annaðhvort færu bæði lið eða
hvorugt Sveinn minnti á að mjög mikilvægt væri fyrir
Bridgesambandið að vera sýnilegt og liður í því væri að keppa á
erlendum vettvangi, allt umtal er nauðsynlegt til að einhver
nýliðun geti orðið. Í Hollandi er afar gott starf, bridge er
kennt í grunnskóla og kemur sterkt inn í skólakerfinu. Hvergi eru
fleiri félagsmenn en þar. Hollenska ríkið styrkir allar
íþróttagreinar, styrkupphæðin fer hins vegar eftir árangri,
gríðarlegt stress í að ná að vera meðal fjögurra efstu, annars
pompar styrkurinn. Stífar æfingar fyrir öll pör. Sveinn sagði
ennfremur að 95% tími stjórnar BSÍ fer í að ræða um landsliðsmál,
Evrópumót eru ekki eini valkostur, við þurfum að auka breidd og
stöðugleika. Einnig má benda á að frammistaða Íslendinga undanfarin
ári í Evrópumótum er í raun stórglæsileg, aftur og aftur í topp
tíu, sáralítið hefur vantað til að komast áfram. Þorsteinn:
Í nefnd um opinn flokk eru Þorsteinn Berg, Ragnar Hermannsson og
Gunnlaugur Karlsson. Stefnt að því að vera með áhugasöm pör á
æfingum og fækka seinna í 5 pör, 3 fari í EM og 2 fái annað
verkefni. Nefnd um kvennalið ekki enn fullskipuð.
Sjálfsagt að hafa samstarf, sömu æfingar fyrir kvennapör. Kristinn
stakk upp á að halda opinn fund um landsliðsmál, landsliðin noti
Bridgehátíð til þjálfunar. Nefndi möguleika á að ganga í ÍSÍ.
Gunnar Björn sagði að góð frammistaða landsliða ýtti undir nýliðun.
Hefur verið unglingalandsliði bæði í knattspyrnu og bridge og það
sé eins og svart og hvítt. Mun meiri agi í kringum
knattspyrnu.
Erla: Hvað vilja pörin leggja á sig til að vera í landsliði?
Agamál. Rætt var um reglur og aga og áfengi í kringum landslið,
einnig um áhugaleysi.
Kjördæmamót: Kristján Már óskaði eftir ákvörðun um fjölda liða í
kjördæmakeppni. Ýmsir möguleikar eru: Gestgjafar verði með
tvö lið, Reykjavík sendi tvö lið, fækað verði um eitt lið t.d. með
því að tvö kjördæmi séu sameinuð eða kjördæmasamböndum verði
breytt. Jörundur minnti á að ef spilari fer milli kjördæma, þá þarf
slík breyting að fara fram fyrir áramót til að hann verði
gjaldgengur í næst í nýja kjördæminu. Bergmál í spilasal: Sigurjón
Harðarson kvartaði undan bergmáli í spilasalnum og benti á að hægt
væri að fá hljóðmann til að gefa leysa vandann. Nefndastörf: Stjórn
hvött til að sjá til þess að nefndir séu virkar - þar er
sérstaklega verið að benda á nýliðunar- og fræðslunefnd.
Norðurlandamótið í Finnlandi: Jörundur sagði frá fundi NM.
Formennska færist nú frá Norðmönnum til Dana, nýr forseti verður
Ole Veje sem er þekktur bridge fræðari. Yngri spilara mótin fara
framvegis á milli Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur. Vilja frekar
styrkja hinar þjóðirnar. Næsta NM verður í Svíþjóð 2011, síðan á
Íslandi 2013 BridgeMate tölvur, Magic Contest forrit: Svenni
greindi frá samningi við Hollendinga um kaup á BridgeMate tölvum og
vefþjónum. Nú þegar í notkun á Selfossi, Reykjanesbæ og í Síðumúla
37. BSÍ mun eiga tölvurnar og leigja þær út gegn vægu
gjaldi.Fræðslustarf: Mikill kraftur hljóp í það starf þegar Jón
Sigurbjörnsson var forseti, hann réði Matthías Þorvaldsson og
Ljósbrá Baldursdóttir til að vinna að menntunarmálum, Ljósbrá útbjó
kennsluefni að hollenskri fyrirmynd og setti það á síður BSÍ.
Björgvin Már og Aron sinntu kennslu í framhaldsskólunum og bridge
var viðurkenndur áfangi. Nokkuð hefur dregið úr kennslunni.
Guðlaugur Sveinsson hrósaði Ólöfu og stjórn fyrir góða frammistöðu.
Taldi mjög nauðsynlegt að senda landslið.Að lokum þakkaði
nýendurkjörinn forseti Þorsteinn Berg fundargestum góða fundarsetu
og sleit þinginu. Fundarritari: Jörundur Þórðarson