Stjórnarfundur 11.maí 2009
8. Stjórnarfundur BSÍ mánudaginn 11. maí 2009 kl 16.30 Mættir
Þorsteinn Berg forseti, Garðar Garðarsson, Guðný Guðjónsdóttir,
Jörundur Þórðarson, Ólöf Þorsteinsdóttir, Ragnheiður Nielsen og
Sveinn R. Eiríksson. Páll Þórsson boðaði forföll.
Dagskrá
1. Skýrsla forseta: Sigfús Þórðarson f. 28.des.1934, lést 5.maí,
hans var minnst með stuttri þögn.
Ræddar voru sanngjarnar tillögur um uppgjör salarleigu
Bridsskólans, til að taka tilboði GPA samþykkt að mestu, innlagnir
gætu einnig tengst fleiri þáttum s.s. sumarbridge, undirbúningi
landsliða.
2. Skýrsla framkvæmdastjóra:
Úrslitin í Íslandsmóti í sveitakeppni fór fram á Loftleiðum
23.apríl til 25.apríl í keppni 12 sveita, allir við alla, 16 spil í
leik. Keppnisstjóri var Vigfús Pálsson.
1 Grant Thornton 212
2 Eykt 201
3 Lyfjaver 200
4 Karl Sigurhjartarson 196
5 Júlíus Sigurjónsson 189
Sunnudaginn 26. apríl var úrslitakeppni milli 4rra efstu og endaði
þannig:
1. Grant Thornton 267
2. Eykt 258
3. Karl Sigurhjart 235
4. Lyfjaver 225
Nýkrýndir Íslandsmeistarar í sveitakeppni eru herrarnir í sveit
Grant Thornton.
Í sveitinni spiluðu þeir, Sveinn R. Eiríksson, Hrannar Erlingsson,
Magnús E. Magnússon, Sigurbjörn Haraldsson og bræðurnir Oddur og
Hrólfur Hjaltasynir.
Alþingiskosningarnar þann 25. apríl skyggði á þessa skemmtilegu
keppni sem tókst afar vel og send beint út á alnetið BBO.
Íslandsmót í paratvímenning, fór fram helgina 9.-10. maí með
þátttöku 19 para. Spilaðar voru 19 umferðir, 5 spil milli, alls 90
spil þegar yfirsetan er dregin frá.. Ágætur keppnisstjóri var
Sveinn Rúnar Eiríksson. Spilamennskan fór fram að Síðumúla 37.
Athygli vakti engin þátttaka para utan af landi.
Brynja Dýrborgardóttir og Björgvin Már Kristinsson eru
Íslandsmeistarar í Paratvímenning 2009. Þetta er fyrsti
Íslandsmeistaratitill hjá báðum og voru þau vel að honum komin. Þau
háðu mikla keppni við Hrund Einarsdóttir og Hrólf Hjaltason sem
gáfu eftir á lokasprettinum og enduðu í 2. sæti , 0,4 stigum á
undan Vigdísi Sigurjónsdóttur og Ólafi Lárussyni.
1 152,0 Brynja Dýrborgardóttir - Björgvin Már Kristinsson
2 100,4 Hrund Einarsdóttir - Hrólfur Hjaltason
3 100,0 Vigdís Sigurjónsdóttir - Ólafur Lárusson
4 83,1 Harpa Fold Ingólfsdóttir - Þórður Sigurðsson
5 70,2 Soffía Daníelsdóttir - Sverrir Þórisson
6 69,8 Guðrún Jóhannesdóttir - Jón Hersir Elíasson
7 49,1 Dröfn Guðmundsdóttir - Ásgeir Ásbjörnsson
8 34,2 Edda Thorlacius - Ísak Örn Sigurðsson
9 20,4 Sigrún Þorvarðardóttir - Jón Þorvarðarson
10 7,8 Ólöf H Þorsteinsdóttir - Kristján Már Gunnarsson
3. Sumarbrids: Spilað verður mánudaga og miðvikudaga, ekki líklegt
að hægt sá að vera með spilamennsku föstudaga. Möguleiki að
skipuleggja aukamót (silfurmót) einu sinni í mánuði, einnig verið
rætt að hafa einhverja síðdegisopnun í júlí til að þjónusta eldri
spilara. Keppnisstjórn: Samþykkt að Sveinn og Ólöf gangi frá
keppnisstjóramálum í sumar, líklegt að Sveinn sjái um miðvikudaga
og Björgvin um mánudaga. Rætt var um að launagreiðslur fyrir þetta
yrðu þátttökutengdar. Afleysingar Þórður, Vigfús afleysing, Guðni
hjá Keflavík,) Gjald fyrir Sumarbridge: 1000 - 500 Hvað sjáum við
fyrir okkur að hægt sé að gera til að að örva þátttöku, fleiri
fletir, kennsla, verðlaun, sagnakeppni í yfirsetu, verkefni Guðm.
Páll Verðlaun í Sumarbridge, aðgangur í mót?
Bikarkeppni: gjald 5000 - draga bara eina umferð í einu -
Athuga með sponsor fyrir BBO í
lokamóti.
4. Sumarfrí framkvæmdastjóra: Ólöf fer í sumarfrí 15.júní, mun
senda út rukkanir vegna bikarmóts, verður í samstarfi við fleiri
til að hún geti tekið út það frí sem hún á rétt á. Guðný og Sólveig
verða henni til aðstoðar. Samt mun hún koma um mánaðamót til að sjá
um mikilvægustu þætti. s. launagreiðslur, vsk-skýrslur, senda út
rukkanir v/bikars.
5. Ljúka við mótaskrá: Páll mun boða fund í mótanefnd.
6. Keppnisstjóri á kjördæmamóti. Sveinn R hefur samþykkt að taka
það að sér.
7. Önnur mál:
a) Rætt um hvernig á að taka á vanskilum, keppnisbann eða rukka
fyrirfram
b) Rætt um að nýta betur fríar gistinætur á Loftleiðum í tengslum
við Bridgehátíð. Gæti verið í formi verðlauna fyrir félög utan af
landi.
c) Garðar mælir með því að breyta keppnisformi í sveitakeppni, til
að örva þátttöku getur verið gott að draga pör saman í sveitir,
sterkt par myndi sveit með veikara pari. Þetta hefur verið gert í
Bridgefélagi Suðurnesjamanna með góðum árangri. Sveinn hefur íhugað
að banna mjög flóknar hindrunarsagnir í Miðvikudagsklúbbi. Þetta
getur gert klúbbinn vinsamlegri gagnvart nýliðum.
Nýtt efnislag...