Stjórnarfundur 20.apríl 2009

mánudagur, 11. maí 2009

7. Stjórnarfundur BSÍ mánudaginn 20. apríl 2009 kl 16.30

 Mættir Þorsteinn Berg forseti, Garðar Garðarsson, Guðný Guðjónsdóttir, Jörundur Þórðarson, Ólöf Þorsteinsdóttir, og Sveinn R. Eiríksson.  Páll Þórsson og Ragnheiður Nielsen boðuðu forföll.
1.         Skýrsla forseta, fór yfir fund sem var haldinn í menntamálaráðuneytinu (valgerdur.thorunn.bjarnadottir@mrn.stjr.is  Skrifstofa íþrótta- og æskulýðsmála) varðandi styrki ráðuneytisins. Á fundinn mættu fulltrúar margra íþróttafélaga, skáta og fl. Búast má við að á næsta ári verði styrkir til félaga skornir enn meir niður eða um 10% í viðbót við niðurskurð síðasta árs vegna breyttra aðstæðna í ríkisútgjöldum.
2.         Skýrsla framkvæmdastjóra,
Íslandsmót yngri spilara í sveitakeppni fór fram laugardaginn   með þátttöku aðeins  tveggja sveita, landsliðs Íslands í flokki spilara sem eru 25 ára og yngri og landslið Íslands flokki spilara sem eru 20 ára og yngri. Eldra liðið vann en í því spiluðu Grímur Kristinsson, Guðjón Hauksson, Gabríel Gíslason og Jóhann Sigurðarson. Í öðru sæti urðu Davíð Örn Símonarson, Ólafur Hrafn Steinarsson, Fjölnir Jónsson og Ingólfur P. Matthíasson.
Íslandsmót yngri spilara í tvímenningi féll niður vegna lítillar þátttöku
3.         Unglingamótið um páskana, framkvæmd þess (Nordic Junior Championship). Ólöf þakkaði sérstaklega Guðnýju frábært framlag hennar og Ragnheiðar við undirbúning, en einnig fékk undirritaður þakkir fyrir myndatöku.  Hinir norrænu gestir þökkuðu fyrir sig og töldu afar vel að þessu staðið og okkur til mikils sóma. Gestir vorir voru einnig ánægðir með verð og gæði á gistingu á Hótel Vík. Sveinn stýrði mótinu af mikilli fagmennsku. Hann sá einnig um að setja mótið og slíta því, sá um verðlaunaafhendingu ásamt Guðnýju. Norski þjálfarinn hrósaði Dönum sérstaklega fyrir gott fordæmi með að koma með 3 lið einir þjóða. Samkvæmt reglum mótsins eiga að vera 3 lið frá hverju landi: U-25, U-20 (skólalið) og stúlknalið, síðan ætti hver þjóð að velja hvert af liðunum keppti um titilinn. A.m.k. 5 lið lið eiga að vera í aðalkeppninni, það náðist ekki þar sem hvorki Finnar né Færeyingar sendu lið.
Norræn spjallsíða. Svenni ræddi við erlendu gestina um að setja upp lokaða spjallsíðu fyrir NM, það gæti hjálpað til við auka samstarf bridgesambandanna  á Norðurlöndum, nú er til dæmis fundur í Finnlandi í júní í tengslum við NM, gæti hjálpað til við að undirbúa mál þar.
4.         Sumarbridge Sveinn mun reyna semja um ráðningu á keppnisstjóra fyrir sumarið. keppnisstjóri gæti hugsanlega safnað verðlaunum. Vegna mikilla verðhækkana samþykkir stjórnin að hækka keppnisgjöld í 1000 kr og 500 kr.
5.         Magic Contest, (SRE) Samþykkt að taka nýju tilboði Brenning.  Í framhaldinu  þarf að athuga með innkaup á fleiri Bridgemate hugsanlega frá framleiðanda í Hollandi
6.         Úrslitin í sveitakeppni - Þorsteinn ætlar að aðstoða við undirbúning. Erfitt er að fá umfjöllun í fjölmiðlun núna vegna kosninga. Athuga þarf skrínin, kominn tími til að lakka þau eða mála.
Sveinn ætlar að stýra fyrirliðafundi, hann ætlar líka að stilla upp mönnum í dómnefnd fyrir mótið. Dýrt að halda mótið á Hótel Loftleiðum.
7.         Mótaskrá næsta árs Páll sendi enn inn breytingar á fyrirhugaðri mótaskrá, enn eru ýmsar hugmyndir um að samtengja kvennamótið í tvímenning og kvennamótið í sveitakeppni,  hafa þetta 3 daga mót á einni langri helgi. Svipað væri líka hugsanlegt með paramótin.  Ef hægt væri að fá gott tilboð um gistingu frá nágranna hóteli okkar myndi það ekki skemma. Samþykkt að halda áfram að vinna með mótaskrá næsta árs og hafa hana tilbúna fyrir kjördæmamótið á Eskifirði.
8.         NM í Turku í Finnlandi, undirbúningur er á fullu, tengiliður þarf að vera fyrir bæði lið. Skila þarf kerfum fyrir lok þessarar viku, einnig þarf að skila ferðaplani fyrir alla enda ætla Finna að sækja alla og skila þeim í sína gistingu. Jörundur er tengiliður fyrir Kvennaliðið en Jón Baldursson tengiliður fyrir liðið í opnum flokki.
9.         Þýðing bridgereglna (JÞ) Sigurður Vilhjálmsson er tilbúinn að taka þátt í þátt í verkinu, gott væri að fá fleiri í sjálfboðavinnuna. Sveinn er tilbúinn í yfirlestur þegar verki lýkur, það er mjög gott því fáir hafa jafnmikinn skilning á lögunum og hann hér á landi.
10.       Önnur mál  - Ólöf: Alfreðssjóður tapaðist að mestu, hafði verið geymdur í einhverjum peningabréfum, enginn aðgangur hefur verið að honum síðan bankahrunið varð. Inneign minnkar úr um 750.000 niður í 150.000. Eftir úthlutun sem ákveðin var á síðasta ári upp á 60.000 þá eru eftirstöðvar u.þ.b. 90.000 kr. Greinilegt er að umsýsla var ekki heppileg hjá bankanum.
Mikilvægt að hjálpa til við myndun para fyrir paramótið
Sveinn hafði samband við Erlu Sigurjónsd og spurði hvort þeir gætu ekki staðið fyrir páskamóti í Hafnarfirði. Erla tók áskoruninni og þar var 36 para mót sem Þórður stýrði.
Aðeins var rætt um að hafa opin augun fyrir heppilegra húsnæði - einnig rætt um endurnýjun skrína - viðhald á stólum
Ekki náðist að ræða umsókn um niðurfelling á hluta fasteignaskatts

 Reykjavík  20. apríl 2009

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar