Ársþing 19.okt. 2008

þriðjudagur, 21. október 2008

60. Ársþing  Bridgesambands íslands               Sunnudaginn 19. okt 2008

1. Þingsetning  Þorsteinn Berg forseti setti þingið og stakk upp á Guðmundi Baldurssyni sem fundarstjóra.
2. Starfsfólk þingsins skipað
Fundarstjóri: Guðm.Baldursson
Fundarritarar: Hrafnhildur Skúladóttir og Jörundur þórðarson, 
Kjörbréfanefnd: Ísak Sigurðsson, Loftur Pétursson og Sigurður Vilhjálmsson

3.  Kjörbréf lesin upp 25 gild atkvæði

 

nöfn

Atkvæði

Bridgefélag Hafnarfjarðar

Erla Sigurjónsdóttir

2

Bridgefélag  Kópavogs

Loftur þór Pétursson, Þorsteinn Berg

2

Bridgefélag Reykjavíkur

Ísak Örn Sigurðsson,  Rúnar Gunnarsson,  Páll Valdimarsson, Guðný Guðjónsdóttir

4

Bridgefélag Borgarfjarðar

Þorvaldur Pálmason

3

Bridgefélag Siglufjarðar

Stefanía Sigurbjörnsdóttir

2

Bridgefélag Akureyrar

 Hermann Huijbens, Víðir Jónsson

2

Bridgefélag Selfoss

Sigurður Vilhjálmsson, Brynjólfur Gestsson

2

Bridgefélag Muninn & Suðurnesja

Garðar Garðarsson

2

Bridgefélag Breiðfirðinga

Jón Jóhannsson, Sturlaugur Eyjólfsson

3

Miðvikudagsklúbburinn

Guðlaugur Sveinsson, Guðrún Jörgensen

2

 

 

24



Aðrir sem mættir voru: Ólöf Þorsteinsdóttir, Hrafnhildur Skúladóttir, Þorsteinn Berg, Ómar Olgeirsson, Júlíus Sigurjónsson, Þórður Ingólfsson,

4. Uppstillinganefnd:  Erla Sigurjónsdóttir, Ómar Olgeirsson, Víðir Jónsson

5.         Skýrsla forseta: Þorsteinn greindi frá viðburðaríku ári. Árið var mjög kostnaðarsamt enda var þátttaka landsliða mikil í mótum á erlendri grund. Hæst bar sigur Íslands opnum flokki í bikarkeppni Norðurlanda sem fram fór 23.-25. maí í Rottneros í Svíþjóð. (Bjarni Einarsson, Steinar Jónsson, Aðalsteinn Jörgensen og Sverrir Ármannsson) 3. skipti sem Sverrir vinnur þennan bikar.  Landslið í opnum flokki keppti á Evrópumótinu í Pau í Frakklandi í júní og náði 8. sæti sem er frábær árangur, slæmt tap á endaspretti kom í veg úrslitasæti. (Bjarni Einarsson, Steinar Jónsson, Aðalsteinn Jörgensen og Sverrir Ármannsson, Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson)  Einnig fór lið til Kína núna í október (Aðalsteinn Jörgensen og Sverrir Ármannsson, Jón Baldursson, Björn Eysteinsson, Sveinn Eiríksson og Hrannar P Erlingsson). BJörn stýrði liðinu bæði í Frakklandi og Kína auk undirbúnings (líkamsrækt o.fl.)

Auk þess tók Jón þátt í einmenningsmóti í Kína þar sem aðeins bestu spilurum var boðið. Enn sýndi hann og sannaði getu sína og lenti í 5. sæti af 32 í sterkum félagsskap. Efstir voru Norðmennirnir tveir Helness og síðan Helgemo.

Kvennalið tók þátt í Evrópumótinu í Frakklandi (Ragnheiður Nielsen, Hjördís Sigurjónsdóttir, Anna Ívarsdóttir, Guðrún óskarsdóttir, Valgerður Kristjónsdóttir og Ester Jakobsdóttir (bætt við á síðustu stundu vegna aukins leikjafjölda). Frammistaða nú mun betri 18. af 25 (13,9 stig í leik að meðaltali). Besta síðan 1995?

Yngra liðið tók þátt í þremur mótum  Norðurlandamót yngri spilara í Örebrö Svíþjóð 20.-23.mars Inda Hrönn Björnsdóttir, Jóhann Sigurðarson, Óttar Ingi Oddsson,  Gabríel Gíslason liðsstjóri ómar Olgeirsson, móti í Hollandi og núna í Kína (Örvar óskarsson, Gunnar, Gabríel Gíslason og Jóhann Sigurðarson , Inda Hrönn Björns og Grímur Kristinsson liðsstjóri Gísli Steingrímsson) 28. sæti af 72. Ómar Olgeirs og Páll Þórs sáu um þjálfun

Þorsteinn vísaði að öðru leyti í ágæta skýrslu um starfið sem dreift var á fundinum.

Að lokum bætti hann því við að næstu páska eigum við halda Norðurlandamót fyrir yngri spilara.

6.         Skýrslur fastanefnda: engir formenn gáfu sig fram

7.         Stefanía Sigurbjörnsdóttir fór yfir reikninga sem voru sérlega skýrir og vel fram settir.

Umræður um lið 6 og 7:

Páll Valdimarsson:  Fannst vanta skýrslur frá fastanefndum.  Tjáði sig um landsliðsval. Ósáttur með að velja ekki vel samspiluð pör í landsliðið.  Vill fá breiðari hóp og senda fleiri á mót erlendis.  Gerði athugasemd  við kostnað v/landsliða. Spurði hvort til væri listi yfir menn sem ekki mættu vera í landsliði.

Þorsteinn: Ekki til neinn svartur listi. Næsta stjórn skipi landsliðsnefnd.

Þórður Ingólfsson spurði um félagsgjöld  og gjöld vegna meistarastiga (Sveinn og Stefanía Sigurbjörnsd svöruðu).  Félagsgjöld sér til skráningar  bronsstiga, Meistarastig vegna opinna móta og svæðamóta (silfurstig og gullstig)

Spurði einnig um kostnað af getraunasölu. Svar mestmegnis bónusgreiðslur til þeirra sem tippa.

Garðar spurði um óinnheimtar tekjur, megnið vegna mánaðagreiðslna frá ríkissjóði 5millj. en einnig söfnun styrkja vegna landsliðs, v/bikarkeppni  o.fl.

Loftur ánægður með vel fram setta reikninga en nú er aðhalds þörf.

Reikningar samþykktir

Spurt hvort ekki geti orðið erfitt að fá styrk frá ríki. GB: Erum inni á fjárlögum, vorum inni á aukafjárlögum, skorar á menn að beita sér við þingmenn sem þeir þekkja.

8.         Lagabreytingar  engar

9.         Kosning: Þorsteinn Berg endurkjörinn forseti

Aðalstjórn: Páll Þórsson, Garðar Garðarson, Sveinn Rúnar Eiríksson og Guðný Guðjónsdóttir

Varastjórn: Jörundur Þórðarson og Ragnheiður Nielsen

10.       Áfrýjunarnefnd: endurkjörin óbreytt

Guðjón Bragason formaður
Björgvin Þorsteinsson varaformaður
Esther Jakobsdóttir
Guðmundur Ágústsson
Guðmundur Sv. Hermannsson
Kristján Kristjánsson
Loftur Þór Pétursson

11.       Guðlaugur R. Jóhannsson lögg. endurskoðandi endurkjörinn

12.       Skoðunarnefnd reikninga: Páll Bergsson og Hallgrímur Hallgrímsson endurkjörnir

Til vara voru valdir Brynjólfur Gestsson og Loftur Þór Pétursson

13.       Árgjald: Óbreytt 100 kr

Stungið var upp á hækkun í 120 krónur vegna mikillar gengislækkunar krónu og vegna verðbólgu undangenginna ára, tillagan um hækkun var felld og talið vænlegra að safna frekar félögum.

14.       Önnur mál

Erla Sigurjónsdóttir: Ósátt við að formenn fastanefnda skuli ekki mæta á þingið og skila einhverju frá sér. Efla þarf BSÍ

Páll Valdimarsson: Tók undir með Erlu. Óskaði nýrri stjórn heilla og góðs gengis við að efla hag BSÍ. Lýsti sig fúsan til að starfa fyrir BSÍ.

Sveinn Rúnar ræddi um samstarf sitt við Thomas Brenning. Áður fyrr voru ýmiss konar forrit í gangi til að sjá um útreikninga, viðmót forritanna hins vegar lítt aðlaðandi og þekking á forritun jafnvel þörf. Þetta forrit og viðkomandi Bridgemate tæki eru mikil betrumbót, nú þurfi ekki að kaupa rándýra forritun til að viðhalda forritinu heldur árlegar uppfærslur sem fylgi með árgjaldi eða leigu. Samið verði um eitt leigugjald á ári sem gildi um leið fyrir öll félög á Íslandi. Nú þegar komnar uppfærslur fyrir tvímenning og einmenning. Verið að vinna í sveitakeppnisuppfærslu. Mun meira öryggi er á færslum, gagnvirkni tryggir að ávallt sést augnabliksstaðan í mótinu. Sveinn benti á að BridgeMate er tvíþætt. Fyrst er best að læra að nota forritið, seinna skrefið er svo að nota það með BridgeMate tækjunum þar sem þátttakendur slá sjálfir inn gögnin.

Garðar Garðarsson sagði að mörg bridgefélög hefðu sameinast öðrum sbr Muninn og Bf. Suðurnesja. Mikil ánægja er með BridgeMate - dýrt eða erfitt fyrir félög utan af landi að vera með keppnisstjóra, allt unnið í sjálfboðavinnu, BridgeMate léttir mönnum starfið. Hvatti til þess að öll bridgefélög úti á landi tækju tækið í notkun ef það væri ekki of dýrt

Sveinn Rúnar taldi að ekkert væri því til fyrirstöðu að lána tæki út í félögin,  sagði að Akureyrirngar væru með forritið nú þegar í notkun. Vandkvæði væru þó á að þjónusta það, hann gæti það ekki einn. Í hverju svæði yrði að vera einn sérfræðingur sem gæti liðsinnt keppnisstjórum á svæðinu.

Þórður Ingólfsson: Hamingjuóskir til stjórnar, sá að mörg upptalinna félaga (24) væru óvirk. Tók undir aths ÞP um fræðslumál. Einnig mikilvægt að styðja við bakið á nýjum keppnisstjórum - fá fleiri til að taka að sér keppnisstjórn. Mismikil tölvvukunnátta keppnisstjóra.

Sveinn Rúnar: Kom með 2 tillögur um breytingu á keppnisreglugerð BSÍ.

Sú fyrri var um grein 2.3 um undanúrslit í sveitakeppni:

2.3. Undanúrslit.   Í undanúrslitum spila 40 sveitir sem skipt er í 4 riðla. Í hverjum riðli er spiluð raðkeppni, 20 spila leikir, án hálfleiks. ....

Í stað 20 spila leiki verði 16 spila leikir.

Ástæða fyrir þessari breytingu er sú að í úrslitum eru aðeins 16 spila leikir og því ætti að gera meiri kröfur í undankeppni en í úrslitakeppni?

Þetta var samþykkt samhljóða.

Seinni breytingin felst í að fella niður svæðamót sem undankeppni fyrir Íslandsmótið í tvímenningi. Rök með þessu er aðallega þau að raunveruleikinn er sá að svo fáir taka þátt í Úrslitakeppninni að óþarfi er að setja skilyrði.

Breytt reglugerð yrði því eitthvað á þessa leið

3. Tvímenningskeppni.

3.1. Keppnisfyrirkomulag.


Meistaramót í tvímenning spilast sem opin svæðamót og úrslit. eitt úrslitamót og eru úrslitin eru opin fyrir alla spilara

3.2. Svæðamót.

Svæðasamböndin halda undankeppnina. Undankeppnin er opin öllum spilurum innan sambandsins, svo lengi sem húsrúm leyfir og ræðst þá forgangsröð af skráningartíma. Spila skal a.m.k. 60 spil. Tvö eða fleiri svæði geta sameinað hjá sér mótin og leggst þá kvóti þeirra saman. Hverju pari er heimilt að kalla til 1 varamann í allt að þriðjungi keppninnar, án þess að réttur þess skerðist. Spili varamaður meira en þriðjung hefur hann um leið fengið réttindi þess spilara sem hann leysir af hólmi.


3.3.  3.2. Úrslit

Rétt til að spila í úrslitum eiga þau pör sem enduðu í ¾ efsta hlutanum í svæðamótum auk þess sem 10 efstu pörin í úrslitum árið á undan eiga rétt á að spila í úrslitum. Heimilt er að spila um rétt í úrslitum í fleira en einu svæðamóti.

Í úrslitum er spilaður monrad barómeter og spilafjöldi fer eftir þátttöku . Ef 60 eða færri pör: 20 umferðir með 6 spil milli para. Ef 61-84 pör: 24 umferðir með 5 spil á milli para. Ef 85 eða fleiri pör: 30 umferðir með 4 spil milli para.

Hverju pari er heimilt að kveðja til varmann í allt að fjórðung keppninnar, án þess að réttur þess skerðist. Spili varamaður meira en fjórðung missir parið réttindi til verðlauna. Verði pör jöfn í svæðamótum ræður hlutkesti. Verði pör jöfn í lok móts ræður; a) samanburður þegar pör sitja í sömu átt, b) hlutkesti.

Mjög mikil umræða varð vegna þessarar tillögu, Flestir fulltrúar félaga dreifbýlis lýstu sig andsnúna þessari breytingu enda fjáröflun mjög tengd svæðamótum. Erla taldi sig þurfa meiri tíma til að skoða tillöguna og til að geta borið hana undir fleiri félaga. Finnst miður að svæðamót leggist af. Loftur taldi að nýjar tímar (kreppa) stuðli að aukinni þátttöku fólks í bridge, fólki komi til með að hafa meiri tíma, vill halda í svæðamótin líka vegna fjáröflunar. Hvetur til góðrar móttöku nýliða.  Þorvaldur vildi svæðamótin áfram. garðar vildi færri spil á svæðamótum.

Sveinn og fleiri sem breytingatillöguna studdu töldu hana einungis endurspegla breyttar aðstæður og þátttaka í Íslandsmótum beinlínis minnki vegna svæðamóta.  Júlíus taldi að svæðamótin hafi nánast gengið af Íslandsmótinu dauðu. Guðlaugur lýsti stuðningi við tillögu og sagði svæðamótin barn síns tíma.

Tillagan var samþykkt með 13:10

Styrkveiting frá BSÍ 250 þúsund krónur veitt vegna kennsluumhverfis á tölvu:

Þorvaldur Pálmason greindi frá samstarfi sínu við Guðmund Pál ArnarsonÍ framhaldi af ósk Bf. Borgarfjarðar (Sveinbjörn Eyjólfsson) við GPA um að haldið yrði námskeið helst óháð stað og tíma. Þeir settu sér þrjú meginmarkmið:

1.         Efla bridge í BB

2.         Starf GPA skili sér í þessu verkefni

3.         Þar sem verkefnið er kostnaðarsamt er enn ríkari ástæða til þess að verkefnið skili sér til annarra í bridgehreyfingunni

Síðan var gerð fjárhagsáætlun og þótt ekki væri gróða að vænta þá myndi þetta auðga andann og opna GPA nýjum kennsluleiðum.

Umsókn um styrk var greiðlega samþykkt af BSÍ og er hér þökkuð.

Undirbúningur: Kennsluumhverfi var sett upp, gagnagrunnstengdur vefur, aðgangsstýrð notkun, nemendur, kennarar og stjórnendur með mismikil réttindi. Vefumsjón með gagnvirkni, verkefni, námskeiðsmöguleikar, einföld umsýsla, einnig samskipti í pósti og umræðuvef. Veffang: netskoli.is/bridge

Fyrsta námskeiðið fjallaði um vörnina: 5 lotur - gögn og spil - tengt spilamennsku á staðnum - tal og tónar. Sama námskeið einnig boðið fólki í sumarspilamennsku á gjafverði krónur 2000 til að endurgjalda styrk.

Þorvaldur taldi jafnvel möguleika vera á tengingu við Bridgemate, Þetta væri mjög gagnlegt til fræðslu yngri sem eldri.

Hann hrósaði Borgfirðingum, enginn keppnisstjóri, spilarar leysa málið sjálfir við borðið, mikil áhersla á félagsskapinn sjálfan, öllum líði sem best við spilaborðið.

Hvatti til þess að fræðslunefnd yrði skipuð við BSÍ. Lýsti sig reiðubúinn að koma að því máli.

Loftur Þór hvatti alla til að taka vel á móti nýliðum, háttvísi afar mikilvæg, leiðbeina nýliðum. Sagði að Heimir Háfdánarson væri með bridgekennslu í MK og nemendur fengju einingar, skortir á betri þjónustu frá BSÍ en vonar að gott leiði af starfi GPA og ÞP.

Guðlaugur Sveinsson óskaði nýrri stjórn farsældar. Nú að undanförnu hefur verið á brattan að sækja í miðvikudagsklúbbnum, kannski vegna knattspyrnuleikja o.fl. Hann þakkaði Ólöfu fyrir gott samstarf. Hann er til að veita liðstyrk ef á þarf að halda. Er ánægður með störf fyrri stjórnar. Hvatti til samstöðu: Sameinaðir stöndum vér - sundraðir föllum vér.

Þorsteinn Berg nýendurkjörinn forseti þakkaði fyrir kosninguna, góðar ábendingar og góða fundarsetu. Vonast til að ný stjórn nái árangri í störfum sínum. Þakkaði Guðmundi Baldurssyni góða fundarstjórn.

Sleit að því loknu þinginu

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar