4.september
13. stjórnarfundur 4.sept. 2008 Allir mættir
1. Uppgjör vegna Evrópumóts í opnum flokki
Ólöf fór yfir kostnað vegna þátttöku í opna flokknum EM. Ekki er búið að ganga frá öllum kostnaðarliðum en þetta verður allt komið á næsta fundi.
2 Þorsteinn: Björn Eysteinsson hefur valið 3 pör til að keppa í opnum flokki á Olympíumótinu í Kína: Jón Baldursson, Björn Eysteinsson, Aðalsteinn Jörgensen, Sverrir Ármannsson, Hrannar Erlingsson og Sveinn Rúnar Eiríksson, áætlaður kostnaður ca. 2 milljónir
Páll: Í liði yngri spilara eru Inda Hrönn Björnsdóttir, Grímur Freyr Kristinsson, Gabríel Gíslason, Jóhann Sigurðarson , Örvar Óskarsson og Gunnar Björn Helgason. Gísli Steingrímsson fer með sem liðsstjóri en Páll og Ómar sem hafa þjálfað liðið komast ekki.
3. Landsliðsnefnd, (tilgangur, umboð, markmið): Stjórnin leggur til að skipuð verði landsliðsnefnd. Vísað til næstu stjórnar
4. Champion cup, fyrirspurn. Jón Baldursson Eykt spurði um styrk vegna Champions Cup í Amsterdam. Samþykkt að spilarar leggi fram kostnaðaráætlun þegar sótt er um styrk.
5. Keppnisstjóramál (Sveinn). Vigfús Pálsson tilbúinn að taka að sér keppnisstjórn í vetur - byrjar á deildakeppni. Þórður ætlar að sjá um lokamótið í Sumarbridge.
6. Sumarbridge (Sveinn). Góð þátttaka er í sumarbridge, 24 pör að meðaltali, kemur ágætlega út fjárhagslega.
7. Markaðssetning á brids og upplýsingastreymi. Jón Baldursson og Gunnlaugur Karlsson telja mikilvægt að Ólympíumótið fái góða umfjöllun í fjölmiðlum, jafnvel að ráða mann til að sjá um þetta. Samþykkt.
8..Önnur mál
Ársþing
Sjoppa - ætlar BSÍ að reka sjoppuna? Ólöfu falið að finna einhvern til að reka sjoppuna
Á að byrja aftur með bridge á föstudögum?