29. september
14. fundur stjórnar BSÍ haldinn mánud. 29. sept. 2008
Mætt: Þorsteinn Berg, Garðar Garðarsson, Hrafnhildur Skúladóttir,
Páll
Þórsson, Ólöf Þorsteinsdóttir og Sveinn R. Eiríksson.
1. Rætt um bridgefélög. Ca. 20 bridgefélög eru
innan BSÍ. Við höfum náð
samningi við Thomas Brenning um afnot af "Magic Contest" og við
erum að
reyna að láta öll félög fá útreikniforritið.
2. Fjármálin: Fjárhagsstaðan er erfið, árið
hefur verið mjög
kostnaðarsamt, þátttökukostnaður af mörgum mótum, m.a. Evrópumót
og
Ólympíumót í Kína. Auk þessa standa yfir kostnaðarsamar
utanhússviðgerðir á
Síðumúla 37.
3. Önnur mál. Á að hefja aftur
spilamennsku á föstudagskvöldum? Ýmis
sjónarmið komu fram, m.a. að ekki væri ásættanlegt fyrir sambandið
að borga
með spilamennsku.
Á fundinum kom einnig fram að haldinn verður blaðamannafundur á
morgun þar
sem greint verður frá þátttöku okkar á Ólympíumótinu í Kína og er
þetta
liður í kynningu okkar á bridge.
Hrafnhildur