12.mars

miðvikudagur, 12. mars 2008

7. fundur stjórnar BSÍ haldinn miðvikud. 12. mars 2008

Mætt: Þorsteinn Berg, Garðar Garðarsson, Hrafnhildur Skúladóttir, Ómar
Olgeirsson, Páll Þórsson, Ólöf Þorsteinsdóttir og Sveinn R. Eiríksson.
Júlíus Sigurjónsson boðaði forföll.

1. Landsliðsmál, opinn flokkur, kvenna flokkur:
Forseta og gjaldkera falið að ganga frá samningi við Björn Eysteinsson
samkvæmt forsendum sem ræddar voru á fundinum.

Um kvennaflokk,.
Samþykkt að sveit SR-Group skipi landslið og finni sér spilandi fyrirliða.
Fyrir liggur að kostnaður BSÍ við það að lið yrði sent til Kína yrði lægri
en ef liðið færi á Evrópumót í Frakklandi. Færi sveit SR-Group til Kína en
ekki á Evrópumót greiddi BSÍ allan kostnað.
Velji SR-Group að fara frekar á Evrópumót verður liðið að standa straum
af/safna fyrir mismuninum.
Stjórnin felur gjaldkera og forseta BSÍ að gera SR-Group grein fyrir
ákvörðuninni

2. Tilboð um keppnisstjórn
Rætt verður við Björgvin Már Kristinsson um keppnisstjórn á þeim
Íslandsmótum sem eftir eru á tímabilinu.

3. Uppgjör v/Bridgehátíðar

4. Kosning í Bridgehátíðarnefnd: Nefndin ( Kristján Blöndal, Jón
Baldursson, Gunnlaugur Karlsson og Sveinn R. Eiríksson) gefur kost á sér
áfram og er það þegið með þökkum.

5. Bridgemate, Brenning:
SRE falið falið að ná samningum við Tomas Brenning um að íslensk félög fái
að nota útreikniforritin hans.

Önnur mál
BSÍ 60 ára? Athuga betur og fagna með einhverjum hætti.

Fundi slitið
Hrafnhildur

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar