3.október

miðvikudagur, 3. október 2007

7. Stjórnarfundur BSÍ 

Haldinn miðvikudaginn 3. okt. 2007 kl 17:30. Mættir voru: Guðmundur
Baldursson, Garðar Garðarsson, Hrafnhildur Skúladóttir, Ísak Örn Sigurðsson,
Loftur Þór Pétursson, Ómar Olgeirsson, Stefanía Sigurbjörnsdóttir og Sveinn
Rúnar Eiríksson.
Helgi Bogason og Kristján Blöndal boðuðu forföll.

1. Endurskoðaðir reikningar BSÍ voru lagðir fram á fundinum. Stefanía
benti á hve mikið tap hefði verið á veitingasölu. Stjórnin mælist til þess
við félögin að nota sjálfsalana fram að áramótum (og að þau komi ekki með
veitingar inní húsið og selji)

2. Ársþing - Boðað hefur verið til þingsins með löglegum hætti.
Tillaga stjórnar um að fækka í stjórninni (úr 7 í 5 ) verður lögð fyrir
ársþingið.
Hvetja fulltrúa til að mæta á þingið (á heimasíðu). Guðmundur Baldursson
gefur ekki kost á sér aftur sem forseti - rætt um hverjir koma til greina.
Guðm. lagði fram umsókn til fjárlaganefndar Alþingis fyrir næsta ár. Sótt er
um 15 milljónir.

3. Framkvæmdastjóramál. 9 umsóknir bárust um starfið. Samþykkt að fela
framkvæmdaráði að vinna úr umsóknum og ráða nýjan mann í starfið.
Fundi slitið
Næsti fundur verður miðvikudag 10.okt kl 17.30.

Hrafnhildur

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar