10.okt
8. Stjórnarfundur BSÍ
haldinn miðvikudaginn 10. okt. 2007 kl 17:30. Mættir voru:
Guðmundur
Baldursson, Garðar Garðarsson, Helgi Bogason, Hrafnhildur
Skúladóttir,
Loftur Þór Pétursson, Ólöf Þorsteinsdóttir, Ómar Olgeirsson,
Stefanía
Sigurbjörnsdóttir og Sveinn Rúnar Eiríksson. Kristján Blöndal
boðaði
forföll.
Ísak Örn er nú hættur sem framkvæmdastjóri BSÍ og snýr sér að öðrum
störfum.
Ólöf Þorsteinsdóttir hefur verið ráðin sem nýr framkvæmdastjóri og
var hún
boðin velkomin.
Ársþing verður haldið sunnudag þann 21. okt. kl. 10.00.
Framkvæmdastjóri
beðinn að hringja í formenn félaga og hvetja þá til að mæta á
ársþingið.
Áheyrnarfulltrúar velkomnir.
Deildakeppni: Fyrri hluti hennar verður haldinn nú um helgina og
ljóst að
þátttaka verður góð. Spilað verður í tveimur deildum og verða 8 lið
í
1.deild en 16 sveitir í 2.deild. Spiluð verður tvöföld
umferð í efri deild en allir við alla í þeirri neðri.
Tímabært er orðið að endurnýja spilastokkana og er það í skoðun
(2000
spilastokkar kosta ca. 400 þúsund krónur, strikamerki og vönduð
spil)
Önnur mál: Matur verður til sölu fyrir þátttakendur í
deildakeppni.
Guðmundur bar fram tillögu til nýrrar stjórnar um kaup á hentugra
húsnæði.
Guðmundur þakkaði fyrir samstarfið en þetta var hans síðasti
stjórnarfundur
og síðan sleit hann fundi.
Hrafnhildur