26. febrúar
4. Stjórnarfundur BSÍ
Haldinn mánudaginn 26. febrúar 2007 kl 17:30. Mættir voru:
Guðmundur
Baldursson, Garðar Garðarsson, Helgi Bogason, Hrafnhildur
Skúladóttir, Ísak
Örn Sigurðsson, Kristján Blöndal, Loftur Þór Pétursson og Ómar
Olgeirsson.
Stefanía Sigurbjörnsdóttir og Sveinn Rúnar Eiríksson boðuðu
forföll.
1.Bridgehátíð
Allir á einu máli um að vel hefði heppnast, nokkurt tap varð á
hátíðinni þrátt fyrir mikla sjálfboðavinnu margra, sérstaklega
þakkar stjórn BSÍ þeim Kristjáni Blöndal, Sveini Eiríkssyni og
Gunnlaugi Karlssyni en þeir voru í nefndinni. Jón Baldursson var
þeim góður ráðgjafi og kemur nú
inn í nefndina. Mótið var fullskipað, ekki hefði verið hægt að koma
fleiri pörum fyrir.
Rætt um að safna auglýsendum á næsta mót og fá þannig meiri tekjur.
Einnig nokkur vilji fyrir því að hækka keppnisgjöld enda hafa þau
verið óbreytt síðustu 4 ár. Nefndin gefur kost á því að sjá um
næstu hátíð og var það samþykkt enda gríðarlega mikilvægt að nýta
reynslu hennar og tryggja
samfellu. Kristján stakk upp á því að kosin yrði Bridgehátíðarnefnd
t.d. á 1. fundi að lokinni Bridgehátíð (enda of seint að skipa í
nefndina á aðalfundi að hausti) (spurning um lagabreytingu?)
2. Íslandsmót í sveitakeppni
Í framhaldi af sveitakeppninni í húsi Orkuveitunnar (Ísland gegn
Zia) var ákveðið að skoða boð Orkuveitu Reykjavíkur um að halda
úrslitakeppni Íslandsmóts í sveitakeppni í Orkuhúsinu um
páskana.
3.Landsliðsmál
a) Daníel Már hefur tekið að sér að þjálfa unglinga á
mánudögum með aðstoð frá Guðm. Páli
b) Rætt var hvort unglingar ættu að keppa um sæti á
næsta Norðurlandamóti og það verði á næsta Íslandsmóti unglinga í
sveitakeppni sem haldið verður helgina 10-11. mars n.k.
E.t.v. skynsamlegra að velja í liðið. Samráð við Daníel Má um
þetta.
c) Loftur kvað sér hljóðs um tímasetningu fundar um
landsliðsmál kvenna en fundurinn var haldinn s.l. fimmtudag.
Fimmtudagar eru þeir dagar sem spilamennska fer fram í Bridgefélagi
Kópavogs, þær konur sem þar spila og hafa áhuga á að gefa kost á
sér í landslið eða landsliðsæfingar er gert
mjög erfitt fyrir.
d) Konur spila um landsliðssæti á Íslandsmóti í sveitakeppni
kvenna. Efsta sveitin fer á Norðurlandamót. (Pörin í sveitinni
verða að hafa spilað a.m.k. 50% spila í mótinu.) Réttur færist ekki
til sveitar nr.2. Ef efsta sveitin nýtir ekki rétt sinn færist
ákvörðunarréttur til stjórnar BSÍ.
e) Björn Eysteinsson sér um þjálfun landsliðs í opnum
flokki.
4.Önnur mál
a) Meistarastigaskrá er í vinnslu
b) Rætt um að útbúa stuttan útdrátt með helstu dómum
fyrir
keppnisstjóra í litlum félögum.
c) Keppnisstjóramál: BSÍ er í miklum vandræðum með
keppnisstjóra.
d) Samþykkt var að bjóða þeim sem eru á framhaldsnámskeiðinu
hjá
Guðm. Páli frítt á 4 spilakvöld hjá einhverju félaginu t.d.
Miðvikudagsklúbbnum eftir námskeiðið.
e) Loftur stakk upp á að hafa skemmtikvöld fyrir
bridgespilara.
Að þessu mæltu var fundi slitið.
Hrafnhildur Skúladóttir