Ársþing 22. október 2006
Ársþing Bridgesambands Íslands haldið 22. okt. 2006 að Síðumúla 37.
Mættir voru eftirfarandi fulltrúar bæði af Stór-Reykjavíkursvæði og af landsbyggð.
Eftirfarandi voru með kjörbréf.
Bridgefélag |
Nafn fulltrúa |
Atkvæði |
B. Akureyrar |
Örlygur Örlygsson |
2 |
B. Selfoss og nágrennis |
Ólafur Steinason |
1 |
B. Selfoss og nágrennis |
Gunnar Björn Helgason |
1 |
Miðvikudagsklúbburinn |
Guðlaugur Sveinsson |
1 |
Miðvikudagsklúbburinn |
Sveinn Rúnar Eiríksson |
1 |
B. Sauðárkróks |
Kristján Snorrason |
2 |
B. Kópavogs |
Loftur Pétursson |
3 |
B.Reykjavíkur |
Jón Baldursson |
1 |
B.Reykjavíkur |
Sigtryggur Sigurðsson |
1 |
B.Reykjavíkur |
Eiríkur Hjaltason |
1 |
B.Reykjavíkur |
Guðný Guðjónsdóttir |
1 |
B.Reykjavíkur |
Helgi Bogason |
1 |
B.Reykjavíkur |
Jörundur Þórðarson |
1 |
Einnig voru mættir eftirfarandi starfsmenn og stjórnarmenn:
Guðmundur Baldursson forseti, Ísak Örn Sigurðsson framkvæmdastjóri, Ómar Olgeirsson, Stefanía Sigurbjörnsdóttir bókari, Kristján Blöndal, Halldóra Magnúsdóttir og Guðný Guðjónsdóttir.
1. Þingsetning. Guðmundur Ólafur Baldursson forseti BSÍ setti þingið og bað þingfulltrúa að rísa úr sætum og minnast látinna félaga, Ólafur Aðalsteinn Jónsson, Stefán Benediktsson og Sævin Bjarnason með stuttri þögn.
2. Kosning fundarstjóra, fundarritara og 3gja manna kjörbréfanefndar.GB bað Helga Bogason að sjá um fundarstjórn. Undirritaður var skipaður fundarritari.
3. Í kjörbréfanefnd: (Ólafur St., Loftur og Eiríkur Hj.) sem komst að því að aðeins væru kjörbréf fyrir 17 atkvæði af 57 mögulegum allra félaga.
4. Skipuð var uppstillinganefnd (Jón B., Loftur og Ól.St.)
5. Nú tók við skýrsla forseta.
Hann greindi frá landsliðsmálum:
Kvennalandslið: 20 kepptu um sæti, sv. Hrafnhildar vann (ásamt Soffíu Dan., Rögnu Briem og Þórönnu Pálsdóttur) þær völdu síðan úr hópi keppenda þær Arngunni og Guðrúnu Jó. Árangur slakur lentu í neðsta sæti. Guðm. Páll Arnarson var síðan með strangt námskeið fyrir allan kvennahópinn. Kristján Blöndal tók síðan við sem liðstjóri.
Unglingalið: 12 unglingar fóru í æfingabúðir til Slóveníu í fylgd Sveins R. Eiríkssonar.
Karlalandslið: Björn Eysteinsson var þjálfari og liðstjóri og valdi hópinn: Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson, Magnús Eiður Magnússon og Matthías Þorvaldsson, og Bjarni Einarsson og Sigurbjörn Haraldsson.
Liðið stóð sig mjög vel, veikindi í miðju móti setti strik í reikninginn en þeir enduðu í 7. sæti sem þýðir að Ísland er 1. varasveit yfir allan heiminn. Miklar líkur á að það komist inn í Heimsmeistaramótið í Kína sem haldið verður næsta haust. Björn Eysteinsson og Guðmundur Eiríksson stóðu einnig fyrir fjársöfnun til þess að hægt væri að útvega liðsmönnum sem bestar aðstæður á keppnisstað sem var í Varsjá í Póllandi.
Um fjármál: Tap á Bridgehátíð. Fjármálin erfið, 70 BridgeMate-tölvur keyptar bæði notaðar hjá BR og Miðv.dagskl.
Frá heiðursmerkjanefnd: Ásmundur Pálsson sæmdur gullmerki á árinu og er hann vel að því kominn.
Samningur hefur verið gerður við Ísl. Getr. til eins árs.
12m. króna styrkur fékkst frá ríkinu á síðasta ári. Sótt hefur verið um 15 milljóna styrk fyrir næsta ár. Nú hafa fregnir af því borist að strikað hafi verið yfir það á nýjum fjárlögum. Beinir því til félaga að reyna að hafa áhrif á alþingismenn og frambjóðendur. Loftur, Jón B. og forseti fengnir til að semja áskorunarbréf.
6. Skýrslur frá formönnum fastanefnda:
Mótanefnd: SRE: Stefna á síkynningu á mótum á neti og reglulegar uppfærslur á úrslitum móta.
Meistarastiganefnd. Ómar O: Gísli Steingr., og Óttar Ingi. Hafa tekið saman sundurgreint yfirlit yfir árangur í öllum flokkum (opinn fl., kvenna, yngri og eldri sp.) á árinu. Einnig hafa verið að senda út nálar. (laufnál o.s.frv.)
Dómnefnd. SRE í eðlilegum farvegi.
Laga og keppnisreglnanefnd. K.Bl.
Reglur fyrir deildkeppni að einhverju leyti eftir fyrirmynd frá Svíþjóð, reglur gerðar sveigjanlegri til að sveitir haldist í deild. Einnig liggur fyrir tillaga um lagfæringar á reglum fyrir Íslandsmót í tvímenningi.
Minningarsjóður Alreðs Alfreðssonar. (Ómar Olg. )
Engar úthlutanir voru á árinu enda engar umsóknir. Inneign kr. 615.376.
Fjölmiðlanefnd:
SRE: sagði að nú væru æ fleiri félög farin að bóka beint úrslit inn á sameiginlega heimasíðu. Mót væru í beinni útsendingu á netinu. Spurning hvort nefndin ætti að vera með meiri kynningu í hefðbundnum fjölmiðlum.
7. Reikningar félagsins. Starfandi bókari sambandsins kynnti og útskýrði reikninga. M.a. eru háar óinnheimtar tekjur vegna þess enn vantar um 4m. króna framlag ríkissjóðs til BSÍ. Einnig er þar í ógreidd húsgjöld annarra eigenda á Síðumúla 37. Mælst til þess að aðskilja fjármál húsfélags og BSÍ. Einnig kom ábending um að nýting á húsnæði BSÍ þyrfti að vera betri, oftar mætti leigja salinn fyrir veislur.
Vakin var athygli á "fjölmiðlavaktinni". Hér er tekin saman öll umfjöllun fjölmiðla um bridge í einn bækling á ári. Fundarmenn báru lof á Stefaníu fyrir hennar störf og samþykktu reikninga.
9. Kosin nýrrar stjórnar og varamanna:
Guðmundur Baldursson var endurkjörinn forseti
Ómar Olgeirsson og Kristján Blöndal voru síðast kjörnir til 2gja ára og sitja áfram eitt ár. Halldóra Magnúsdóttir baðst undan áframhaldandi setu í stjórn. Stefanía Sigurbjörnsdóttir var kjörin í hennar stað til eins árs.
Til næstu 2gja ára voru kjörnir Helgi Bogason, Hrafnhildur Skúladóttir og Sveinn R. Eiríksson.
Varamenn í stjórn voru kjörnir: Frímann Stefánsson, Garðar Garðarsson og Loftur Pétursson.
Svala K. Pálsdóttir, Páll Þórsson og Halldóra hætta í stjórn og voru þeim þökkuð góð störf.
10. Kosning áfrýjunarnefndar: Samþykkt óbreytt skipan (Guðjón Bragason form., Björgvin Þorsteinsson varaf., Esther Jakobsdóttir, Guðm. Ágústsson, Guðm. Sv. Hermannsson, Kristján Kristjánsson, Loftur Pétursson)
11. Kosning löggilts endurskoðanda. Guðlaugur Jóhannsson verði áfram
12. Kosn. 2gja skoðunarmanna reikn. og 2gja til vara: Hallgrímur Hallgrímsson og Páll Bergsson. Til vara: Kristján Snorrason og Halldóra Magnúsdóttir
13. Ákvörðun árgjalds. Það verði áfram kr. 100 pr. spilara, stjórn BSÍ hafi þó heimildir til lækkunar í sérstökum tilvikum s.s. ef bridgefélög eldri borgara kæmu inn.
14. Önnur mál.
Sigtryggur Sigurðsson hafði áhyggjur af endurnýjun og unglingastarf væri ekki nægilega öflugt og innti eftir stefnu stjórnar. Margir tóku til máls um þetta efni. Ekki auðvelt að fá framhaldsskólanemendur á námskeið - mikil samkeppni um afþreyingu - hikandi nemendur úr Bridgeskólanum - öll kennsla skilar sér hugsanlega seinna - viðtaka nýliða - nýliðar fái frítt fyrstu tvö kvöld - gulrót þarf, keppni um að komast í æfingabúðir eða mót erlendis - hegðun spilara.
Eiríkur Hjaltason: Gagnrýndiað barinn væri opnaður of snemma á föstudögum. Neysla áfengis fari ekki saman við að stunda keppnisbridge auk þess sem það rýrir tiltrú styrkveitenda á starfi BSÍ.
Sveinn Rúnar. Nefnt hefði verið við sig hvort ísland gæti tekið að sér Evrópumót unglinga. Ef svo yrði þyrftum við að hafa á að skipa 3 til 4 unglingasveitum, geta boðið upp á ódýra gistingu og ódýran mat.
Lögð var fram tillaga um breytingar á greinum 3.2 og 3.3 keppnisreglugerð á Íslandsmótinu í tvímenning.
Megintilgangur mótanefndar með breytingartillögunum er að gera regluverkið sveigjanlegra, skýrara og auðveldara í framkvæmd.
Undirritaður taldi orðalag óskýrt og hugsanlega villandi um að varamaður fengi rétt spilara sem hann leysir af hólmi ef hann spilar meira en þriðjung.
E.Hj.Hann ræddi um keppnisfyrirkomulag á Íslandsmótinu í tvímenning. Taldi að eftirsóknarverðara væri að komast í mótið ef lokamótið væri barómeter fyrir 24 pör. Mótið yrði sterkara og kraftmeira.
Breytingin var samþykkt með þeirri viðbót að fram kæmi að nú verði spilurum heimilt að taka þátt í fleir en einu móti till að ávinna sér keppnisrétt.
( Um túlkun:Auk þess var áskilið að ef eitthvert þeirra 10 efstu para vilji ekki nýta sér rétt sinn að ári þá færist rétturinn ekki til 11. sætis eða hærra. )
Samþykkt var eftirfarandi ályktun um áskorun til alþingis og ríkisstjórnar um styrkveitingar til BSÍ:
Ársþing Bridgesambands Íslands, haldið að Síðumúla 37 í Reykjavík, 22. október 2006 hefur borist vitneskja um að styrkveiting sem menntamálaráðuneyti hefur veitt sambandinu undanfarin ár, hafi verið felld út við fjárlagagerð.
Styrkur þessi hefur verið grundvöllur fyrir fræðslu og unglingastarfi og að auki gert okkur kleyft að keppa í bridgeíþróttinni á alþjóðavettvangi. Eins og vitað er bridgelandslið Íslendinga í opnum flokki náð einstökum árangri og hefur eitt íslenskra landsliða náð heimsmeistaratitli í hópíþrótt. Í þessu sambandi má geta þess að bridge er viðurkennd íþróttagrein af alþjóða Ólympíusambandinu.
Miklar líkur eru á að íslenska landsliðinu í bridge verði boðin þátttaka í heimsmeistaramótinu í Kína í október 2007.
Það er ljóst að falli styrkur þessi niður getur ekki orðið af þessari þátttöku auk þess sem fræðslu- og unglingastarf leggst niður, sem og stuðningur við bridgefélög á landsbyggðinni. Auk þess má geta þess að áætlað er að a.m.k. 25.000 manns spili bridge sér til ánægju á Íslandi í dag.
Ársþing BSÍ skorar á Alþingi og ríkisstjórn að tryggja áframhaldandi fjárstuðning við bridgehreyfinguna.
- - - - - - - -
Kristján Blöndal benti á að samræmdar reglur þyrftu ef til vill fyrir stjórn um styrkveitingar til þeirra sem taka vilja þátt í erlendum mótum. Bent var á að stjórn hefur heimildir til að veita styrki skv. lögum BSÍ.
Einnig var rætt um námskeið fyrir keppnisstjóra.
Fyrrverandi forseti BSÍ, Kristján Snorrason ávarpaði þingið í mótslok.
Hann taldi að húsnæðið stæði okkur að nokkru leyti fyrir þrifum. Bílastæði þyrftu að vera fáanleg að deginum til líka til að hægt væri að þjónusta bridgefélög eldri borgara og auka nýtingu húsnæðis.
Hann ræddi kosti þess að hafa kjördæmismótið áfram opið fyrir Færeyinga . Hann taldi að Bridgehátíð væri okkar markaðtækifæri, venja væri að bjóða erlendum spilurum einu sinni út að borða hvað væri heppilegra en Perlan.
Reynt hefði verið að halda utan um landsleikjafjölda einstaklinga en erfitt væri að grafa upp hverjir hefðu verið inná í hverjum leik.
Tvíhliða samningur hefði verið gerður við GPA um lægri húsaleigu ef fleiri nemendur skiluðu í almenna þátttöku.
Að lokum þakkaði Guðmundur Baldursson fyrir gott samstarf og sleit þingi.
Reykjavík 22.október 2006
Jörundur Þórðarson