30.október

mánudagur, 30. október 2006

1. fundur nýrrar stjórnar BSÍ 2006 - 2007

haldinn mánudaginn 30.okt. 2006.  Mættir voru: Guðmundur Baldursson, Garðar
Garðarsson, Helgi Bogason, Hrafnhildur Skúladóttir, Ísak Örn Sigurðsson,
Kristján Blöndal, Loftur Þór Pétursson, Ómar Olgeirsson, Stefanía
Sigurbjörnsdóttir og Sveinn Rúnar Eiríksson.

Dagskrá:
1. Nýendurkjörinn forseti, Guðmundur Baldursson, setti fund.
Hann greindi frá úrslitum síðustu móta:
Einmenningsmeistari með nokkrum yfirburðum varð Kristján Þorsteinsson frá
Dalvík.  Hann greindi frá úrslitum í Shell-Deildakeppninni (100 þús. króna
styrkur frá Skeljungi)
1. deild: 1. Eykt,  2.Garðar og Vélar,  3. Grant Thornton
2. deild:  1. Esja kjötvinnsla,  2. Tryggingamiðstöðin
3. deild:  1. Gunnar Björn Helgason,  2. Sveinbjörn Eyjólfsson
Forseti greindi frá mjög erfiðri fjárhagsstöðu eins og fram kom á nýafstöðnu
ársþingi.  Ýmsar orsakir s.s. ný spilagjafavél, tap á Bridgehátíð, landslið,
kaup á bridge-mate, BSÍ dottið af fjárlögum

2.Stjórn skiptir með sér verkum

Stjórn Bridgesambands Íslands 2006 - 2007
Forseti:  Guðmundur Baldursson
Varaforseti:  Kristján Blöndal eitt ár eftir
Gjaldkeri:  Stefanía Sigurbjörnsdóttir eitt ár eftir
Ritari:  Hrafnhildur Skúladóttir   til tveggja ára
Meðstjórnendur:
Helgi Bogason                                          til tveggja ára
Ómar Olgeirsson                         eitt ár eftir
Sveinn Rúnar Eiríksson                          til tveggja ára
Varastjórn:
Frímann Stefánsson
Garðar Garðarsson
Loftur Pétursson

Framkvæmdastjóri: Ísak Örn Sigurðsson

Rætt var hlutverk gjaldkera og framkvæmdastjóra.  Framkvæmdastjóri sér um
fjármál og daglegan rekstur í umboði stjórnar en gjaldkeri hefur eftirlit
með fjármálum.
Stjórnin hefur leyfi til að skipa í 3gja manna framkvæmdaráð og voru Ómar,
Helgi og Guðmundur endurkjörnir í það.

3.  Nefndaskipan á nýju starfsári:

Dómnefnd Bridgesamband Íslands 2006-2007 er skipuð:
Guðmundur Páll Arnarson formaður
Ásgeir Ásbjörnsson
Erla Sigurjónsdóttir
Garðar Garðarsson
Hermann Lárusson
Jónas P. Erlingsson
Matthías Þorvaldsson
Sigurbjörn Haraldsson
Sveinn Rúnar Eiríksson

Áfrýjunarnefnd BSÍ 2006-2007 skipa:
Guðjón Bragason formaður
Björgvin Þorsteinsson varaformaður
Esther Jakobsdóttir
Guðmundur Ágústsson
Guðmundur Sv. Hermannsson
Kristján Kristjánsson
Loftur Þór Pétursson

Meistarastiganefnd BSÍ 2006-2007 skipa:
Ómar Olgeirsson formaður
Gísli Steingrímsson
Gabríel Gíslason
Rætt var um útgáfu meistarastigaskrár, ákveðið að Ómar skyldi skoða kostnað.

Heiðursmerkjanefnd BSÍ 2006-2007 skipa:
Guðmundur Baldursson
Guðmundur Sv. Hermannsson
Kristján B. Snorrason


Laga- og keppnisreglunefnd BSÍ 2006-2007 skipa:
Kristján Blöndal formaður
Björgvin Már Kristinsson
Jón Baldursson

Fjölmiðlanefnd BSÍ 2006-2007 skipa:
Sveinn Rúnar Eiríksson formaður Heimasíða
Loftur Þór Pétursson                       Fjölmiðlar
Ómar Olgeirsson                        Textavarpið

Mótanefnd: BSÍ 2006-2007 skipa:
Formaður Ómar Olgeirsson
Páll Þórsson  
Sveinn Rúnar Eiríksson
varamaður
Garðar Garðarsson
( hér vantar 2 varamenn)
Að lokum var áréttað mikilvægi þess að skrifa fundargerð þegar fundað væri í
nefndum.

4. Önnur mál
Kristján Blöndal var ræddi tap á Bridgehátíð. Ísak mun fara á fund með
Flugleiðamönnum n.k. miðvikudag til að reyna að fá fasta fjárhæð fyrir
mótið.  Tomas Brenning er til í að koma aftur sem reiknimeistari.
Auglýsingar - sérhver stjórnarmaður reyni að útvega eitt fyrirtæki til að
auglýsa í húsakynnum BSÍ. (Logoflex skiltagerð GB)
Garðar var óhress með slaka mætingu á ársþing (aðeins 17 atkvæði af 57).
Hvernig á að koma skilaboðum örugglega áleiðis? Hvað er til ráða.  Reyna að
örva mætingu.
Garðar var ánægður með bridgekennslu GPA, fannst hún umbunar virði. Hann
ræddi einnig bjórsölu á föstudagskvöldum sem fer í taugarnar á mörgum. Guðm.
stakk upp á að leyfa aðeins sölu fyrir síðustu umferð. Rætt að skást væri að
sérhvert félag gæti sett sínar eigin reglur um þetta mál.
B.R. ætlar að hætta með bridge á föstudögum bráðlega, í síðasta lagi um
áramót.  Fyrirspurn til Sveins Eiríkssonar um að stofna annan einkarekinn
klúbb í staðinn.
Forseti ræddi um kvennabridge, almenn ánægja með kennslu GPA og samþykkt að
reyna að fá GPA í að halda fleiri námskeið.
Ákveðið var að verða við skriflegri beiðni yngri spilara um að fá að halda
opið mót í apríl til styrkja þá til frekari þátttöku í mótum erlendis.  Rætt
var um leiðir til að koma bridsi inn í framhaldsskólana og bjóða upp á
framhaldsnámskeið fyrir þá nem. hjá BSÍ.

Reykjavík  30.okt. 2006
Hrafnhildur Skúladóttir

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar