30.október
1. fundur nýrrar stjórnar BSÍ 2006 - 2007
haldinn mánudaginn 30.okt. 2006. Mættir voru: Guðmundur
Baldursson, Garðar
Garðarsson, Helgi Bogason, Hrafnhildur Skúladóttir, Ísak Örn
Sigurðsson,
Kristján Blöndal, Loftur Þór Pétursson, Ómar Olgeirsson,
Stefanía
Sigurbjörnsdóttir og Sveinn Rúnar Eiríksson.
Dagskrá:
1. Nýendurkjörinn forseti, Guðmundur Baldursson, setti fund.
Hann greindi frá úrslitum síðustu móta:
Einmenningsmeistari með nokkrum yfirburðum varð Kristján
Þorsteinsson frá
Dalvík. Hann greindi frá úrslitum í Shell-Deildakeppninni
(100 þús. króna
styrkur frá Skeljungi)
1. deild: 1. Eykt, 2.Garðar og Vélar, 3. Grant
Thornton
2. deild: 1. Esja kjötvinnsla, 2.
Tryggingamiðstöðin
3. deild: 1. Gunnar Björn Helgason, 2. Sveinbjörn
Eyjólfsson
Forseti greindi frá mjög erfiðri fjárhagsstöðu eins og fram kom á
nýafstöðnu
ársþingi. Ýmsar orsakir s.s. ný spilagjafavél, tap á
Bridgehátíð, landslið,
kaup á bridge-mate, BSÍ dottið af fjárlögum
2.Stjórn skiptir með sér verkum
Stjórn Bridgesambands Íslands 2006 - 2007
Forseti: Guðmundur Baldursson
Varaforseti: Kristján Blöndal eitt ár eftir
Gjaldkeri: Stefanía Sigurbjörnsdóttir eitt ár eftir
Ritari: Hrafnhildur Skúladóttir til tveggja
ára
Meðstjórnendur:
Helgi
Bogason
til tveggja ára
Ómar Olgeirsson
eitt ár eftir
Sveinn Rúnar Eiríksson
til tveggja ára
Varastjórn:
Frímann Stefánsson
Garðar Garðarsson
Loftur Pétursson
Framkvæmdastjóri: Ísak Örn Sigurðsson
Rætt var hlutverk gjaldkera og framkvæmdastjóra.
Framkvæmdastjóri sér um
fjármál og daglegan rekstur í umboði stjórnar en gjaldkeri hefur
eftirlit
með fjármálum.
Stjórnin hefur leyfi til að skipa í 3gja manna framkvæmdaráð og
voru Ómar,
Helgi og Guðmundur endurkjörnir í það.
3. Nefndaskipan á nýju starfsári:
Dómnefnd Bridgesamband Íslands 2006-2007 er skipuð:
Guðmundur Páll Arnarson formaður
Ásgeir Ásbjörnsson
Erla Sigurjónsdóttir
Garðar Garðarsson
Hermann Lárusson
Jónas P. Erlingsson
Matthías Þorvaldsson
Sigurbjörn Haraldsson
Sveinn Rúnar Eiríksson
Áfrýjunarnefnd BSÍ 2006-2007 skipa:
Guðjón Bragason formaður
Björgvin Þorsteinsson varaformaður
Esther Jakobsdóttir
Guðmundur Ágústsson
Guðmundur Sv. Hermannsson
Kristján Kristjánsson
Loftur Þór Pétursson
Meistarastiganefnd BSÍ 2006-2007 skipa:
Ómar Olgeirsson formaður
Gísli Steingrímsson
Gabríel Gíslason
Rætt var um útgáfu meistarastigaskrár, ákveðið að Ómar skyldi skoða
kostnað.
Heiðursmerkjanefnd BSÍ 2006-2007 skipa:
Guðmundur Baldursson
Guðmundur Sv. Hermannsson
Kristján B. Snorrason
Laga- og keppnisreglunefnd BSÍ 2006-2007 skipa:
Kristján Blöndal formaður
Björgvin Már Kristinsson
Jón Baldursson
Fjölmiðlanefnd BSÍ 2006-2007 skipa:
Sveinn Rúnar Eiríksson formaður Heimasíða
Loftur Þór Pétursson
Fjölmiðlar
Ómar Olgeirsson
Textavarpið
Mótanefnd: BSÍ 2006-2007 skipa:
Formaður Ómar Olgeirsson
Páll Þórsson
Sveinn Rúnar Eiríksson
varamaður
Garðar Garðarsson
( hér vantar 2 varamenn)
Að lokum var áréttað mikilvægi þess að skrifa fundargerð þegar
fundað væri í
nefndum.
4. Önnur mál
Kristján Blöndal var ræddi tap á Bridgehátíð. Ísak mun fara á fund
með
Flugleiðamönnum n.k. miðvikudag til að reyna að fá fasta fjárhæð
fyrir
mótið. Tomas Brenning er til í að koma aftur sem
reiknimeistari.
Auglýsingar - sérhver stjórnarmaður reyni að útvega eitt fyrirtæki
til að
auglýsa í húsakynnum BSÍ. (Logoflex skiltagerð GB)
Garðar var óhress með slaka mætingu á ársþing (aðeins 17 atkvæði af
57).
Hvernig á að koma skilaboðum örugglega áleiðis? Hvað er til
ráða. Reyna að
örva mætingu.
Garðar var ánægður með bridgekennslu GPA, fannst hún umbunar virði.
Hann
ræddi einnig bjórsölu á föstudagskvöldum sem fer í taugarnar á
mörgum. Guðm.
stakk upp á að leyfa aðeins sölu fyrir síðustu umferð. Rætt að
skást væri að
sérhvert félag gæti sett sínar eigin reglur um þetta mál.
B.R. ætlar að hætta með bridge á föstudögum bráðlega, í síðasta
lagi um
áramót. Fyrirspurn til Sveins Eiríkssonar um að stofna annan
einkarekinn
klúbb í staðinn.
Forseti ræddi um kvennabridge, almenn ánægja með kennslu GPA og
samþykkt að
reyna að fá GPA í að halda fleiri námskeið.
Ákveðið var að verða við skriflegri beiðni yngri spilara um að fá
að halda
opið mót í apríl til styrkja þá til frekari þátttöku í mótum
erlendis. Rætt
var um leiðir til að koma bridsi inn í framhaldsskólana og bjóða
upp á
framhaldsnámskeið fyrir þá nem. hjá BSÍ.
Reykjavík 30.okt. 2006
Hrafnhildur Skúladóttir