12.október
Stjórnarfundur Bridgesamband Íslands
Fundur var haldin fimmtudaginn 12 október 2006. Kl. 17:30 -
19:15
Mættir voru Guðmundur Baldursson, Ísak Örn Sigurðsson, Helgi
Bogason,
Halldóra Magnúsdóttir, Sveinn Eiríksson, Páll Þórsson, Svala
Kristín
Pálsdóttir, Kristján Blöndal og Ómar Olgeirsson. Forföll boðuðu
Hrafnhildur
Skúladóttir og Frímann Stefánsson.
1. Skýrsla forseta
Þremur frökkum óskað til hamingju með sigurinn í bikarkeppninni,
en tveir meðlimir
sveitarinnar sitja í stjórn BSÍ, Kristján og Ómar
og Ísak framkvæmdastjóri BSÍ.
Búið er að sækja um ríkisstyrkinn en ekkert svar borist
ennþá.
2. Skýrsla framkvæmdastjóra
Bókhald BSÍ er komið í gott form og ársreikningurinn tilbúinn, og
verður
birtur á vefsíðu BSÍ í þessari viku. Við stöndum tæpt
fjárhagslega, mikil
útgjöld á síðasta ári. Bridgemate var keypt og landsliðin taka sitt
og
minnkandi innkoma af spilagjöldum. Rekstur veitingasölunnar er í
mínus en
þar hafa líka verið gerðar endurbætur sem eiga vonandi eftir að
skila sér á
næstu árum. Góð þjónusta við spilara.
3. Bridgehátíð
Umræðu um Bridgehátíð frestað vegna fundar Bridgehátíðarnefndar
seinna um
kvöldið. Þarf að fara að huga að boðsveitum.
4. Fjármál
Ársreikningur skoðaður og yfirfarinn, hann ræddur og umræður um
hvað mætti
betur fara og hvernig hægt sé að auka tekjur BSÍ og fleira
í þeim dúr
rætt og skoðað.
5. Íslandsmótið í tvímenning,
Vegna óánægju með fyrirkomulag á Íslandsmótinu í fyrra voru
nokkrar
tilllögur frá laga- og keppnisreglunefnd skoðaðar og var ein af
þeim samþykkt og verður lögð fram á ársþingi BSÍ. Sveinn
gerir tillöguna klára fyrir ársþingið.
6. Ársþing
Almenn umræða um ársþingið og vonaði stjórnin að mæting yrði góð og
vonar að
sem flestir sem hafa áhuga á framgangi bridgeíþróttarinnar sjái sér
fært að
mæta.
7. Önnur mál
Húsnæðismálin rædd.
Rætt um að bjóða landsliðsmönnum á Íslandsmótið í einmenning. Lækka
spilagjaldið og auglýsa mótið vel upp.
Svala Pálsdóttir