4.9.2006
Stjórnarfundur Bridgesambands Íslands
9. fundur var haldinn mánudaginn 4. sept. klukkan 17:30 -
19.00
Mættir: Guðmundur Baldursson, Halldóra Magnúsdóttir,
Hrafnhildur
Skúladóttir, Ísak Sigurðsson, Kristján Blöndal, Ómar Olgeirsson og
Sveinn
Eiríksson. Forföll boðuðu Frímann Stefánsson, Helgi Bogason, Páll
Þórsson og
Svala Pálsdóttir
1. Landsliðsmál: Forseti setti fund og ræddi árangur á
Evrópumóti,
landslið okkar í opnum flokki stóð sig mjög vel og endaði í 7. sæti
en
árangur kvennaliðs var slakur. Miklar líkur eru á að landslið í
opnum flokki
komist áfram sem fyrsta varasveit á heimsmeistaramótið í Shanghai
haustið
2007 og þá fær landsliðið líklega þá styrki sem búið var að sækja
um ( fyrir
árið 2007).
Kristján Blöndal ræddi um landslið kvenna. Landsliðið nú er
ekki
mikið slakara en árin áður, liðið er reynslulítið, meiri breidd er
í Evrópu.
Aðeins 22 þjóðir voru með kvennasveit en 33 með sveit í opnum
flokki.
Fjármál: Kostnaðarliðir í sambandi við s.l. Evrópumót eru
ekki
fullfrágengnir.
2. Bridgehátíðin: Hún hefjist á Stjörnutvímenningi
miðvikudaginn
14.febr. og endi á sunnudegi 18.febr. 2007. Skipaðir í
Bridgehátíðarnefnd
eru: Kristján Blöndal, Sveinn R Eiríksson og Gunnlaugur
Karlsson.
3. Önnur mál: Mótaskráin er að verða tilbúin.
Ársþing BSÍ verður haldið 22.október
Næsti fundur verður 9.okt. kl. 17.30.
Fundi slitið kl 19.00
____________________
Hrafnhildur Skúladóttir