6.mars.2006
mánudagur, 6. mars 2006
Stjórnarfundur Bridgesambands Íslands
6. fundur var haldinn mánudaginn 6. mars
klukkan 17:30 - 19.15
Mættir: Guðmundur Baldursson, Helgi Bogason, Hrafnhildur
Skúladóttir, Ísak Sigurðsson, Kristján Blöndal, Páll Þórsson og
Sveinn Eiríksson. Forföll boðuðu Svala, Ómar og Halldóra.
1. Frá forseta: Almennt virtist mikil ánægja með
Bridgehátíð. Íslenskir spilarar stóðu sig vel og sópuðu til sín
verðlaunum.
Heldur var dræm þátttaka í Íslandsmóti kvenna í sveitakeppni,
aðeins 8 sveitir.
Viðhald á eignum: Áætlaður kostnaður við viðgerð á húsi er 2-3
milljónir, BSÍ á 28% hlut í því. Búið að samþykkja að malbika
planið fyrir utan.
(Er ekki nóg að gera við göt á malbiki? HS)
2. Ísak dreifði skjali um tekjur og gjöld af Bridgehátíð
og stóð hún nokkurn veginn undir sér. Nota stjörnutvímenning sem
fjáröflun
3. Bridgemate: Rætt var um kaup á bridgemate, Sveinn
taldi mögulegt að nota bridgemate í úrslitum Íslandsmóts í
apríl
Helstu kostir er söfnun upplýsinga, sparar kostnað við að reikna
út Butler. 60 stykki kosta ca. 600 þús. kr. Stefnt á að fá
forrit sem er auðvelt í notkun, svo sem flestir geti notað það. Við
höfum 6 mánuði til að prófa og ákveða hvort af kaupum verður.
Sveinn stakk upp á að allir bridgespilarar fengju ákveðið númer svo
hægt væri að búa til gagnagrunn þar sem spilarar geti flett upp
upplýsingum. Samþykkt að Sveinn og Ómar verði í nefnd um kaup
á bridgemate. Sveinn ætlar að prófa það á mánudagskvöldum. Skoða
kostnað við gagnagrunn. Leigja BM út á mótum. Reynt að fá
styrktaraðila fyrir Íslandsmót. Hugmynd að selja "Skrínin".
Íslendingar voru fljótir að tileinka sér BM. Hvernig sjáum við það
eftir 3-4 ár?
Ísak bað um leyfi til að kaupa fartölvu. Samþykkt..
4. Samþykkt að Sumarbridge verði á vegum BSÍ. Auglýsa
eftir 2-3 til að sjá um SB. Þeir reyna að fá fyrirtæki til að gefa
verðlaun og að gera þetta áhugavert.
5. Unglingar til Slóvakíu. 11 krakkar hafa áhuga á
að fara til Slóvakíu 2ja daga heimsmót + kampur á eftir. Kostnaður
er ca. 50þús. á mann (alls). Unglingar fá flöskurnar úr sjoppunni.
Mónumót notað til að styrkja unglingana? Samþykkt að bóka flug
fyrir hópinn og fararstjóra. Styrkur upp á 50%?
6. Landsliðin og Evrópumót: Búið að velja karlalandslið.
Fjáröflun í gangi. Hvernig á að framkvæma mót í kvennaflokki.
Samþykkt að Kristján Bl. ræði við konur á fimmtudag. Ísak og Helgi
athugi með hótel og flug.
7. Heiðursmerki. Rætt um tillögu
heiðursmerkjanefndar.
8. Önnur mál: Rætt var um kærumál á Bridgehátíð. Þau þurfa
að vera í ákveðnum farvegi, t.d. að ekki líði nema ein umferð þar
til dómur fæst.
Árshátíð kvenna - stigareikningur, sækja um til stiganefndar.
Kostnaður er 250 kr. á færslu (fyrir hvern spilara sem fær
stig)
Kanna farveg fyrir eldri spilara á Evrópumót (styrkt e-ð)
Fundi slitið kl 19.15
Hrafnhildur Skúladóttir