1. Stjórnarfundur 23.ágúst
2005
Dagskrá fundarins:
Dagskráin var löng, en ekki vannst tími til að klára öll
atriðin:
1. Heimasíðan
2. Fjölmiðlaumfjöllun
3. Mótaskráin
4. Málefni skrifstofunnar, starfsmannamál, bókhald, sjoppa.
5. Norðurlandamótið
6. Agamál og meðferð þeirra.
7. Landsliðsþjálfun allra flokka
8. Alþjóðleg samskipti sem voru m.a. rædd við Dani og fl. á
Norðurlandamótinu, auk þess sem fulltrúar okkar voru duglegir við
að vekja athygli á okkur á sumarsvæðamóti Bandaríkjanna.
9. Fjármál og fræðslumál, fræðslufulltrúi
10. Lokavinnsla starfslýsinga
11. Rekstur Síðumúla 37, viðgerð á gólfi og fl.
12. Leit að nýjum forseta sambandsins vegna breyttra aðstæðna
núverandi forseta.
13. Reglur um útleigu salarins til bridge-spilara við hátíðleg
tækifæri.
14. Íslandsmeistaramót í einmenningi kvenna
15. Skeyti-gjafir til bridgespilara á stór-afmælum
16. Heiðursverðlaun og viðurkenningar til spilara
17. Undirbúningur að ársþingi í október
18. Önnur mál!!
Fundur var settur kl. 17:45
1. Heimasíðan.
Helgi talaði um heimasíðuna. Hann sagði að farin væri af stað vinna
við forritun á útliti nýrrar heimasíðu í nýju vefumsjónarkerfi.
Vinnan er langt komin. Hann segir að síðan verði ekki mjög
notendavæn til að byrja með, á meðan ekki verður búið að flytja inn
öll gögn sem setja á inn á síðuna, en það kemur til með að lagast
smátt og smátt. Stefnt að gangsetningu 3. vikuna í september.
2. Fjölmiðlaumfjöllun.
Kristján forseti ræddi fréttaleysi af Norðurlandamótinu, en engin
umfjöllun var um mótið, hvorki í blöðum né í útvarpi. Forseti
sagðist hafa boðist fyrir mótið að senda pistla í Morgunblaðið, en
það hafi verið afþakkað, og sagðist Morgunblaðið ætla að sjá um það
sjálft.
Forseti segir ljóst að BSÍ þurfi að fóðra blöðin framvegis með
fréttum. Setja þurfi það inn í starfslýsingu starfsmanns BSÍ.
Einnig sagðist hann ætla að ræða við Morgunblaðið.
3. Mótaskráin.
Sveinn Rúnar lagði fram drög að mótaskrá komandi keppnistímabils.
Bent var á vankanta vegna dagsetningu ársþings BSÍ. Stjórnin
settist yfir mótaskrána og raðaði mótunum í október og nóvember upp
á nýtt til að bæta úr því. Rætt var um Íslandsmót eldri spilara,
hvort BSÍ ætti ekki að reyna að fá klúbba eldri borgara til að taka
þátt. Kristján Blöndal tók að sér að skoða málið ásamt Erlu og
Indu.
4. Skrifstofan o.fl.
a) Framkvæmdastjóri: Lögð fram tillaga um að farið verði af stað
með ráðningarferli framkvæmdstjóra. Rætt verði við umsækjendur frá
í vor. Matthías taki málið að sér.
b) Bókhald: Samþykkt að finna traustan aðila til að sjá um að færa
bókhaldið.
c) Sjoppan: Það er nauðsynlegt að koma upp pylsupotti í sjoppuni.
Samþykkt að BSÍ reki sjoppuna þar til búið verði að ráða
framkvæmdastjóra. Eftir það verði fundið út hvað sjoppan er að
skila BSÍ í tekjum, og ákvörðun tekin í framhaldinu. Inda þarf að
huga að mönnun sjoppunar
5. Norðurlandamót.
Árangur varð undir væntingum í öllum flokkum. Opni flokkurinn var í
baráttunni framan af, en lét undan í restina. Kvennaflokkurinn var
í 4. sæti eftir 6 umferðir, en varð síðan undir í framhaldinu.
Yngri spilara flokkurinn var í basli, en seinni umferðin var betri
en sú fyrri. Þeir höfðu þó áhrif á lokaúrslit mótsins.
Esther sá um kvennaliðið og Magnús sá um yngrispilara liðið auk
Bjarna.
Forseti leggur til að áður en spilarar fari erlendis að spila fyrir
hönd BSÍ, þá kalli forseti og/eða framkvæmdaráð spilara á sinn fund
ásamt liðsstjórum og leggi þeim reglur hvernig hegðun þeirra eigi
að vera.
Jóhann vildi að það kæmi fram að unglingarnir hefðu verið okkur til
mikilla sóma.
Erla bar upp þá tillögu að búningar sem útbúnir væru yrðu framvegis
geymdir í BSÍ og afhendir þaðan til notkunar. Starfsmanni var falið
að innkalla fötin.
6. Agamál og meðferð þeirra.
Framkvæmdaráði er falið að taka fyrir mál sem var sent til
umfjöllunar hjá stjórn. Ársþing þarf síðan að taka fyrir hvernig
haga skal meðferð slíkra mála í framtíðinni. Ólafi falið að móta
tillögur.
7. Landsliðsþjálfun allra flokka.
Á næsta ári er EM í Póllandi. Ákveðið að reyna að fá mann til að
stýra opna flokknum til lengri tíma, með það að markmiði að ná
árangri 2008 eða 2010.
8. Alþjóðleg samskipti.
Thomas Brenning býðst til að koma á Bridgehátíð og reikna mótið.
Notuð yrðu skráningartæki, þannig að hægt yrði að birta lifandi
upplýsingar á netinu. Í framhaldinu yrði BSÍ gert kleyft að kaupa
skráningartækin á lágmarksverði.
Norðmenn eru orðnir aðilar að danskaforritakerfinu. Stefnt er að
því ný útgáfa á kerfinu verði orðin nothæf eftir ca. 12-18
mánuði.
|