5. apríl 2005
Stjórnarfundur BSÍ 05. apríl 2005
Mættir á fundinn: Kristján B Snorrason, Erla
Sigurjónsdóttir, Helgi Bogason, Jóhann Stefánsson, Sveinn R
Eiríksson, Kristján Blöndal, Matthías Þorvaldsson og Guðmundur
Ólafsson. Fjarverandi: Einar H Jónsson, Ólafur Steinason.
1. Ráðning framkvæmdastjóra
Niðurstaða fundar Matthíasar, Kristjáns Bl. og Sveins um hvort
fýsilegra væri að hafa tvo starfsmenn hjá BSÍ (eða einn og hálfan)
en einn varð var ekki afgerandi. Forseti sagði frá því að hann
hefði ekki haldið fund með þeim aðila sem var efstur á lista
varðandi framkvæmdastjórastarfið. Rökstuddi hann þá ákvörðun og
óskaði eftir umræðu um hana. Eftir nokkrar umræður lagði hann svo
fram tillögu um að hætta við ráðningu framkvæmdastjóra að sinni og
var það samþykkt samhljóða. Stjórnin ákvað að ráðinn skyldi
starfsmanður á skrifstofu til að byrja með, en svo væri rétt að
bíða og sjá hvernig færi með þá umleitan til yfirvalda að fá
styrkveitingu til fræðslu- og kynningarfulltrúa. Forseti kanni
hvort lagabreytingar þarf til á næsta þingi, verði endanleg
niðurstaða sú að leggja niður framkvæmdastjóraembættið. |
2. Skrifstofan Forseta falið að klára samninga við Indu Hrönn Björnsdóttur, til
næstu 3ja mánaða (út júní). |
3. Yngri spilarar Kristján forseti og Erla héldu fund með Bjarna H Einarssyni um
undirbúnings- og fyrirliðamál yngri spilara fyrir NM í sumar. Ekki
náðust samningar í fyrstu tilraun, en þau fá nú umboð til að reyna
til þrautar, að vísu innan ákv. marka. |
4. Bridgehátíðarnefnd Hlutverk nefndarinnar rætt. Stjórnin ákvað að skipa nýja
Bridgehátíðarnefnd. Varaforseti beðinn að taka sæti í nefndinni,
honum var einnig falið að kanna hvort mótsstjóri síðustu
Bridgehátíðar, Elín Bjarnadóttir, sé tilbúin til nefndarstarfa og
að finna annan/aðra til samstarfs. Bókaðar þakkir til fyrri
nefndar, hér sé alls ekki verið að lýsa vantrausti á störf
hennar. |
5. Starfslýsingar Matthías og Sveinn Rúnar þurfa að fara að skila af sér tillögum
um starfslýsingar fyrir hin ýmsu störf. Hefur setið á
hakanum. |
6. Veitingasalan og Sumarbridge
2005 Stjórnin samþykkti að rekstur Sumarbridge 2005 yrði nú í höndum
BSÍ. Rekstur veitingasölunnar einnig, í sumar, en stefnt að því að
bjóða rekstur hennar út í haust. Helgi, Matthías og Sveinn ákveði
hvernig Sumarbridge 2005 verði háttað, hvaða þjónusta verður í boði
fyrir spilara o.s.frv. |
7. Bókhaldsmál Vignir Hauksson tók að sér að ganga frá launum og vsk fyrir
síðasta tímabili, mun vonandi taka að sér bókhald BSÍ. |
8. Önnur mál Matthías kom með tillögu um að skrifstofa BSÍ endurveki
Firmakeppni BSÍ, safni sveitum, hringi í fyrirtæki og mótið fari
fram laugardaginn 14. maí. Tillagan var samþykkt. Ákveða þarf
tilhögun mótsins, keppnisgjald, verðlaun o.s.frv. Mótanefnd og
skrifstofan vinni saman að þessu, hratt, því stutt er í mót. |
9. Óklárað frá síðasta fundi
Fjáröflunarmál voru ekki tekin fyrir, þó það hafi staðið til,
skv. síðustu fundargerð. Verða rædd næst, 12. apríl. |