8. mars 2005
Stjórnarfundur BSÍ 08. mars 2005
Mættir á fundinn: Kristján B. Snorrason, Ólafur
Steinason, Erla Sigurjónsdóttir, Jóhann Stefánsson, Guðmundur
Ólafsson, Sveinn Rúnar Eiríksson, Einar Jónsson, Kristján Blöndal
og Matthías Þorvaldsson. Helgi Bogason var fjarverandi.
1. Skýrsla forseta. Forseti setti fundinn kl. 17:10 og bauð fundarmenn
velkomna. |
2. Bridgehátíð. Framkvæmd Bridgehátíðar tókst vel, ekkert óvænt kom upp á, fyrir
utan 1 atriði sem Sveinn Rúnar gat aðstoðað við lausn á. Ekki er
tilbúið uppgjör ennþá, en það lítur út fyrir að hagnaður hafi orðið
á hátíðinni. Ýmsan lærdóm er hægt að læra af mótinu, sem nýta má
við framkvæmd næstu Bridgehátíðar. Stjórn var sammála um að ganga
þyrfti strax í að fá gesti á næstu hátíð. Lagt til að ný
Bridgehátíðarnefnd verði skipuð á næsta stjórnarfundi. Einnig lagt
til að skoðaðir verði þeir möguleikar að flytja mótið á Nordica
Hótel. |
3. Umsóknir um starf
framkvæmdastjóra. Tekið fyrir síðast á fundium, og vék Jóhann af fundi meðan þessi
liður var tekinn fyrir, vegna náinna tengsla við einn umsækjanda.
Forseti kynnti umsækjendurna. Alls sóttu 25 um starfið. IMG
flokkaði umsækjendur í 3 flokka, A, B og C eftir hvernig þeir töldu
að umsækjendur hentuðu í starfið. 9 umsækjendur voru A-merktir og
var samþykkt að framkvæmdaráðið myndi ræða valda umsækjendur úr
þessum hópi. |
4. Undanúrslit Íslandsmótsins í
sveitakeppni. Kannaðir voru ýmsir staðir með það fyrir augum að halda mótið
annars staðar en að Síðumúla 35 og 37. Ekki náðist að finna annan
stað með svo stuttum fyrirvara. Stjórnin samþykkti að stefna að því
að mótið yrði ekki haldið í húsnæði BSÍ á næsta ári, heldur þar sem
hægt er að spila á einum stað. Verið er að reyna að fá Borgarstjóra
til að slíta mótinu. |
5. Yngri spilarar. Bjarni Einarsson kom á fundinn. Hann kynnti hugmyndir sínar um
þjálfun yngri spilarara landsliðs. Stjórnin tók vel undir
hugmyndirnar og samþykkti að taka málið nánar fyrir á næsta
stjórnarfundi. Bjarni vék aftur af fundi. |
6. Heimasíða BSÍ. Heimasíðumálin eru ekki í góðum málum í dag. Uppfærslur eru ekki
aðgengilegar. Stjórnin var sammála að síða BSÍ þyrfti að vera meira
lifandi, með örari uppfærslum. Mælt með að skoða tilboð frá nokkrum
þjónustuaðilum. Sveinn Rúnar tekur að sér að sjá um uppfærslur á
gömlu heimasíðunni þar til nýtt kerfi verður tekið í notkun. |
7. Önnur mál. a) Eldri borgarar spyrja um kostnað við það að þeir komi í
húsnæði BSÍ og spili 2. í viku milli kl. 13 og 16. Kristján forseti
ætlar að ræða við forsvarsmann þ eirra. |