8. janúar 2005
Stjórnarfundur BSÍ 08. janúar 2005
Mættir á fundinn: Kristján B. Snorrason, Guðmundur
Ólafsson, Matthías Þorvaldsson, Sveinn Rúnar Eiríksson, Jóhann
Stefánsson, Kristján Blöndal Fjarverandi voru Einar H Jónsson,
Ólafur Steinason og Erla Sigurjónsdóttir
1. Skýrsla forseta Kristján setti fund og bauð fundarmenn velkomna á nýju og
farsælu ári. Hann reifaði í stuttu máli starfsemi briddsfélaga um
landið um jól og áramót en flest félög halda mót á þessum árstíma.
Hann gat sérstaklega um Harðarmótið sem er minningarmót um Hörð
Þórðarson og Borgarnesmótið sem hafa áunnið sér fastan sess í
briddslífi Íslendinga. Borgarnesmótið var fámennara nú en stundum
áður og hugsanlega hefur kynning á því móti ekki verið í lagi. Hann
nefndi einnig að það væri bagalegt að uppfærslur á briddssíðum
textavarpsins væru í ólagi, en þær hafa ekki verið uppfærðar síðan
fyrir jól. Ástæður fyrir því væru meðal annars að skrifstofa
sambandsins væru lokaðar á milli jóla og nýjaárs. |
2. Skýrsla framkvæmdastjóra
Þar sem Stefanía framkvæmdastjóri sambandsins var forfölluð þá
datt þessi liður niður að mestu Kristján kynnti þó lauslega erindi
sem borist höfðu til Briddssambandsins. |
3. Bridgehátíð 2005 Skráning á Flugleiðamótið er enn í fullum gangi og mótið í ár
verður greinilega vel skipað. Katz kemur með sveit, (Hjördís,
Curtis og unglingalandsliðsmaður sem vantar nafn á) og nokkrar
fyrirspurnir hafa borist sem eru spennandi. Stjórnin samþykkti þá
tillögu að fjölga verðlaunaflokkum í tvímenningnum um fjóra. Veitt
verða verðlaun sem nema 300 dollurum til efsta kvennaparsins, |
4. Starfslýsingar Rætt var um starfslýsingu framkvæmdastjóra. Ákveðið var að segja
núverandi samningi framkvæmdastjóra Briddsambandis upp frá 1.
febrúar. Hann fellur þá úr gildi 1. maí. Stefnt skal að því að nýr
samningur með verklýsingu framkvæmdastjóra liggi fyrir sem fyrst
(fyrir 1. febrúar ef mögulegt er) Aðrar verklýsingar þurfa að
liggja fyrir á sama tíma til að tryggja samræmi og forðast skörun á
milli starfa. |
5. Önnur mál "Svenni óskaði eftir því að Briddssambandið efldi starf með
eldri borgurum. Hann hefur ákveðnar hugmyndir um það mál. Stjórnin
samþykkti að hann í samvinnu við Þórð Ingólfsson skoðaði það mál
nánar og byði eldri borgurum hugsanlega upp á bridds á miðvikudögum
frá kl 13 - 17." |