26. janúar 2005
Stjórnarfundur BSÍ 26. janúar 2005
Mættir á fundinn: Kristján B. Snorrason, Guðmundur
Ólafsson, Ólafur Steinason, Einar Jónsson, Kristján Blöndal,
Matthías Þorvaldsson, Helgi Bogason og Jóhann Stefánsson. Erla
Sigurjónsdóttir og Sveinn Rúnar Eiríksson voru fjarverandi. Forseti
setti fundinn kl. 17:20 og bauð fundarmenn velkomna. Hann byrjaði á
því að þakka fyrir afmælisgjöfina, sem beið hans á fundinum.
1. Gagnrýni Áður en gengið var til dagskrár, þá kom fram gagnrýni frá Einari
og Ólafi á það á síðasta stjórnarfundi (11. janúar) var tekið fyrir
stórt mál án þess að það væri á dagskrá fundarins í fundarboði.
Forseti baðst afsökunar á þessari meðferð málsins, en skýrði málið
og sagði að þetta hefði verið gert vegna tímapressu. Stjórnin
samþykkti síðan ályktun þess efnis að leitast verði til að stór mál
verði ekki tekin fyrir á stjórnarfundum án þess að þeirra verði
getið í fundarboði. |
2. Starfslýsing og starfssamningur
framkvæmdastjóra Lögð fram starfslýsing og drög að ráðningarsamningi við
framkvæmdastjóra BSÍ. Umræður urðu talsverðar um málið, þar sem
drögin að ráðningarsamningnum var tekin fyrir lið fyrir lið og
samþykkt samhljóða. |
3. Ráðstefna á Ítalíu 3. - 6. febrúar
hjá EBL. Stefnt að því að 1-2 menn fari með sem minnstum
tilkostnaði. |
4. Unglingalandslið Búið að samþykja að senda opinn-, kvenna- og yngri spilara
flokka á Norðurlandamótið 2005. Spurning hvort senda eigi skólalið
(þ.e. yngri flokk yngri spilara). Samþykkt að senda lið ef
frambærilegur hópur fæst. Einar tekur að sér að kanna málið.
Jafnframt mun Einar ræða við Sigurbjörn Haraldsson um stjórnun og
umsjón eldri flokksins. |