16. nóvember 2004
þriðjudagur, 16. nóvember 2004
Stjórnarfundur BSÍ 16. nóvember 2004
Mættir á fundinn: Kristján B. Snorrason, Guðmundur
Ólafsson, Erla Sigurjónsdóttir, Ólafur Steinason, Einar Jónsson og
Stefanía Skarphéðinsdóttir. Kristján Blöndal og Matthías
Þorvaldsson mættu eftir að fundur var hafinn. Helgi Bogason, Jóhann
Stefánsson og Sveinn Rúnar Eiríksson voru fjarverandi.
1. Skýrsla framkvæmdastjóra
Forseti setti fundinn kl. 17:05 og bauð fundarmenn
velkomna.
Búið er að skuldbreyta lánum. Stefanía flutti þau skilaboð frá
Sveini Rúnari, sem var staddur erlendis, að Birkir Jón Jónsson yrði
3. maðurinn í mótanefnd, og varamenn yrðu þau sömu og síðustu ár:
Brynjólfur Gestsson, Ljósbrá Baldursdóttir og Þorvaldur
Pálmason.
|
2. Skýrsla forseta
Kristján forseti ræddi góðan árangur Íslendinga á nýliðnu
Ólympíumóti. Hann sagði að það hefði verið ánægjulegt að komast upp
úr riðlinum og það sýndi að liðið hefði átt erindi á mótið.
Samþykkt var að umbuna landsliðinu fyrir árangurinn með því að
bjóða þeim út að borða ásamt mökum.
Boðsmót verður haldið í Uppsölum í Svíþjóð 4. - 5. des. nk. og er
íslenskri sveit boðið upp á hótelkostnað. Samþykkt að bjóða
núverandi bikarmeisturum (sveit Orkuveitunnar) að fara á eigin
kostnað.
|
3. Stefnumótun
Forseti sagði að gera þurfi starfslýsingar fyrir forseta,
stjórn, framkvæmdstjóra, nefndir og keppnisstjóra BSÍ. Samþykkt að
Matthías vinni starfslýsingu forseta, Guðmundur starfslýsingu
framkvæmdastjóra, Ólafur framkvæmdaráðs og Kristján forseti leiði
restina af starfslýsingagerð.
a) Fjármál.
Stefanía lagði fram drög að fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.
Rætt var um hvort rétt væri að fá fjárhagsáætlun fyrir hvert mót á
vegum BSÍ og fá síðan samanburð á uppgjöri og áætlun eftir mótin.
Rætt var um starfsmannahald í mótum BSÍ og möguleika á hagræðingu,
án þess þó að minnka þjónustu. Þá var rætt var um söfnun
bridgesögunnar og einnig var rætt um þörfina á að vinna upp
talningu á landsleikjum bridgespilara.
Umræða varð um hvort betra væri að ráða mann til að safna
auglýsingum fyrir BSÍ upp á hlut eða stjórnarmenn ynnu að
tengslaneti. Samþykkt að fá Svein Rúnar til að skipuleggja
fjáröflun fyrir BSÍ.
b) Fræðslumál
Einar Jónsson tekur að sér að skoða stefnumótun um fræðslumál, og
fá með sér fleiri góða menn.
c) Landslið
a) Kvennalandslið: Það liggur fyrir skýrsla stefnumótunarnefndar.
Samþykkt að skipa nefnd sem fær yfirráð yfir landsliðsmálum kvenna.
Rætt verður við Gylfa Baldursson um að leiða nefndina og ef hann
samþykkir það, þá verði í samráði við hann valdir 2 aðrir
nefndarmenn, annar þeirra a.m.k. kona.
b) Opinn flokkur: NM á næsta ári verður skipað sigurvegurum 1.
deildar í Deildakeppninni. Samþykkt að fá tillögur frá Guðmundi
Páli Arnarsyni landsliðseinvaldi um næstu skref varðandi uppbygginu
landsliðs fyrir EM 2006.
c) Yngri spilarar: Æfingakvöld eru í gangi á miðvikudagskvöldum
undir stjórn Sigurbjörns Haraldssonar, þar sem þeir sem áhuga hafa
á því að skipa landslið yngri spilara á NM 2005 stunda æfingar.
Eftir áramót þarf að ráða fyrirliða til að velja og undirbúa
landslið.
|
4. Árgjald
Ársþing BSÍ fól stjórninni að ákveða árgjald fyrir yfirstandandi
keppnistímabil. Stjórn BSÍ lýsir yfir ánægju með að félög gefi
afslátt til yngri spilara og eldri borgara. Vegna þess hve flókið
það er í framkvæmd og eftirliti að hafa mismunandi félagsgjöld, þá
samþykkir stjórnin að félagsgjöldin verði óbreytt, 100 kr. á
spilara á spilakvöld.
Næsti fundur verður 9. desember.
Fleira ekki rætt, fundi slitið kl. 19:05.
|