28. september 2004
Stjórnarfundur 28. september 2004
Mættir á fundinn: Kristján B. Snorrason, Matthías
Þorvaldsson, Kristján Már Gunnarsson, Erla Sigurjónsdóttir,
Kristján Blöndal, Ísak Örn Sigurðsson, Helgi Bogason, Stefanía
Skarphéðinsdóttir, Guðmundur Ólafsson og Una Árnadóttir. Jóhann
Stefánsson var fjarverandi.
1. Skýrsla forseta Forsetinn skýrði frá því að EM hefði reynst BBÍ dýrt og
kostnaðurinn kominn yfir 4.000.000 kr. |
2. Skýrsla framkvæmdastjóra
Stefanía sagði frá því að Bikarkeppnin tafðist vegna þess að það
tók áfrýjunarnefndina 45 mínútur að komast að niðurstöðu vegna
kærumáls í 3 lotu. |
3. Heiðursmerki BSI Ákveðið að láta hanna heiðursmerki BSÍ og var Helga Bogasyni
falið að fylgja því máli eftir. |
4. Deildakeppni Reglugerð um Deildakeppnina var dreift. Kristján Blöndal vildi
koma því á framfæri að hann væri tilbúinn til að hjálpa fólki til
að mynda sveitir. |
5. ÓL Istanbúl Eftirfarandi pör fara til Istanbúl: |
6. Fræðslumálin Ekki búið að móta starfið fyrir veturinn en þó ákveðið að
miðvikudagarnir verða fyrir ungliðana. BR borgaði keppnisstjórn í
fyrra en mun ekki gera það í vetur. |
7. Keppnisstjórnanámskeið
Guðmundur Ólafsson dreifði umræðupunktum um þjálfun
keppnisstjóra. Telur nauðsynlegt að BSÍ geti aðstoðað félög og
svæðasambönd við að útvega viðurkennda keppnisstjóra. Hefur rætt
við Svein Rúnar um að aðstoða við að móta stefnu og er Sveinn Rúnar
jafnvel til í að halda námskeið. Aðalatriði að mati Guðmundar er að
BSÍ haldi utan um málið. Stefnt er að því að halda
keppnisstjóranámskeið í haust. |