2. september 2004
fimmtudagur, 2. september 2004
Stjórnarfundur 02. september 2004
Mættir á fundinn: Kristján B. Snorrason, Matthías
Þorvaldsson, Kristján Már Gunnarsson, Erla Sigurjónsdóttir,
Kristján Blöndal, Jóhann Stefánsson, Ísak Örn Sigurðsson (sat ekki
allan fundinn), Stefanía Skarphéðinsdóttir og Una Árnadóttir.
Guðmundur Ólafsson, Helgi Bogason og Jóhann Stefánsson voru
fjarverandi.
1. Skýrsla forseta
Starfsemin hefur að venju verið í lágmarki í sumar. Þessi fundur
er haldinn aðallega vegna fyrirhugaðrar deildarkeppni. Þetta er
spennandi verkefni og vonandi vítamín inn í starfið.
|
2. Skýrsla framkvæmdastjóra
Stefanía þakkaði fyrir afmælisgjöf frá Bridgesambandinu.
Bikarkeppnin gengur sinn vanagang. Mótaskráin kemur út í næstu
viku, en það á eftir að fá staðfestar dagsetningar frá nokkrum
svæðum.
Rætt um Evrópumótið. Framkvæmdastjóri upplýsti að hótelmálið á
Evrópumótinu hefði verið tekið fyrir á stjórnarfundi sænska
bridgesambandsins og þeir höfnuðu endurkröfu.
Framkvæmdastjóra hefur borist tölvupóstur varðandi silfurstigamót
sem haldið var á vegum sumarbridge. Það vantaði 3 spil til að mótið
væri löglegt.
Erindinu var vísað til umsjónarmanns sumarbridge og
meistarastiganefndar.
|
3. Deildakeppni
Kristján Blöndal lagði fram rammareglugerð fyrir deildakeppnina.
Samþykkt með örfáum breytingum. Ákveðið að gjaldkeri og
framkvæmdastjóri móti reglur um ferðastyrki. Laga- og
keppnisreglunefnd mun útbúa reglugerð.
|
4. Landsliðmál
EM 2004
Lagðar fram skýrslur fyrirliða. Rætt um framkvæmd mótsins og talin
ástæða til að kvarta yfir framkvæmd kvennamótsins. Konurnar spiluðu
aðeins 2 leiki á dag og fengu 3 frídaga.
Það kom í ljós á mótinu, að skipun um að klæðast sérstökum fatnaði
hefði ekki verið fylgt eftir og virtist ekki skipta máli. BSÍ tók
þetta alvarlega og hafði töluverð fjárútlát vegna þessa.
ÓL 2004
Samkvæmt tillögu landsliðsþjálfara opna flokksins er lagt til að
eftirfarandi pör fari á Ólympíumótið
Matthías Þorvaldsson - Magnús Magnússon
Aðalsteinn Jörgensen - Sverrir Ármannsson
Þriðja parið líklega Jónas P. Erlingsson - Steinar Jónsson.
Einnig var rætt um að Jónas yrði spilandi fyrirliði og það færu
aðeins fimm. Lágmarkskostnaður ef farið er með 5 manna lið er kr.
1.100.000. Ákveðið að fela Kristjáni forseta og Guðmundi fyrirliða
að klára málið.
Fleira ekki rætt, fundi slitið kl. 18:10
|