11. nóvember 2003
þriðjudagur, 11. nóvember 2003
Stjórnarfundur BSÍ 11. nóvember 2003
Mættir á fundinn: Kristján B. Snorrason, Matthías
Þorvaldsson, Kristján Már Gunnarsson, Erla Sigurjónsdóttir, Ísak
Örn Sigurðsson, Kristján Blöndal, Guðmundur Ólafsson, Una
Árnadóttir, Jóhann Stefánsson, Helgi Bogason og Stefanía
Skarphéðinsdóttir.
1. Verklagsfyrirkomulag
stjórnar
Kristján B. Snorrason, forseti BSÍ, byrjaði fundinn á því að
minnast Þórðar Sigfússonar sem lést í vikunni.
Kristján B. Snorrason: Landsliðsmál, Félög eldri borgara og
fjáröflun.
Kristján Már : Félagakerfið og fjáröflun.
Matthías: Fræðslumál, heimasíða, textavarp, fjölmiðlar og
netpanel
Það verður svo hlutverk hvers og eins að kalla eftir þeim aðilum
innan stjórnar sem nýtast best til viðkomandi verkefna.
Kristján ítrekaði við fundarmenn að ef þeir hefðu sérstakan áhuga á
einhverjum málaflokki sem þeir vilja fylgja eftir þá væri sjálfsagt
að skoða það.
|
2. Skýrsla framkvæmdastjóra
Yokohamamótinu er lokið með sigri Bjarna og Þrastar. Nú liggur
fyrir að skipuleggja ferðina fyrir sveitina til Japan.
Landstvímenningur verður haldinn föstudaginn 14. nóvember n.k. og
er útlit fyrir að hann verði spilaður í Reykjavík, Akureyri,
Þingeyri, Fjarðarbyggð og kannski Grundarfirði og Hornafirði. Það
er rík hefð hjá okkur að spila hann á föstudegi, en það gerir
ekkert annað félag í Evrópu. Það er spurning um að breyta
spiladeginum til að gera þetta skemmtilegra og fá stóran samanburð.
Ákveðið var að setja málið í mótanefnd.
Byrjendur spila á sunnudögum, en það hefur verið heldur fámennt. Í
fyrra var óreyndum spilururm og nemendum Bridsskólans boðið í
Jólastórfiskaleik með hjálp BR. Samþykkt að endurtaka það 30.
nóvember n.k. þegar námskeiðum er lokið hjá Bridgeskólanum og ætlar
Stefanía að kynna það fyrir nemendum skólans.
|
3. Landsliðsmál
Opinn flokkur:
Guðmundur Páll er ráðinn landsliðseinvaldur til 1. ágúst 2004 og
mun sjá um að þjálfa fyrir Evrópumótið í Malmö.
Kvennaflokkur:
Framkvæmdaráðið leggur til að Kristjáni Blöndal verði falið að
kanna með undirbúningsvinnu hvernig best verði staðið að
landsliðsmálum kvenna. Forsetinn óskar eftir skriflegum tillögum
frá honum á næsta stjórnarfundi.
Yngri spilarar:
Stefanía ætlar að athuga vaxtabrodd yngri spilar m.t.t. til
landsliðs.
|
4. Drög að fjárhagsáætlun
Stefanía lagði fram drög að fjárhagsáætlun sem farið var yfir og
einstaka liðir ræddir.
Umræða um að finna leiðir til þess að ná inn tekjum og minnka
kostnað. Stefanía benti m.a. á að húsnæðið er ekki notað yfir
daginn og þar væri kannski okkar besta tækifæri til að auka
tekjurnar.
|
5. Salarleiga: Breytingar á
gjaldskrá
Stefanía lagði fram eftirfarandi gjaldskrá:
Fermingaveislur 28.000
" félagsmenn 25.000
Laugardagskvöld 33.000
" félagsmenn 30.000
" e.kl. 01:00 + 10.000
Samkvæmi m. bridgemóti
dagur til kl. 20:00 20.000
Kristján Már lagði til að gjaldskráin yrði tengd vísitölu vöru og
þjónustu svo að ekki þyrfti að bera þær sérstaklega undir stjórn.
Gjaldskráin var samþykkt og einnig tillaga Kristjáns Más.
|
6. Skipun 2 manna í laga- og
keppnisreglunefnd
Jón Baldursson og Björgvin Már voru skipaðir í nefndina.
|
7. Bréf og önnur erindi sem borist
hafa
a) Textavarpið:
Ekkert til fyrirstöðu að fjölga síðum textavarpsins og enn minna
mál að fjölga undirsíðum. Eins og staðan er í dag er aðeins hægt að
setja inn á textavarpið á skrifstofu BSÍ. Breyting verður á því á
næstunni og þá verður hægt að skrá sig inn með lykilorði hvar sem
er og setja inn á textavarpið.
Kristján, forseti, lagði til að Matthías og Stefanía gangi frá
fjölgun síðna.
b) Heimasíðan:
Helgi Bogason ætlar að skoða málið og kemur með tillögur fyrir
næsta stjórnarfund.
c) Félagakerfið:
Guðmundur Ólafsson og Kristján Már skoða málið og koma með tillögur
fyrir næsta stjórnarfund.
d) Útboð fyrir veitingareksturinn:
Stefanía kemur með tillögur varðandi málið á næsta
stjórnarfund.
Kristján B. Snorrason, forseti, ítrekaði við fundarmenn í lokin að
við þurfum að nýta krafta okkar til að efla starfið hjá
bridgefélögum víðs vegar á landinu. Einnig þarf stjórnin að fylgja
vel eftir stefnumörkun og þá sérstaklega fræðsluátakinu.
Endatakmarkið er "öflugra bridgelíf" í landinu. "Við þurfum að
brýna vopnin og ekki láta okkar eftir liggja til að ná takmarkinu"
sagði forseti.
Fleira ekki rætt, fundi slitið kl. 18:45
|