27. október 2003
mánudagur, 27. október 2003
Stjórnarfundur 27. október 2003
Mættir á fundinn: Kristján B. Snorrason, Matthías
Þorvaldsson, Kristján Már Gunnarsson, Erla Sigurjónsdóttir, Ísak
Örn Sigurðsson, Kristján Blöndal, Guðmundur Ólafsson, Una
Árnadóttir, Jóhann Stefánsson, Helgi Bogason og Stefanía
Skarphéðinsdóttir.
1. Skýrsla forseta
Kristján B. Snorrason, nýkjörinn forseti BSÍ, kynnti sig og bauð
fundarmenn velkomna á fyrsta fund nýrrar stjórnar. Hann sagðist
vilja halda áfram að leggja aðaláherslu á fræðslumálin og það væri
mikilvægt í því sambandi að auka fréttaflutning og virkja
fjölmiðlana.
|
2. Skýrsla framkvæmdastjóra
Það gengur vel að vinna tvímenningskvóta samkv. nýjum reglum,
enda fyrsta svæðamótið um næstu helgi.
Jón, fyrrverandi forseti, Matthías og Stefanía áttu góðan fund með
Bridgefélögum eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu.
Það er vilji fyrir því að bjóða þeim að ganga inn í Bridgesambandið
og gera við þá þjónustusamning.
Tölvumálin á skrifstofunni eru búin að vera í ólagi og hefur það
m.a. bitnað á textavarpinu. Ákveðið að reyna að fá fleiri síður á
textavarpinu, sérstaklega væri æskilegt að fá síður 327 til 329 því
þær eru á lausu.
|
3. Verkaskipting stjórnar
Varaforseti: Matthías Þorvaldsson
Ritari: Una Árnadóttir
Gjaldkeri: Kristján Már Gunnarsson
Í framkvæmdaráði eru: Kristján B. Snorrason, Matthías Þorvaldsson
og Kristján Már Gunnarsson.
Frekari verkaskipting stjórnar og skipurit verður ákveðið á næsta
fundi.
Fundartími stjórnar var ákveðinn annan þriðjudag hvers mánaðar kl.
16:45, en forseti telur þurfa tíðari fundi á meðan stjórnin er að
koma sér í gang og verða þeir boðaðir með góðum fyrirvara.
|
4. Skipun fastanefnda
Mótanefnd:
Ísak Örn Sigurðsson, formaður, Ólafur Steinason, Runólfur
Jónsson
Varamenn:
Brynjólfur Gestsson, Ljósbrá Baldursdóttir, Þorvaldur
Pálmason
Meistarastiganefnd:
Erla Sigurjónsdóttir, formaður, Esther Jakobsdóttir, Sverrir
Ármannsson
Dómnefnd: Guðmundur Páll Arnarson, formaður
Ásgeir Ásbjörnsson
Erla Sigurjónsdóttir
Hermann Lárusson
Jón Hjaltason
Jónas P. Erlingsson
Páll Bergsson
Sigurbjörn Haraldsson
Örn Arnþórsson
Laga- og keppnisreglunefnd:
Kristján Blöndal, formaður
2 nefndarmenn valdir á næsta fundi
Stjórn Minningarsjóðs Alfreðs Alfreðssonar:
Einar Jónsson, formaður, Kristján B. Snorrason, Stefanía
Skarphéðinsdóttir
|
5. Önnur mál
a) Matthías Þorvaldsson spurði um tilurð og tilgang
Alfreðssjóðsins. Stefanía skýrði í grófum dráttum tilurð sjóðsins
og að hann hefði verið stofnaður sem fræðslusjóður yngri
spilara.
Sjóðurinn hefur t.d. styrkt yngri spilara á Evrópumót og einnig
fengu Norðurlandameistar yngri spilara 2001 styrk í
viðurkenningarskyni.
b) Erla Sigurjónsdóttir sagði frá því að Bridgefélag Hafnarfjarðar
væri að gera samstarfssamning við Íþrótta- og tómstundaráð
Hafnarfjarðar og fengi félagið styrk á næsta fjárhagsári.
c) Kristján Blöndal var með fyrirspurn um hvers vegna Íslandsmót
kvenna væri ekki spilað við bestu aðstæður. Fyrirspurninni vísað
til mótanefndar.
Fleira ekki rætt, fundi slitið kl. 18:20
|