21. maí 2003
miðvikudagur, 21. maí 2003
Mættir á fundinn: Jón Sigurbjörnsson, Anton
Haraldsson, Erla Sigurjónsdóttir, Kristján Már Gunnarsson, Stefanía
Skarphéðinsdóttir, Elín Jóhannsdóttir, Ísak Örn Sigurðsson,
Matthías Þorvaldsson.
1. Skýrsla framkvæmdarstjóra
Stefanía sagði úttekt á húsnæði BSÍ lokið og hefði komið fram
athugasemd vegna handriðs á neyðarútgangi sem væri 10 cm of lágt.
Verið er að kanna hver ber kostnað vegna lagfæringar.
Undirbúningur vegna Kjördæmamóts gengur vel.
Þegar eru komnar 27 skráningar í Bikarkeppnina.
|
2. Fjármál
a) Rekstrarstaðan
Farið var yfir fjármálastöðuna fyrir árið 2002-2003, en gróft
milliuppgjör liggur fyrir. Reksturinn er u.þ.b. á áætlun.
b) Rekstraráætlun 2003-2004
Drög að fjárhagsáætlun vegna 2003-2004 hefur verið gerð og er hún
að mestu leyti byggð á tölum frá núverandi rekstrarári. Í nýju
áætluninni er gert ráð fyrir 1,9 milljón króna rekstrarafgangi. Sú
upphæð dugar fyrir afborgunum lána og vaxtagjöldum, sem sagt allt í
járnum.
Stefanía benti á að ófrágengin væri krafa vegna göngugötu í
Þönglabakka og að einnig mætti búast við að fara þyrfti í
einhverjar lagfæringar utandyra í Síðumúlanum.
Það urðu mjög fjörlegar umræður um áætlunina og kom t.d. fram að
ekki væri gert ráð fyrir að senda kvennalandslið á EM árið 2004, að
fyrst þyrfti að byggja upp frambærilegt lið áður en að hægt væri að
senda það erlendis í keppni og væri þar ekki bjart framundan. Eins
kom fram í umræðunni að æskilegt væri að til væru peningar til að
mæta óvæntum útgjöldum. Fram kom fyrirspurn um kostnað vegna
félagakerfisins. Ákveðið að Anton, Ólafur Steinason og Sveinn Rúnar
geri bæði faglegt og fjárhagslegt mat á kerfinu.
|
3. Mótahald 2003-2004
Laga- og keppnisreglunefnd voru þökkuð mjög góð störf vegna
tillagna um breytingar á Íslandsmótum í sveitakeppni og
tvímenningi.
Samþykkt var að leggja fyrir næsta BSÍ þing meðfylgjandi tillögur,
en það eru þær sem lagðar voru fram dags. 14. maí 2003 og sendar
voru til stjórnarmanna í tölvupósti.
Þó var fellt út að undankeppnina í tvímenning ættu allir að spila
sama dag
Þetta var samþykkt af öllum fundarmönnum nema Antoni sem sat hjá
við atkvæðagreiðsluna.
Álit kom frá mótanefnd sem byggt var á niðurstöðum skoðanakönnunar
vegna staðsetningar á undankeppni Íslandsmóts í sveitakeppni. Þar
kom fram að mótanefnd telur að spila megi undanúrslitin til skiptis
á höfuðborgarsvæðinu og í einhverjum þéttbýliskjarna í nágrenni
höfuðborgarsvæðisins.
Samþykkt var að reyna að spila næstu undankeppni í Reykjavík og var
Stefaníu falið að finna hentugt húsnæði. Einnig kom fram í þessari
álitsgerð að gott væri að spilarar væru merktir barmmerkjum og að
hálfleikstölur verði birtar.
Tímasetning úrslita sveitakeppninnar var líka rædd og var ákveðið
að halda áfram að spila úrslitin um páska. En ef ofangreindar
tillögur verða samþykktar verður mótið búið hjá flestum á
föstudagskvöldi.
Síðan var rætt um hvort ekki þyrfti að leita einhverra leiða til að
gera úrslitin áhugaverðari fyrir áhorfendur og fjölmiðla og hvort í
því sambandi væri jafnvel hægt að koma upp hliðarmóti.
Anton skýrði frá því að á komandi starfsári yrði Bridgefélag
Akureyrar 60 ára og að tilvalið væri af því tilefni að halda
afmælismót í tengslum við það eða flytja eitthvað annað mót til
Akureyrar af þessu tilefni. Þessu var vísað til mótanefndar.
Þá var ákveðið, að í samráði við Guðmund Pál yrði væntanlegu
Kauphallarmóti breytt í mót á vegum BSÍ og gerð athugasemd vegna
þess að það vantaði framhaldskólamót inn í mótaskrána. Mótaskráin
var því næst samþykkt með þeim fyrirvara að mótanefnd mundi athuga
með Kauphallarmótið við Guðmund Pál, afmælismót Akureyrar við
Bridgefélag Akureyrar og finna dagsetningar fyrir framhaldsskólamót
og athuga með Firmakeppni.
|
4. Keppnisgjöld 2003 - 4
Íslandsmót í sveitakeppni:
Samþykkt samhljóða að hækka gjöldin í kr. 28.000/sveit í
undanúrslitum.
Óbreytt kr. 10.000 í úrslitum.
Íslandsmót í tvímenningi:
Samþykkt samhljóða kr. 7.000/par í undanúrslitum og kr. 3.000/par í
úrslitum.
|
5. Önnur mál
Jón bað um heimild til þess að semja við Ljósbrá Baldursdóttur
um áframhaldandi störf fræðslufulltrúa á næsta starfsári og var það
samþykkt samhljóða.
Rætt var um hvort hægt væri að bæta spjallrásina á www.bridge.is og
síðan hvað hægt væri til bragðs að taka vegna minnkandi umfjöllunar
um bridge í fjölmiðlum. Í samantekt frá Matthíasi kom fram að
umfjöllun um bridge í fjölmiðlum hefði farið mjög halloka í
samanburði við skák á undanförnum árum. Þarna væri úrbóta þörf og
væri það verkefni sem þyrfti að taka á strax á næsta
starfsári.
Fleira ekki rætt. Fundi slitið kl. 19:15.
|